Sameiningin - 01.09.1933, Blaðsíða 16
178
efnilegasta æskulýð. Spáir slíkur æskulýður góðu um fram-
tíðina. Þar eins og annarsstaðar hefir kreppan dregið úr
mörgu á síðustu árum, en mér fanst hugur fólksins óhugaður
og framtiðin blasa við því hjartari en víða annarsstaðar um
þessar mundir.
Alúðarþakkir vil eg tjá söfnuðum og einstaldingum fyrir
ágætar viðtökur og ánægjulega samvinnu.
K. K. ó.
Samband kirkjufélagsins við önnur
útlend kirkjufélög
Fyrir hönd þingnefndar i því máli lagði Gamalíel Thor-
leifsson fram þetta nefndarálit:
í kirkjuþingi í Minneota árið 1930, og fram á þenna
dag, hefir kirkjufélagið haft með höndum málel'ni, sem í upp-
hafi var orðað: samband kirkjufélagsins við önnur lútersk
kirkjufélög. Á síðari tínnim hal'a umræður og athafnir aðal-
lega horfið að sambandi við United Lutheran Church in
America.
Brátt kom í ljós að menn greindi mjög á, hvort ráðlegt
væri og heppilegt að festa það samband. í liðinni tíð, hafa
bæði fylgjendur málsins og andstÖðuflokkurinn, lagt fyrir
almenning nytsemi þess og afföll, vinninga þess og töp, bæði
á þingum og í opinberum blöðum, og eftir vorum skilningi,
mjög rækilega.
Meðhald og mótstaða virðist ekki enn að hafa færst
saman, og veldur þar hvorttveggja, að í meðferð málsins, og
i hugum margra, verður það hæði tilfinningamál og þjóð-
ernismál.
Þannig stóðu sakir, þegar samþykt var á þinginu að taka
prófsatkvæði um málið. Með því eina móti var komist sem
næst ábyggilegri vissu hvernig hugur og vilji allra þingfull-
trúa stæði.
Við atkvæðagreiðslu kom í ljós nokkuð öflugur meiri-
hluti, sem var mótfallinn sambandinu, eða noklcuru í þá átt
á yfirstandandi tímum, og bendir það til þess, að óþarft sé og
óheppilegt að halda því við á dagskrá kirkjuþinga að minsta
kosti í nálægri framtíð, og vonast nefndin eftir, að hafa þar
til stuðnings bestu manna yfirsýn.