Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1924, Síða 26

Sameiningin - 01.11.1924, Síða 26
344 engin tormerki á því, aS Shelby gæti fengið sér far—'lieimleiöis til Ameríku. En þetta; umtal mitt var með öllu þýðingarlaust. Híram hafði tekið þessa ákvörðun, og hún var óbreytanleg. “ ‘Nei, Mr. Ellis getur ekki unnið, hann er of veiklaður eftir þjáningar sínar. Þegar hann sagði til nafns síns á þilfarinn, þeg- ar eg bjargaði honum úr sjónum, þá sá eg alt í einu, aS hann sagöi satt. Eg kannaðist við hann. FaSir hans var húsbóndi minn og eigandi fyrir fjörutíu árum síðan. Þegar hann tók við eigninni af föður sínum, gaf hann öllum þrælum sínum frelsi, eg var einn á meðal þeirra. Hann kvæntist siðar, og þessi sonur er yngstur barna hans. Og hann hefir verið slæmur, en Drottinn hefir breytt honum og gert hann drenglundaðan og góðan. En hann verður að fara beint heim, heim til síns aldraða föður, og eg verð að hjálpa honum til að komast það, sem fyrst’. — Og það gerði hann. Þrem dögum eftir að við komum til Liverpool, var Rowland P. Ellisi lagður á stað heim með Cunardlínu skipi, vel uppfæröur og vel klæddur, með peninga í vösum sínum. “Þar kvöddum við aðstoðar-vélstjórann okkar; og það er mér gleðiefni að bera þess vitni, að Híram hafði þar á réttu, en eg á röngu að standa, að þvi er breytingu hans snerti. Hún var virki- leg. Þegar við síðar komum til San Francisco, biðu peningar þeir, er Híram hafði lánað EHis, hans þar, ásamt tilboði frá Mount Her- mon, Kentucky, að koma og dvelja þar, það sem eftir væri æfi hans, —• og mér til sorgar þáði hann það boð. “Mörgum árum síðar lá leið mín einnig þangað; þar fann eg tvo fornvini mína; hvíta manninn, elskaðan og virtan af öllum, er þektu hann; gamla blökkkumanninn, sí-starfandi í sínum fagra þjónustu-anda sem fyr. Rödd hans hafði að sönnu mist nokkuð af styrkleika sínum, en hann söng sálmana sem fyr, með gleðibros á vörum. Mr. Ellis sagðist hafa komið heim stuttu áður en faðir hans dó, en gamli matreiðslumaðurinn minn spurði mig, hvort eg væri frelsaður. Eg læt það ekki fylgja þessari sögu, hvaða svar eg gaf honum við spurningu hans. En ef bæn hins gamla blökku- manns; var ekki heyrð, þegar hann bað fyrir öllum skipverjum sín- um, þá veit eg þó um einn — tvo, — sem þessi gamli maður leið- beindi aftur heim, til föðursins himneska. Þess vegna spyr eg þig, Miss Were, þegar þú hefir heyrt frásöguna ,um dökka dánumanninn minn, — ert þú ekki hrifin, eins og eg var, og er ávalt, þegar eg hugsa til hans?’’ “Hann var hreinasta fyrirtak,” sagði Miss Were, um leið og hún klappaði saman fallegu höndunum sínum. “Og hvað heldur þú um hann, Mr. Gaddum?” En Mr. Gaddum var farinn, hann kærði sig ekki um að heyra sögulokin. o-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.