Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1924, Page 12

Sameiningin - 01.11.1924, Page 12
330 sinnar í heimsstyrjöldinni, en af þjóðinni yfirleitt var þaS a(5- eins fjórir af hundraÖi. “Synir Norðurlanda (ScandinaviaJ, sem seinna 'komu til Ameriku, hafa sýnt hinn sama þróttmikla anda og eru ómetan- legt tillag til mannastyrks þjóðarinnar í framtiöinni. “Það gleður mig aö kannast við, aö United Lutheran Church og deildir henni skyldar. eigandi hlut í þeim þjóðlega anda, er birtist hjá feðrum þeirra í sögu þeirra, glæSa hann einnig í hjörtum allra trúbræðra sinna, sem nú koma til vor frá Norö- urálfunni og leita gæfunnar hjá þjóð vorri.” Þegar kveðja þessi haföi verið flutt þinginu, var sunginn ættjarðarsöngurinn “America”, og svo bar dr. C. M. Jacobs frá Philadelphia fram svar , er afgreitt var af þinginu og sent for- setanum. Starfsmál þingsins voru mörg og fjölbreytt, eins og þaö bar vott um, að skýrslur þær, er lagðar voru fyrir þingið og prent- aöar höfðu verið fyrir fram, voru ^425 blaðsíður í átta blaða broti. Þær skýrslur voru sendar öllum þingmönnum eitthvaö þremur eða fjórum vikum áður en þingið kom saman, til þess þeir ættu kost á að vera búnir að kynnast þeim itarlega. Eklc- ert var lesið í þinginu af þessum prentuðu skýrslum, nema bein- ar tillögur. Sparaðist þannig mikill tími. Aðal-mál þingsins voru: trúboð, mentastarf kirkjunnar og kristilegt líknarstarf. En hvort fyrir sig er í mörgum greinum, vegna þess hve starfið er yfirgripsmikið. þá mætti lika nefna hin mörgu útgáfu-fyrir- tæki félagsins. Einnig varð talsvert rætt um tillögur nefndar þeirrar, er fjallar um mannfélagsmálin (Moral and Social Wél- fare). Skal vikiö aö því síðar- Bæði trúboð heima fyrir og trúboð út á við, voru stórmál á dagskrá þingsins. Sérstaklega hafði eg hug á því, aö heyra á umræðurnar um heiðingjatrúboð. Þvi ,um það mál erum vér í íslenzka kirkjufélaginu í samvinnu við þetta stóra og öfluga fé- lag, og trúboði vor, séra S. O. Thorlaksson, starfar undir um- sjón þess. Hann sat á þessu þingi og flutti þar erindi, er heið- ingjatrúboösmálið lá fyrir. Félag þetta rekur trúboð i Japan, á Indlandi, í Liberia í Afríku, og nú nýlega hefir það byrjað á starfi í Kína. Tekur þar við trúboösstöð einni, er Þjóðverjar áður ræktu. Trúboðar frá mörgum af þessum sviðum fluttu mál sitt fyrir þinginu, en ekki síður vakti það athygli, er tveir kristnir Indverjar (HindúarJ, sem eru við nám hér í landi, á- vörpuðu þingið. Eg vildi að allir, sem eru i efa um gildi heið- ingjatrúboðsins, hefðu getað heyrt erindi þessara frábærlega

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.