Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1924, Blaðsíða 22

Sameiningin - 01.11.1924, Blaðsíða 22
340 kvenfélag safnaöarins. Var fyrst gengið til borðs og neytt rík- mannlegrar máltíöar. Var þar á eftir skemt með ræðum og söng. Séra Jóhann Bjarnason stýröi samkomunni allri. Söngflokkur stór, undir stjórn hr. Sigurbjörns Sgurðssonar, söng af mikilli list mörg- um sinnum. Björn B. Jónsson frá Winnipeg flutti tvær ræður, aðra á íslenzku, hina á ensku. Auk hans héldu stuttar ræður séra Sig- urður Christopherson og forstöðumaður lýðskólans á Árborg. Afar-fjötmenn var samkoma sú í Fyrstu lútersku kirkju, sem kvenfélag safnaðarins stóð fyrir á Þakkarhátíðinni 10. þ.m. Var og vandað vel til samkomunnar. Söngur frábærlega góður. Ung- ur mentamaður, J. Ragnar Johnson, lögfræðanemi, flutti snjalla ræðu og vandaða um aðstöðu hinnar ungu kynslóðar við hérlent þjóðlíf. 1 Jóns Bjarnasonar skóla var fæðingardags dr. Jóns Bjarna- sonar minst með samkomuhaldi laugardagskvöldið 15. nóv. Var þar flest skólafólkið saman komið og örfáir aðrir. Skólastjóri, séra R. Marteinsson, byrjaði samkomuna með stuttri guðsþjónustu og ræðu um þýðingu dagsins. Séra Hjörtur J. Leó hélt mjög langa ræðu um æfistarf dr. J. B. Hr. Arinbjörn Bardal talaði um dr. J. B. sem Good-Templar og bindindismann. Jón Runólfsson fór með kvæði það, er hann ort hafði við 25 ára prestsþjónustu-afmæli dr. J. B. í Fyrsta lút. söfn. Nokkrir lærisveinar skólans sungu milli ræða. Haust-basaar kvenfélagsins í Fyrsta lút. söfnuði í Wpeg stóð dagana 18. og 19. nóv. Var þar fjölmenni mikið. Ágóði af verzl- aninni var um $900.00. Flesta munina höfðu konurnar búið til sjálfar og fyrir það lagt á sig feikilega mikla vinnu. KristniboSs-félag eru nokkrar konur í Fyrsta lúterska söfnuði að mynda. Voru fyrstu drög til þess félagsskapar lögð áður en frú Karólína Thorlakson fór héðan og fyrir tilstilli hennar. Séra Kristinn K. Ólafsson, forseti kirkjufélagsins, var í heim- sókn hjf söfnuðunum í Argyle helgina 16. nóv. og dagana þar á eftir. Bandalagið í Fyrsta lút. söfn. gengst fyrir söngsamkomu, er hin fræga norska söngkona, frú Sofie Hammer-Moeller, heldur í kirkjunni 25. nóv.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.