Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1926, Qupperneq 21

Sameiningin - 01.12.1926, Qupperneq 21
37i ÆtíS og allstaÖar þar sem drýgja þarf dáö í þjónustu hins góÖa, sanna og rétta, er ýms tröll og óvætti að óttast? erfiÖleika og hættur, sem vekja ótta og geig. HugleysiS og óttinn segja: “VaraÖu þig! Þetta fer illa og skaSar þig! HvaÖ skyldi verða sagt og dæmt um þig? Þú verður að aðhlátri, veldur hneykzli, vekur gremju og reiSi hjá mörgum manni! Þér er betra aS ganga á bug við áhættuna, foröast eldinn, svo að hann brenni þig ekki, flýja vopnin, svo að þú verðir ekki sárum særður!” Þannig láta þær, hinar áleitnu raddir, sem reyna aS lama hetjuanda áræSisins, og veikja viÖleitnina til aS fylgja því fram, er sannfæring og samvizka segir aÖ sé satt og rétt. Einhver versta, lævís'asta og hættulegasta freistingin á vegi vorum er sú, sem leitast viS aS hræða oss frá að gjöra rétt og drýgja dáðir skyldurækni og karl- mensku í lífi voru. Og sá, sem fellur fyrir þeirri freistingu, verS- ur lama maður, andlega og siSferSislega, máttlaus' til góðra verka', gagnslaus á orustuvelli lífsins. Gagnvart þeirri freistingu er hún góð lífsreglan þessi: Hikaðu ekki við að gjöra það, sem þú ert smeikur við að hætta á ! Drottinn vor Jesús Kristur hefir að vísu ekki orðað þessa lífsreglu svona. En hann hefir á marga vegu kent hana, útslcýrt og rökstutt í öllu lífi sínu. 1 dæmisögu sinni um talenturnar legg- ur hann þessi orð í munn þeim manni, s'em hann nefnir illan og latan þjón: “Herra, eg þekki þig, að þú ert maður harður. Og eg varð hræddur, fór því burt og faldi talentu þína í jörðu.” Það var áhætta í því að leggja féð í verzlunarfyrirtæki, áhætta, sem hann var hræddur við. En húsbóndi hans svaraði: “Þess vegna bar þér einmitt að selja fé mitt í hendur víxlurum; þá hefði eg fengið mitt aftur með' vöxtum, er eg kom heim.” En þetta var sama sem húsbóndinn segði: “Þú áttir einmitt að gjöra þaö, sem þú varst smeikur við aö hætta á!” Það er jafnan áhætta samfara hverju því verki, s'em nokkuð er varið í. Þessvegna er árœðið lífsnauösyn. T>að hefir jafnan verið meginstyrkur þeirra, er komu góðu og þörfu verki í fram- kvæmd. Það sannar sagan og reynslan. Og meira en það: Á- ræðiö er eina leiðin til að geta gjört skyldu sína við Guð og menn og vera trúr því besta og dýrmætasta, sem í manni býr. Sá sem sífelt lítur um öxl, haltrar til beggja hliða, sýnir mönnunum ólikt andlit eftir því sem á stendur og iítilvægir stundarhagsmunir bjóöa, fer í manngreinarálit, hefir “tungur tvær og talar sitt með hvorri,” þorir ekki sjálfur persónulega aö standa við orð sín og gjörSir, sá maður er veslastur allra. Hann er eins og stjórnlaust og stefnulaust rekald á hafi lífsins'. Og öldur atvikanna kasta

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.