Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1926, Side 18

Sameiningin - 01.12.1926, Side 18
368 örSugleikarnir verSa á vegi vorutn. En án þeirrar trúar verður oft lítiö um varnir gegn áhyggjum og kvíöa. Og óbifanleg tru á gæzkuríka forsjón GuÖs', er leiÖi hvert og eitt af oss gegnum ver- aldir aÖ settu marki, léttir oss hvert verk og eykur oss sálarfriö og hugprýöi, á hverju sem gengur. Ef vér ættum til nægilega al- vöru og kynnum aÖ nota tímann meö nógu mikilli hagsýni, þá tækjum vér ákevöna stund dagsins til andlegra iÖkaná, meöal ann- ars til þess að verja oss gegn áhyggjum og kvíöa. Menn sannfærast óöum betur og betur um þaö á vorum dög- um, hve máttur hugsananna er mikill. MeÖ hugsunum vorum sköpum vér fyrst og fremst framtíð vora. Vér verðum það, sem vér hugsum. Áöur á tímum lögðu kristnir menn stund á andleg- ar iökanir, líkt og margir nú á líkamlegar iþróttir. Enginn efar nú lengur, aö líkamlegar íþrótta-iðkanir séu þeim afar nauðsynleg- ar, sem miklar kyrsetur hafa. En að líkindum eru andlegar iðk- anir mörgum sálum jafn-ómissandi. Vér ættum að setja sjálíum oss þær andlegar æfingareglur, sem hverjum og einum ríður mest á eftir lundarfari hans. Vor kynslóð hefir vissulega ástæðu til að athuga mátt og áhrif sefjananna. Þau eru mikil og merkileg og þeim má vafalaust beita til mikils góðs í sambandi við einlæga trú á forsjón Guðs. Sá, sem berjast þarf sérstaklega við áhyggj- ur, getur hagað andlegri iðkun sinni á þá leið, að hann tekur sér tómstund, annaðhvort að morgni eða að kvöldi, og hefir upp fvrir sér upphátt eöa aðeins í huganum eitthvað þessu líka trúarjátn- ing: Eg er guðsbarn. Gæzkuríkur Guð er faðir minn, sá hinn sami, sem drottinn Kristur treysti æfinlega og í öllum efnum. Öll tilveran er á hans valdi. Nægtabúr tilverunnar eru ótæmandi. Eg lifi í Guöi og i sambandi við uppsprettu alls. Eg get því aldrei komist í algjör þrot. Geri eg skyldu mína og liggi ekki á liði mínu, sér alvizkan með öllum sínum úrræðum mér borgið. Allur ótti sé fjarri mér. Hví skyldi eg hræðast, eg eilíföarbarniö, sem Guð hefir skapað til að láta ná þroska gegnum margar ver- aldir. Nú er eg aöeins í fordyrinu að hans dýröarheimum. Ætti eg ekki að vera hugrór þessa stuttu stund? Þessi jarðneska æfi líöur furðufljótt og er henni lýkur viö aðkomu hins líkamlega dauöa, þá flyzt eg aðeins til nýrrar og blíðari veraldar. Þá skilst mér betur alt, sem mér þótti erfiöast hér. Guðs vísdómsfullu ráö- stafanir birtast mér þar betur og þá sé eg, að afskifti forsjónar hans af mér voru meiri en mig grunaði. Eg skal vera hugrór og eg skal venja mig á að vera glaður og láta liggja vel á mér. Gæzka Guðs vakir ávalt yfir mér. Eg bý í skjóli hins hæsta.—

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.