Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1926, Síða 8

Sameiningin - 01.12.1926, Síða 8
358 ar, til að bera byrðar lífsins í udirgefni undir guSs vilja, til atS rækja köllun vora svo sem gefna oss af guöi — i fæstum oröum: til aÖ lifa mannsæmilegu lífi í s'amhljóÖan við kærleikshugsun guös, er hann gaf oss lífiS. “Til þess aö vér skyldum lifa fyrir hann” — til þess' aö kærleikans líf, eins og þaö sprettur upp af trúnni á hann sem op- inberun kærleika guðs, mætti vinna sigur á myrkrinu og kuldan- um og syndinni og dauÖanum í hjörtum vorum — til þess hefir guÖ látiÖ son sinn fæöast undir jarönesk mannlífskjör. Nítján aldir fullar erui liönar síöan nóttina helgu, er dýrðlegi jólaboð- skapurinn ómaði út yfir heiminn: “Yöur er í dag frelsari fædd- ur!” Hve hafa þessar aldir, sem síöan hafa horfið í tímans gröf, orÖið til aö staðfesta sannleika þes's boðskapar og enda á dásam- legasta hátt. Hver er maður til aÖ meta og mæla sáluhjálpleg áhrif Jesú á kynslóðirnar, sem á þessum öldum hafa runnið upp og horfið aftur? Saga mannkynsins veit ekki aÖ nefna neina mannlega veru, sem að áhrifum til nálgist hann. Sá kraftur guðs, sem streymt hefir út frá honum, hefir verið lífsafl mankynsins um raðir aldanna alt til Jiessarar stundar. Og enn í dag er Jesús sá sem einn getur hjálpað oss, til þess að líf vort verði í alla staði mannsæmilegt. Því að einvörðungu fyrir fulltingi hans, með því að lifa algerlega undir helgandi á- hrifum anda hans, verður líf vort eins og J>að á að vera. Enn í dag er J>að hann, ihinn mikli vinur syndarans, sem hjálpar oss til að þróa þá frjóanga eilífs lífs, sem guð hefir gróðursett í hverju mannshjarta, — hjálpar oss til að keppa að hinu háleita takmarki, sem oss er sett að keppa að, að “verða fullkomnir eins og vor himneski faðir er fullkominn.” Enn í dag ber hann os's boðskap- inn frá föðurnum: Gangið mér á hönd sem ástfólgin börn mín, og munuð þér fá að reyna hve kærleikur minn til yðar er einlægur. Vor himneski faðir gefi oss öllum náð síns heilaga anda til þess, að vér mættum sinna iþeim boðskap hans og tilmælum nú á fæðingarhátíð guðs sonar, og að opinberun föðurlegs kærleika hans, sem er gefin oss öllum með fæðingu sonarins', mætti ná sem föstustum tökum á sálum vorum. Þá er ekki að efa, að jólin muni verða oss öllum í fullum sannleika Gleðileg jól.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.