Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1926, Síða 26

Sameiningin - 01.12.1926, Síða 26
376 Horfur í Japan. NitSurl. Það er íhugunarvert, aö ekki eru liðin nema sextíu og tvö ár síðan japanskur mahur varð fyrstur landa sinna til að taka sidrn á vegum mótmælenda. Sá sem manninn skírði’var séra James H. Ballagh, trúboði frá Reformertu kirkjunni í Ameriku. Liðu svo sex ár áSur söfnuður yrði myndaður. En nú er svo komið, eftir síðustu sbýrslum, að x Japan eru 281,391 Mótmælendur, og talan eykst ár frá ári mjög ánægjulega. Rómversk-kaþólska kirkjan telur þar 270 söfnuði með 76,143 meðlimum, og gríska kirkjan 267 söfnuði með 36,265 safnaðarlimum. Og þó eru áhrif kristin- dómsins í raun réttri miklu meiri þar, heldur en skýrs'lur þessar sýna. Hér um bil alstaðar voru það 'menn úr riddarastéttinni, Samúrai svo nefndir, sem fyrstir tóku trú, en úr þeirri stétt er meiri hlutinn af leiðadi mönnum landsins á þessari tið. Af allri þjóðinni er hér um biil einn maður kristinn af þúsundi, en einn af hverju hundraði mentamanna. Japanskir kirkjumenn eru líklega meiri gáfurn gæddir og betur mentaðir að meðaltali, heldur eir kristið fólk í nokkru öðru landi, þótt ef til vill mætti finna ein- hverjar undantekningar. Sérstaklega eru kristnir menn liðmargir á meðal blaðamanna og skólakennara. Þegar eg heimsótti Japan í annað sinn, var mér sagt, aö kristna ritstjóra mætti finna í tuga- tali í Tókíó einni, og að fjórtán fulltrúar ií ríkisþinginu væri sömu trúar. Mai-gir liðsforingjar í landhernum og flotanum eru kristnir menn; svo og talsverður hluti verslunalýSsins og manna i æði'i stéttum. Einn af prófessorum ríkisháskólans í Tókíó hefir sagt, að heil miljón manns í Japan, sem standi utan vébanda kirkjunnar, hafi náð þeim skilningi á kristindóminum, að jafn- vel þótt þeir sé óskírðir, þá leitist þeir við að lifa eftir kenning- um Krists. Og Ókúma greifi hefir sagt, að jafnvel þótt varla væri 200,000 manns á meðlimaskrá kirkjunnar, þá yröi kristinna áhrifa vart á öllum sviöum þjóðlífsins. Séra J. G. Dunlop, s'em kom aftur til Japan úr orlofsferð á síðasta hausti, skrifaði þaðan í síðastliðnum Desember á þes'sa leið: “Aldrei hefir annar eins dagur runnið upp yfir héraði þessu eða öðrum héruöttm í Japan. I þessum mánuði hefi eg skírt fólk í fjórum bæjum; eg skírði sjö fullorðna i einni kirkju, en í annari fimtíu fullorðna og tvö böm, á sunnudaginn var.” Af tvö hundruð fimtíu og sex námsmeyjum í Hókúsei stúlknaskólanum í Sapporó, buðu sig fjörutíu fram til kristin- dómsstarfs á “ákvörðunardegi” fyrir nokkrum árum; þrjátiu og

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.