Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1924, Page 19

Sameiningin - 01.11.1924, Page 19
337 er sagt, þá verÖ eg sem útlendingur fyrir þeim sem talar, og hinn talandi útlendingur fyrir mig. — Eg þakka Guöi, aÖ eg tala tungurn öllum yður fremur, en á safnaðarsamkomum vil eg heldur tala fimm orð meÖ skilningi mínum, til þess að eg geti frætt aÖra, en tíu þúsund orö með tungu, sem enginn annar skilur. Bræður, veriö ekki börn í dómgreind.” Páll fór ekki með fimbulfamb. Páll haföi frelsið í hávegum. “Til frelsis frelsaði Kristur oss” — sú hugsun var honum ósegjanlegt fagnaðarefni. En hann var ek'ki kreddufastur. Engin hugmynd sérstök, hversu fögur sem hún var, fékk að þoka öðrum úr sessi. “Sá sem er í sannleika frjáls, hann getur lagt frelsið í sölurnar fyrir aðra menn,” svo ritar hann kristnum mönnum, sem voru rétt ný- farnir að kynnast frelsinu. Enginn annar en sá, sem er glögg- skygn og djúpvitur, kemur auga á slíkan sannleika. Þann dag í dag eru til menn, og það gáfaöir menn, sem sjá hann ekki. Aldrei talaði Páll af heitari ákefö, heldur en þegar hann átti orðastað við lögmáls dýrkendur þjóðar sinnar; og sérstak- lega þegar hann sýndi þeim fram á þaö, aö umskurnin væri ekk- ert megin-skilyröi fyrir samfélagi mannsins við Guð. “Um- skurnin er ekkert.” Það voru hans orð. En hann varö ekki töfraður af þeim sannleika. Til voru þeir menn, sem ekki báru merki gamla sáttmálans, og voru hreyknir af; þóttust ganga að því vísu, að sú vöntun aflaði sérstakrar velþóknunar hjá Guði. En Páll var ekki haldinn af öðrum eins hégiljum. “Umskurn- in er ekkert—og umskurnarleysiö er ekkert. Hiö eina, sem nokkru varðar, er manndómurinn. Það, sem aflar velþóknunar hjá Guði, er ný skepna, nýr og betri maöur. Ekkert hefir neitt gildi fyrir honum, nema trú, sem starfar í kærleika.” Páll óð aldrei ský eða reyk. Hann stóð jafnan báöum fótum á jörðinni. Setti hugsjónum sínum tákmörk, kunni sér hóf í áhuganum. Svo fer ekki þeirn mönnum, sem vantar jafnvægið. Fjórtán vitni bera það, að Páll hafi verið heill maður andlega. Það eru bréfin hans þrettán og sögurit Lúkasar. Lúkas var læknir, og hann haföi komist í nána kynningu viö postulann. Og Páll var í augum Lúkasar enginn ofsjónamað- ur, heldur andlega hraust og hugumstór hetja, sem hann tignaði af öllu hjarta. 1 hverri málsgrein hjá Lúkasi finnum vér vott um þaö. Þegar Lúkas 'byrjar að rita um Pál, þá hverfa honum allir aðrir úr sögunni. Þar sem vér höfurn bréf Páls og sögu Lúkasar fyrir oss, þá verður aldrei hægt aö sannfæra heiminn um óheilindi andleg í

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.