Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1924, Qupperneq 31

Sameiningin - 01.11.1924, Qupperneq 31
349 til, hvaö mundi það þá gagna? Hvernig mundi hann geta fengiö konuna til aö trúa sér? Ekki haföi María trúaö honum. Hann var að því kominn aö leggjast fyrir í tröppunum af þreytu og örvilnan. En þá fann hann aftur sömu atlotin og áður; það var komið viö enni hans mjúklega. “Hún er hjá mér,” hugs- ar hann. “Hún vakir yfir mér.” Og hann fékk nýjan mátt til að komast alla leið upp aö húsdyrunum. Þegar hann lauk upp, mætti hann konu sinni í dyrunum, rétt eins og hún hefði hlaupiö til og ætlað að verða fyrri til aö reka slá fyrir hurðina, svo aö hann kæmist ekki inn. Þegar hún sá, að það var um seinan, hörfaði hún undan, og upp að eldstónni og breiddi sig fyrir hana, eins og þar væri eitthvað, sem hún vildi fela eða verja. Svip hennar var í engu brugðið frá því sem var, þegar hann fór, andlitsdrættirnir líkastir því, aö hún væri öll kalin í framan. Davíð varð litið til barnanna í horninu. Þau sváfu væran. “Þau sofa enn þá,” segir hann við sjálfan sig. “Þá er þaö ógert enn. Eg hefi komið í tæka tíð.” Hann rétti fram höndina þangað, sem Grímur hafði staðið, og hann fann ekki betur, en að önnur hönd tæki í á móti. “Eg þakka þér,” segir hann lágt og röddin skalf. En í sama bili sortnaði hon- um fyrir augum. Hann reikaði að stól, og lét fallast á hann. Hann sá, hvernig konan horfði á hann. Svipað því mundi hún hafa horft á óarga dýr, sem brotist heföi inn til hennar. “Auðvitað heldur hún, eins og fleiri, að eg sé drukkinn,” hugsaði hann. Og enn lætur hann hugfallast. Hann var svo dauðþreyttur, en mátti ekki taka sér hvíld. Rúm var í kompú innar af; hann sár- langar aö fleygja sér upp í, svo að hann þyrfti ekki að halda sér uppréttum lengur, en hann þorði það ekki. Konan gæti gert hvað sem hún vildi, ef hann sneri við henni 'bakinu. Hann mátti til að halda sér uppi og hafa vakandi auga á henni. Hann reyndi að taka til máls. “Nú er Jódís ‘systir’ dáin,” seg- ir hann. “Eg kom til hennar og hét henni því, að eg skyldi verða þér góður og börnunum. Á morgun máttu senda þau á hælið.” “Hvers vegna ertu að ljúga?” segir konan. “Gústaf sagði Önnu lát Jódísar, og það með, að þú hefðir ekki komið til hennar.” Þá var Davíð öllum lokið; hann lét alveg bugast. Það setti að honum grát, og kom það þó flatt upp á sjálfan hann. Han.n grét af þeirri tilhugsun, hve gagnslaust væri að vera aftur horfinn í þa-nn heim, þar sem gengið er með lokuðum augum og loppnum hugsunum. Hann grét af þeirri meðvitund, að hafa með athæfi sínu hlaðið um sig þann varnargarð, er hann fengi sjálfur aldrei yfir komist. Hann grét af þrá, óslökkvandi þrá til þess, að fá taf- arlaust að ná samfundum við þá sál, sem var á sveimi í kring um hann, þótt ósýnileg væri.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.