Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1926, Qupperneq 27

Sameiningin - 01.12.1926, Qupperneq 27
377 sex ásettu sér að leiÖa að minsta kosti eina per.sónu til Krists á árinu; áttatíu og sex meðtóku Krist og báðu um skírn, og sextíu og sex beiddust þess, aS bebið væri fyrir sér, svo aS þær mættu fá betri skilning á því, hvaS það væri aS vera kristinn maður. Biblíu- lestrarfélög og trúboSsbálkar í blööunum eru mjög vænlegir þætt- ir í verkinu. Hér um bil hver einasti trúboði 'hefir af biblíulestr- ar hópum aö segja, en í þeim eru stúdentar, kennarar og dag- launamenn. Nemendurnir eru ástundunarsamir og margir þeirra taka trú. Og kristniboðsdeildir í blööunum hafa borið harla góö- an ávöxt, og sýnir það herlega, aö margir, sem ekki fást til aö sækja kirkju, í byrjun aö minsta kosti, eru þó fúsir til aö hugleiða kristindóminn i einrúmi heima hjá sér. Annar merkisviöburöur, sem lengi verður í minnum hafður í sambandi viö kristnisögu Japana gjöröist 13. og 14. nóvember, árið 1923. Þá var “Kristilegt alþjóðarfélag Japana” (National Christian Counil of Japan) formlega myndað í Tókíó. Voru þar saman komnir erindrekar frá nálega öllum félögum eöa hópum kristinna manna þar i landinu, og lögöu smiöshöggið á félags- myndun þá, sem bráðabirgöanefndir höföu áður haft i undirbún- ingi. Japönsku blaði fórust þannig orð um hreyfing þessa, að með henni væri stórlega flýtt fyrir komu guðsríkis í Japan. Aö áhrifa kristindómsins heföi orðið vart í þjóðlífi Japana, það var ljóslega viðurkent með trúmálafundum þeim, sem hafnir voru í febrúar 1924. Fundir þeir voru haldnir aö tilhlutun Fíjoura stjórnarformanns 0g vildi hann með því móti fá andlegu leiðtog- ana sér til hjálpar í tilraunum þeim, sem gjörðar voru tii að hressa þjóðina við eftir hörmungarnar í landskjálftunum. Forsætisráö- herrann vildi bæta hugarástand þjóöarinnar, og kallaði fyrir sig forstöðumenn Buddadiofanna, Sjintó-hörganna og kristinna kirkna til að spyrja þá ráða. Þetta var sláandi dæmi um álit það, er kristindómurinn hefir getið sér sem trúarlegt afl í ríkinu. Þess konar viöurkenning hefði verið óhugsanleg fyrir fimtíu árum. Mitt í öllu umrótinu, sem nýlega hefir komist á hermálin, at- vínnrunálin og stjórnmálin í Japan,, gjöra þar ýmsar hreyfingar vart við sig, sem eftirtektarverðar eru. Snemma á þessu ári voru með keisaralegri tilskipun samþykt lög um “almennan kosningar- rétt,” sem í fyrra voru samþykt í ríkisþinginu. Lögin lækka ald- urstakmark kjósenda niður að hálf-þrítugu og auka kjósenda- fjöldann um tíu miljónir eða því sem næst. Ekki gefa þau kven- fólki kosningarrétt; en þó hefir framför kvenna í mentun, i áhrif- um, í alls1 konar félagslegri starfsemi, verið eitt af táknum nú- tíðarinnar í Japan. Alþýöu-skólakerfi stjórnarinnar er nú komið

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.