Sameiningin - 01.09.1933, Side 12
174
Kommúnisminn
Ritlingur, sem nefnist I. Rit: Rauði dauðinn—Sannleik-
urinn um kommúnismann, prentaSur í Reykjavík snemma
á þessu ári, hefir verið sendur Sameiningunni til umgetning-
ar. Ritin eiga að verða fleiri um sama efni, eins og heitið
ber með sér. Höfundar er ekld getið eða útgefenda, en for-
málann skrifar Gísli Sigurbjörnsson, og mun bæklingurinn
sjálfur vera frá hans hendi.
Efni ritsins er skorinorð sókn á hendur þessari byltinga-
stefnu, kommúnismanum, sem á síðari árum hefir náð tals-
verðu l'ylgi á islandi. Segir þar fyrst frá rótum stefnunnar
og einkennum. Þá er Iýsing á aðförum hennar í Rússaveldi,
ófrelsinu, sem hún hefir getið af sér þar, rangsle.itni hennar
og kúgun allri. Síðan lýsir ritið hættu þeirri, sem kristin-
dóminum og kristinni menningu yfirleitt stafar af þessum
vogesti; og bendir á það, eins og rétt er, að heimsmenningu
vorra tíma sé mjög ábótavant, hún þjáist af mörgum mein-
semdum, “sem kommúnistar fóðri og fiti kenningar sínar
á.” Þessi mein — vantrúna, spillinguna í fjármálum og
stjórnmálum, léttúðina, siðleysið og önnur slík—þurfi heil-
brigðu menningaröflin að beita sér við og yfirvinna, til að
tryggja vörnina gegn kommúnistum og stefnu þeirra.
Upplýsingin, sem gefin er í riti þessu um kommúnism-
ann, mun vera rétt og sönn í öllum aðalatriðum, þó höfund-
urinn sé helzt til óspar á lýsingarorðin. Sameiningin hefir
sagt ofurlítið um þessa byltingarstefnu áður og bent á suin
af þeim atriðum, sem ritið fjallar um. Hér er hætta, sem
ekki má þegja j7fir.
Satt er það, að rithöfundum, sem hafa ferðast um
kommúnista veldið rússneska og lýst ástandinu þar, her
mjög illa saman í ýmsum atriðum. Lýsingin íer nokkuð eftir
skoðanahneigð og hugarfari höfundanna. Sumir telja á-
standið óþolandi með öllu. Aðrir hæla lilþrifum soviet-
stjórnarinnar og fullyrða, að alþýðunni líði miklu betur nú,
heldur en á dögum einveldisins—það var þá líka hægt við að
jafnast. En eitt játa sjálfir meðmælendur, með þögninni,
ef ekki ineð herum orðum: Kommúnistar berjast af alefli
við að bola öllu sönnu frelsi burt úr ríkjum sínum. Pólitískt
frelsi er ekkert undir þeirra stjórn og hefir aldrei verið. Þar
fær enginn að greiða atkvæði, eða segja nokkuð um stjórn-