Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1943, Side 12

Sameiningin - 01.03.1943, Side 12
42 eftir því sem jarðfræðingar stjórnarinnar í Canada segja, alla leið aftur í ísaldartímabil. Um landdýr er lítið á Baffin-eyjunni. Þar var talsvert mikið af hreindýrum fram yfir miðja síðustu öld, en síðan að Eskimóarnir komust upp á að skjóta með byssum, og' gátu fengið þær og skotfærin, hafa þeir gengið svo í skrokk á dýrunum að ef ekki verður við gjört, er ekki annað sjáanlegt en þau verði eyðilögð með öllu, á tiltölu- lega stuttum tíma. Þar er og mikið af hvítum tófum, sem Eskimóar veiða í boga, og selja Hudson’s Bay félaginu. Áraskifti eru að tófu tekjunni á eyjunni. Fjórða hvert ár er þar mergð mikil, en fer svo fækkandi aftur í næstu þrjú ár, og synist það vera ófrávíkjanlegt lögmál. Úlfar hafa verið þar nokkrir, en eru nú með öllu eyði- lagðir. Hvergi í þessu landi, er sagan skráð eins skýrum og sýnilegum teiknum og í norðurhéruðum þess, og á hinum norðlægu eylendum þess. Þar er ekkert til að skyggja á bergrúnirnar sjálfar, sem tímans tönn hefir meitlað í harð- an steininn í gegnum aldirnar. Merki ísaldarinnar blasa alsstaðar við sjónum manna. Hálsarnir slitnir. Blágrýtis- klappirnar muldar og malaðar. Klettabeltin slitin og snúin. Stórgrýtinu stráð um dali, holt og hæðir. Kalksteins Tögin, sem lögð hafa verið ber og liggja um þvera og endilanga eyjuna, og járn, eða járnsteinsbeltin ómælanleg og óupp ausanleg, sem bíða eftir að þau séu brædd og barin, blasa alstaðar við augum manns. En það er fleira en þessi ísaldar umbrot og bergrúnir, sem vekja athygli manns á Baffin-eyjunni, því þótt yfir- borð hennar, og als umhverfis þar norður í höfum, sé í það heila, bert, hrjóstrugt og gróðursnautt, þá við betri þekking og nánari athugun sést að hún er ekki gróðurlaus með öllu. í dölunum, sem eru margir, dökkir til að sjá, þröngir og djúpir, vex dálítið af grasi með fram ánum og lækjunum, sem rutt hafa sér farveg eftir þeim, og ofurlítið af gulvíðir, sem nær um þriggja feta þroska. þegar best lætur, enn fremur er oft að finna fífu, þar sem votlent undirlendi finst í þeim. í hlíðum dalanna er oft að finna lambagras, sóleyjar, og jafnvel fjólur. Berja lyng er víða að finna, en engin ber þroskast þar. Vísirinn kemur, en haustnæðingarnir koma of snemma til þess að ber geti þroskast. Allmikið er af hreindýramosa, geitnaskóf og sortulvngi. Þó að gróður þessi sé hvorki margbrevttur né

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.