Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1935, Síða 10

Sameiningin - 01.10.1935, Síða 10
15G Til kriálniboðsvina Framh. Ef við svo horfum fram í tímann, er síður en svo að trú- uðu fólki verði talin trú um að kristindómurinn sé að deyja út í heiminum. Kristnir menn hafa það að orðtæki, að framtíðin sé eins björt og fyrirheiti Guðs. En þeir, sem ekki vilja taka fyrirheiti Guðs til greina, ern illa færir um að ráða tákn tím- ann eða sjá fyrir óorðna hluti. Hrakspám vantrúaðra um kristindóminn, er ekki gaumur gefandi. Vonir okkar um framtíðina byggjast einnig á því, sem séð verður í Ijósi fortíðarinnar. Mér verður t. d. hugsað til vaxtar og viðgangs sjálfboða- starfsins kristilega innan þjóðlcirknanna í nágrannalöndun- um. (Því miður yrði of langt að fara út í það hér). Og eg sé í því ljósi, að áður en langt um líður verður kristilega pré- dikunarstarfið orðið það öflugt á islandi, að hægt verður að messa í öllum kirkjum landsins samtímis, og í fleiri tugum kristniboðs og bænahúsa auk þess. Við munum senda kristniboða í tugatali til ekki kristinna þjóða, og gefa árlega nokkur hundruð þúsundir króna til kristniboðsins. Og mér verður hugsað til framtíðar möguleika kirkjunn- ar í Kína, hjá voldugustu þjóð heiðninnar. Mér dylst ekki að ögrandi íjandaher óskar og spáir kirkjunni þar öllu illu: Fyrsta kristniboða mótmælenda kirkjunnar, sem ætlaði til Ivína, var neitað um far þangað. Hann varð að leggja mikinn ltrók á leið sína og fara til Ameríku. Er hann geklt um borð á skipið, sem flutti hann til Kína, var hann kvaddur með háð- hrosi, en því fylgdi sú spurning hvort hann léti sér detta í hug, að hann gæti áunnið Kínverja fyrir kristindóminn. Sömu spurningu er títt beint að okkur kristniboðunum enn þann dag í dag. Mótmælenda trúboðið hefir ekki einu sinni áunnið eina miljón manna af 400 miljónum íbúa Kína- veldis, eftir heillar aldar starf. Það er sagt að með því móti verði Kína aldrei kristnað. Nú er þess aðgætandi að ekki verður sagt að kristniboðið hafi verið alveg árangurslaust, þó ekki hafi tekist að ávinna fulla miljón áhangenda. En hvað framtíð kristniboðsins í Kína líður, þá verður ekki um það spáð hlutdrægnislaust, taki

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.