Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1933, Síða 17

Sameiningin - 01.09.1933, Síða 17
179 Nefndin getur ekki gengið frá máli þessu án þess að viðurkenna þakklæti kirkjufélagsins fyrir það bróðurþel, sem hið virðulega kirkjufélag United Lutheran Church in America, hefir ávalt sýnt félagi voru, og þann styrk, sem það hefir veitt stofnunum vorum í liðinni tíð. Vér vonum að það vinsamlega samband haldist. Ræður nefndin nú til, að þetta sambandsmál sé tekið út af dagskrá þingsins, og því frestað um óákveðinn tíma. Á kirkjuþingi að Baldur, 26. júní 1933. G. Thorleifsson, K. Valdimar Björnson, C. B. Jónsson, S. E. Jóhannson, Árni Eggertson. (Með því að þetta nefndarálit er niðurstaða kirkjuþings- ins í miklu vandamáli, þykir tilhlýðilegt að það hirtist hér sérstalct í “Sam.” og veki þá eftirtekt, sem það verðskuldar.— K. K. ó.) Dr. Björn B. Jónsson kominn heim Fagnaðarefni er það hinum mörgu vinuin Dr. Björns, hve vel honum og konu hans gaf á ferðalagi þeirra lil ætt- jarðarinnar á nýliðnu sumri og að þau eru nú lcomin heim aftur með endurnýjaða krafta til ástvina og safnaðar. Það var mjög viðeigandi og fagurt af Fyrsta lúterska söfnuði að minnast fjörutíu ára prestskapar afmælis Dr. Björns með því að gefa honum frí til þessarar ferðar, og mun fara með það góðverk eins og venjulega á sér stað, að það mun færa hlessun þeim er yntu það af hendi, ekki síður en þeim sem nutu. Ferðalagið hefir verið þessum mikilhæl'u hjónum bæði unun og uppbygging, sem þau aftur miðla í ríkum mæli i starfi sínu og samhúð hér við söfnuð og samverkamenn. Alt ferðalag hefir örfandi áhrif, en ferð tit íslands að minsta kosti fvrir þá sem af íslenzku bergi eru hrotnir, finst mér að taki öllu ferðalagi fram. Er það mikill gróði vestur-íslenzku þjóðlífi hve margir héðan geta heiinsótt ættjörðina þannig, ekki sízt þegar áhrifamenn eiga hlut að máli. Bíður Samein- ingin þau hjónin hjartanlega velkomin heim aftur og hugsar gott til þess gróða, er för þeirra muni færa oss. K. K. ó.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.