Sameiningin - 01.11.1924, Page 10
328
staklega hinnar 'kristnu trúar. Slíkri stefnu hljóta að fylgja
mikilvægar afleiðingar —- afleiðingar, sem geta haft miklu meiri
þýðingu fyrir framtíÖ mannkynsins en nokkur stjórnarfars-
breyting. ÞaÖ virtist svo, sem hinir hugsandi menn hafi komist
að þeirri niöurstöðu, að heimurinn geti ekki tekið sönnum
framförum, nema hann keppi að takmarki meginatriða hinnar
kristnu trúar.—fÞýtt úr The Homiletic Revieui).
o-
Þing Sameinuðu lútersku kirkjunnar
Leggi menn trúnað á ýmislegt mas óvinveittra blaða, má
búast við því að komist verði að þeirri niðurstöðu, að kirkjan sé
á hraðri afturför og hafi verið um lengri tíma. En verði manni
að líta í ábyggilegar skýrslur, t-d. hvað Bandaríkin áhrærir, verð-
u'r alt annað fyrir manni. Árið 1800 var einungis fimtándi hver
maður í Bandaríkjunum meðlimur einhverrar kirkju. Um miðja
nítjándu öldina var það sem næst einn af hverjum sjö. Um alda-
mótin síðustu var þaS sem næst einn af hverjum þremur. Nú
er þaS sem næst annar hvor maður í Bandaríkjunum, sem til-
'heyrir einhverri deild kirkjunnar.
Ekki eru þetta heldur tómar tölur. Ef litiS er á starfsemi
kirkjudeildanna, verður fyrir manni ekki síður greinilegur vott-
ur um þroska og framför. StarfiS fer alt af vaxandi, og lætur
sín meir og meir gæta í þjóðlífinu. Blöðin, sem fljót eru til að
flytja fregnir eftir smekk fólksins, hafa á síðustu árum kept
hvert við annað um að segja frá starfi kirkjunnar. Frásagnir
um þing kirkjudeildanna koma á fremstu síðu stórblaðanna.
Það þýkir mikils vert, að skýra frá afstöSu kirkjunnar í hvaSa
máli sem er. Bendir þetta áreiðanlega ekki til þess, að fólk láti
sig kirkjuna og hennar mál engu varSa.
Ný-afstaSið er nú þing stærstu deildar lútersku kirkjunn-
ar í Ameriku, sem nefnist United Eutheran Church. Var það
haldið í Chicago frá 21.—29. október. Þingsetningarguðsþjón-
ustan var í Wicker Park ensk-lútersku kirkjunni, en allir þing-
fundir voru haldnir í stórstal í Edgewater Beach gistihúsinu,
þar sem þingmenn og gestir þingsins héldu til. Yfir 500 áttu
sæti á þinginu, en auk þeirra sóttu auðvitað fjöldamargir þingiS.
RúmaSist alt þægilega i hinni miklu höll. United Lutheran Church
myndaSist viS samsteypu þriggja kirkjufélaga 1917, og heldur
þing annað hvort ár. Einn af ágætismönnum jaessarar miklu