Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1924, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.11.1924, Blaðsíða 15
333 nefndum af forseta þingsins. BróSurkveðju íslenzka kirkjufé- lagsins svaraði dr. Gotwald með ihlýlegri og fagurri ræÖu. DagblaÖ -— The Daily Dutheran — var gefiÖ út meöan á þinginu stóS, og flutti þatS daglega fregnir af gjöröum þess. Næsta þing — eftir tvö ár — verður haldiÖ í Richmond, í Virgina ríkinu. K. K. Ó. -------o------ Dómgreind Páls. Eftir Charles B. Jefferson. ÞaS var alsiða fyr á árum í hópi gálausra manna, aS nýja testamentinu var niðrað eins og falsriti, eða klaufalegum sam- setningi eftir s'kröksagnasmiði og loddara. En sú skoðun er nú úrelt fyrir löngu. HvaS svo sem menn hugsa sér um frásögur nýja testamentisins, þá verður það ekki hrakið> aS höfundarnir voru ráðvandir menn, og að þeir gjörðu sér far um aö skýra rétt frá þeim hlutum, er þeir höfSu séð, heyrt og reynt. Páll var híspurslaus maður og blátt áfram. Hjá honum var engin upp- gerð, ekkert hégómatildur. Gat ekki farið með tál- Ef Díó- genes leitar annars heims með skriðbyttunni eftir ráðvöndum manni, og hittir þar Pál, þá hrópar hann samstundis: “Eg hefi fundið manninn!” En hreinskilnin er ekki einhlít. Það er hægt að vera bæði hreinskilinn og óábyggilegur. Sumir þeir menn, er hættulegast- ir hafa reynst í allri sögu mannkynsins, voru áreiSanlega ráð- vandir. Það er hægt aS vera hreinskilinn og ofstækisfullur um leið, eöa glámskygn, eSa vitskertur. Geggjuðum mönnum geng- ur ekkert nema gott til, oft og tíðum. Maður, sem er viti sínu fjær, getur verið gagntekinn af þeirri hugmynd, að hann sé þjónn Drottins. Trúhneigðir menn eru stundum haldnir af einhverjum hugarburSi, og þá eru þeir öllu fasmeiri og hættu- legri fyrir hreinskilnina. Átyllur má finna fyrir þeirri grunsemd, að Páll hafi ekki verið al-heilbrigður andlega. Hann var vitrana-maður, og vér erum eSlilega veiktrúaðir í garð þeirra manna, sem sjá sýnir. Hann heyrði raddir, og oss er ekki grunlaust um menn, sem heyra eitthvaS, er vér ekki heyrum sjálfir. Hann féll stundum í dá, en slíkir menn eru ekki eins og fólk er flest, vitanlega. Plann varS stundum frá sér numinn; að eigin sögn var hann einu sinni hrifinn alt upp í þriðja hirnin, og öðru sinni upp í þann

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.