Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1924, Page 17

Sameiningin - 01.11.1924, Page 17
335 aldrei að biÖja” “ÞakkiS GuSi fyrir alla ihluti.” “Sólin má ekki setjast yfir reiöi yðar.” “Gefiö djöflinum ekkert færi.” “Látið ekkert svivirðilegt orð líða yður af munni.” “Notið hverja stundina.” “Keppið eftir kærleikanum.” “Verið ekki hugsjúkir um neitt.” “Elskan sé flærðarlaus.” “Látið ekki á- hugann dofna.” “Verið glaðir í voninni.” “Stundið gestrisni.” “Blessið þá, sem ofsækja yöur.” Haldið yður að hinum lítil- mótlegu.” “Ætlið yður ekki hygna með sjálfum yður.” “Gjald- ið engum ilt fyrir ilt.” “Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú ilt með góðu.” “Prófið alt; haldið því sem gott er.” —Öll þessi spakmæli og önnur svipuð, svo hundruðum skiftir, eru varanlega heilbrigð og sí-hressandi. Heimurinn þroskast aldrei upp úr slíkum lærdómi. Það skrifar enginn önnur eins orö á stuttum friðarstundum milli flogaveikis kasta! Hugsun Páls er meistaraleg. Rómverjabréfið má telja með þeim ávöxtum mannsandans, sem ódauðlegir eru- Sumir þeir andans menn, er mestir hafa verið á kristnum öldum, hafa verið frá sér numdir í andlegu útsýni þeirrar bókar, og hafa neytt allrar orku við að komast þar til fulls yfir aðal-efnið. Menn rakna ekki úr rotinu eftir krampaflog til að rita þess konar bækur. Páll fór engar gandreiðir hugsjónalega. Eyddi engum tíma við afkáralegar ímyndanir, eða í óþarfa-grufl. Honum var mein-illa við að 'slá vindhögg. Hann málar engar myndir af himninum eða helvíti; sleppir sér aldrei út í langorðar lýsingar af fögnuði útvaldra eða 'böli glataöra. Engin ólm áfergja ögrar honum til aö lyfta fortjaldinu. Hann kitlaði ekki eftir viðtali við framliðna; kærði sig ekkert um seiökonuna í Endór. Hug- urinn heilbrigður i hvíventa. Páll var enginn ofstopamaður. Hann var alls ekki sólginn í píslarvætti. Hann gekk úr greipum óvina sinna hvenær sem honum var auðið undankomu. Hann taldi sér enga niðrun í aö síga í vandhlaupi út fyrir múrinn í Damaskus, og hikaði ek'ki viö aö flýja á næturþeli burt frá óvinum sínum i Þessaloníku. Hann var ekki svo hégómlegur, að sækjast eftir óþörfum sárs- auka; vissi hvað tilkenning er og haföi beyg af henni. Kom sér undan höggum, hve nær sem hann gat. í öllu þessú kom hann fram eins og skynsamur maður. Páll var enginn krankleikamaður, stirfinn eða önugur. Komst ekki auðveldlega í hugaræsing. Hann var stiltur, þegar mikið lá viö; lifði hættu-þrungnar stundir án þess að ókyrrast; misti aldrei jafnvægið, þegar hann komst í óvæntar mannraunir-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.