Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1943, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.03.1943, Qupperneq 15
45 Kapteinn Richenbacker sagði frá liðþjálfa — sargent — tuttugu og tveggja ára gömlum, þeim eina af hópnum, sem dó. Hann hafði drukkið sjó, þegar báturinn, sem. hann var í steyptist um. Og svo drakk hann sjó aftur síðar, og það reið honum að fullu. Eddie starði þungbúinn á borðið fyrir framan sig, er hann mintist þessara ömurlegu stunda. Á elleftu nóttu var þessi ungi maður lángt leiddur. Sjórinn gekk yfir bátinn. Eg hafði haldið piltinum upp að brjósti mínu í tvær nætur, og reynt að hlynna að honum og halda honum heitum með því að gefa honum nokkuð af mínum líkamshita. Kl. þrjú um nóttina heyrði eg síðustu andvörp hans. Við báðum enn að morgni þess dags. Og hjálpin kom. Sjö manna flugvél hafði loks fundið okkur. Svo hófst ferðin heim á leið. ; Úr nýárserindi William Temple, erkibiskups 1 í Newcastle Samtíðarkristnin á fáa atkvæðamenn, sem eru jafnokar dr. William Temple erkibiskups ensku kirkjunnar. Tignar- staðan hefir hefir hann ekki, en hann hefir stöðuna. Fram- sækinn og djarfur stendur hann í broddi fylkingar ekki einvörðungu enskrar kristni, heldur gjörvallrar kristinnar kirkju. Þegar hann talar er auðheyrt að honum liggur á hjarta velferð allrar kristninnar og um leið velferð allra manna. Yfirburðir hans og staða veita honum áheyrn framyfir flesta aðra kristna leiðtoga. Eftirfylgjandi orð hans eru tilfærð úr erindi á nýárinu síðasta: “Vér leggjum inn á leið ársins nýja með háum vonum, en það veitir ekkert tóm til sjálfsánægju eða að liggja á liði sínu. Það er enn þörf á allri einbeitni vorri og krafti, og ef til vill einnig á allri vorri þolni. Þó höfum vér gilda ástæðu til að trúa að nú stefni oss í vil, og vér ættum að kanna getu vora og krýna sigurvinning stríðsins -með rétt- látum og traustum friði. Sigur reynir mjög ákveðið á siðferðiskend þjóðarinnar. Þá má ekki liggja á liði sínu fremur en nú. Feikna ábyrgð og skylda hvílir á oss. Vér þörfnumst festu og sjálfsaga til að gera því skil. Umfram alt þörfnumst vér að átta oss á að hverju ber að stefna, og í þessu efni ætti kristið almenningsálit að vera vel upplýst og vakandi. Einnig að láta til sín heyra. Kristindómurinn segir oss ekki hvernig vér getum

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.