Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1924, Síða 5

Sameiningin - 01.11.1924, Síða 5
323 Hvað er kristindómur ? Spurning þessi er kristindóminum sjálfum jafngömul. Á • öllum öldum liafa merin leitast viS aS svara henni. Aldrei hefir menn, ef til vill, langað jafn-ákaft til að fá fullnægjandi svar eins og nú í samtíð vorri. Það er eitt yfirhurða-einkenni kristindómsins, að hann er ávalt meira en það sem menn fá tileinkað sér. Því meir sem menn tileinka sér, því meir er eftir. Kristindómurinn er tak- markalaus, eins og Guð, sem hann er kominn frá. Trúarjátningarnar eru sýnishorn þess, hversu menn á ýms- um tímum hafa leitast við að gera sér grein fyrir meginatriðum kristilegra fræða. Kirkjusagan er frásaga þess, hver áhrif kristindómurinn hefir haft á þjóðir og einstaklinga. Hvorttveggja er gagnlegur leiðarvísir. En sjálfir verðum við að gera okkur grein fyrir kristindóminum, ef við, hver um sig, viljum eiga þar nokkur ítök. Verður þá hver aö segja frá eigin brjósti eftir því sem honum finst sannast. Geta menn á þann hátt verið hverir öör- um til aðstoðar, ef bróðurhugur fylgir jafnan máli. Enda mega menn ekki um kristindóminn ræða nema af bróðurhug hver til annars. Kristindómurinn er fyrst og fremst, að því er oss virðist, ákve'Siö trúarþel. Sérhvert trúarþel er dularfull vitund manns- sálarinnar um Guð og lotningarfull löngun til hans. Að ein- hverju leyti er trúarþelið líklega til í öllum mannlegum sálum. En hjá mörgum er það svo óljóst, að þess naumast gætir, eSa þá svo afskræmt, að það verður ekki að notum. Stafar það ýmist af þekkingarskorti eða siðferSilegri spillingu. Samfara öllum átrúnaSi mannanna er einhverskonar trúar- þel. Það trúarþel, sem stafar af kristindóminum, er meðvitund sálarinnar um Guð fyrir Jesúm Krist. Sálin finnur í Jesú Ivristi samfélag við Guð. Trúarlífið er vakið í sálunni af Jesú. Kristilegt trúarþel er dularfull sæla í sálu mannsins, sem kemur til af ástríku samlífi við Guð í Jesú Kristi. Trúarþelið hefir ávalt bæn í för með sér. Það svalar sér í bæninni. Þar sem trúarlífið er kristilegt, þá er bænin í, Jesú nafni. Bæn er það, að láta hugann dvelja hjá GuSi í ást og lotningu. Bænin í Jesú nafni er farvegur trúarþelsins til Guðs. Jesús er farvegurinn, sem trarþelið fer um, þegar það leitar aS framrás til Guðs. Kristilegt er trúarþel mannsins fyrir anda Krists, sem vekur

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.