Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1926, Síða 15

Sameiningin - 01.12.1926, Síða 15
365 sem aldrei ætlu'Öu aö koma, voru samt komin, og barnið meö for- eldrum og systkinum, ásamt mörgu ööru fólki, komið í kirkju. TöfradýrÖ var á alla vegu. Kirkjan var ekki eins og hún var vön að vera. Hún varð að skreyta sig sem brúður, er gengur til móts við brúðguma sinn. Nú var hún í hátíðarskrúða sínum. Grænt skraut og glitrandi ljós eru á alla vegu. Hér er sannarlega gott að vera. Yndisleg stund. Sálmasöngurinn hátíðlegur. “Gott er að vér erum hér, herra,” sagði Pétur við frelsarann á ummynd- unarfjallinu. Sama tilfinning gagntekur hverja taug barnsins. Nú er kveikt á jólatrénu sjálfu. Ljósin eru þar eins og tindrandi stjörnur á himni. Tréð er iþar sjálft í sinni einföldu tign, en auk þess eru þar óteljandi glampar á margvíslegu litskrúði, svo ihefir barnahópurinn skrúðgöngu í kringum jólatréð og syngur: “í Betlehem er barn oss fætt.” Þá koma gjafir frá vinum. Mið- punkturinn í því öllu og orkulind sælunnar þar, er hann, sem fæddist á jólunum. Þegar barnið fer heim, er 'hugurinn fullur af yndisieik jólanna. Heilög jól á íslandi, yndisleg jól í Ameríku — barnslegur fögnuður í báðum. Nú bið eg yður, vinir mínir, að hverfa með mér að hinni fyrstu jólatréssamkomu, sem rnenn vita að haldin hafi verið. Það er aðfangadagur jóla. Um það leyti var íhaldin hátíð í Þýzkalandi og á Norðurlöndum, líklegast meðal alls fólks af ger- mönskum stofni, hátíð, sem bar nafnið jól í norrænu máii, á ensku “yule”. Sú hátíð mun hafa haldin verið til fagnaðar um það, að sólin hafði þá náð sínu lægsta stigi og hækkandi sólargangur var byrjaður. Sólarhátíð mætti nefna hana. Líf manna og skepna var komið undir hinum Shækkandi sólargangi. Þessvegna var á- stæða, fyrir þetta heiðna fólk, bæði til að fagna og fórna, fagna út af voninni um góða árstíð og fórna til þess að tryggja þá von sem bezt. í þessum tilgangi var stór hópur manna kominn saman í dimmum skógi, umlhverfis geigvænlegt eikartré helgað hinum grimma Þór. Ekkert dugði minna en mannafórn, enda var nú alt til reiðu til blótsins. Þá kemur þar í ihópinn Bónifacíus,—kristni- ■boði Þóðverjanna, ávarpar samkomuna og með eldlegri mælsku sýnir fram á fánýti falsguðanna. Sýnir hann svo í verki það sem hann prédikar í orði, 'heggur niður eikina og þegar engin reiði guðsins kemur i ljós’, kippir hann upp litlu, grænu furutré, ber það inn í hofið og segir, að það skuli minna á Krists-<burð — jötu- barnið — himnabarnið. Minna á fátæka fjárhirða, er vöktu yfir hjörð sinni og áttu þar sálir, sem gátu opnast mót boðskap himn- anna eins og rós á vordegi opnast mót sólunni;

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.