Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1943, Page 14

Sameiningin - 01.03.1943, Page 14
44 þeirra, landa. Undur hinna norðlægu landa eru svo voldug að slíka fegurð er hvergi að finna á byggðu bóli á neitt svipuðu stigi. Við brjóst slíkrar náttúru, hafa börn snjólandanna fæðst og þroskast í alda raðir. Framhald. Lauslega þýíi úr Free Press, af A. S. Bardal. Maðurinn var ekkert nema skinn og bein. Hann hafði kvalist meir en orð fá lýst. Hann bar áverka á andlitinu, og var svo hás að mál hans skildist naumast. Hann hafði séð ógnir stríðsins — og vottað kvalafullan dauða — en lifað þó — til að geta sagt söguna. Ef til vill gat hann betur en nokkur annar maður skýrt þjóð sinni — Banda- ríkjamönnum — frá því hvað það þýðir að vera í ófriði. Maðurinn var Eddie Richenbacker. Honum og sex félögum hans var bjargað úr gúmí-bát þar sem þeir voru að hrekjast á miðju Suður-Kyrrahafinu 23. nóvember 1942. Nokkru síðar sagði hann sögu sína í Washington D. C. Viðstaddir voru Simson ríkisritari, og stór hópur blaða- manna. Sagan er í stuttu máli á þessa leið: Um miðnætti 21. október lögðum við af stað. Flugvélin hafði verið undirbúin sérstaklega fyrir þessa ferð. 1 henni voru auk mín Frankly og Humbly og sjö herforingjar. Leiðin lá um suðurhluta Kyrrahafsins. Næsta morgun bilaði átta- vitinn og var gagnslaus með öllu. Skömmu síðar biluðu útvarpstækin. Benzínið þraut og við urðum að nauðlenda á sjónum; við skiftum okkur í þrjá gúmí-báta, sem voru í flugvélinni. Bar okkur víða um hafið og vorum við algjör- lega hjálparvana. Við höfðum bænastundur kvölds og morgna. Við báðum Guð að bjarga okkur, og við báðum hann að gefa okkur mat. Um leið og Eddie kapteinn sagði þetta, skaut hann hornauga til blaðamannanna og sagði í lágum róm: Ef eg hefði ekki sjö vitni mundi eg ekki þora að segja þetta, því það mundi verða skoðað sem fjarstæða. En innan klukkustundar frá því að við báðum Guð að gefa okkur mat, kom máfur og settist á höfuðið á mér. Eg náði honum og við borðuðum hann hráann. Innýflin tókum við og notuðum fyrir beitu, og veiddum þannig tvo fiska, sem við lögðum okkur einnig til munns eins og þeir komu úr sjónum.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.