Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1926, Blaðsíða 28

Sameiningin - 01.12.1926, Blaðsíða 28
37§ á fastan fót um alt ríkið. Almenningsálitið er opinskárra en áður, og tilþrifamikil umbótaviSleitni, sem fæst viÖ a<5 efla hag verk- smiöjulýösins, talanarka vínnautn og sporna við ósiðsemi, er nú óöum aö færas-t í aukana. Enginn má þó imyndá sér aö Japan sé í þann veginn aö vei'ða kristið land, og ekki má heldur gjöra of l'ítið úr öröugleikunum, sem framundan eru. Það er að sönnu mjög gleöilegt að hugsa um það, sem þegar hefir áunnist. En Japanar eru 66 miljónir talsins, og enn er verkefnið yfrið nóg fyrir kristniboðsstöövarnar aö boða fagnaðarerindiö miljónum fólkk, sem japönsku söfnuðirnir ná ekki til, því aö þeir eiga fult i fangi meö að boða trúna hver í sínu nágrenni. Þaö eru enn á að gizka 44 miljónir Japana, sem aldrei hafa heyrt Krists getið. Þjóðin græddi ákaflega mikið fé í heimsstríðinu, en þá braust út efnishyggja eins og flóð yfir landið,fjárhagsmálarígur át víða um sig í þjóðlífinu; siðferðisástandið, sem vont var áöur, versnaði um allan helming, og stjómmálaókyrðin varö svo mikil, að þjóðin hafði aldrei séð annað eins. Hinn síðasti af stjórnmálaöldungun- um, sem veittu málum þjóðarinnar forstöðu í meira enn manns- aldur, er nú dáinn, og fáar hendur eru nú færar til þess aö halda um stjórnvölinn. Það er rót á öllu þjóölífinu; fiæyðandi rastir og þver-rastir, sem óvíst er aö hverju stefni. En ástand þetta leiðir því betur í ljós þörfina á fagnaðarer- indi Jesú Krists. Japan er réttilega talin eitt af kristniboössvæð- um þeim, sem sérstaklega mikið er undir komið. Þessi þróttmikla glaðvakandi, fjölhæfa þjóð gæti komið miklu til leiöar í þarfir guðsríkis. Endurfædd Japan mundi veröa áhrifadrjúg í Austur- Asíu, og jafnvel í öllum heimi. Sjálf þjóðareiningin, sem þar er svo sterk, myndi stórum auka framsóknar-afl hennar á vegum réttlætisins. Dugnaöurinn og hugrekkið,; sem Japanar eiga svo mikið af, fúsleikinn til að laga sig eftir breyttum ástæðum, fórn- fýsin, viljinn til að voga öllu, og lífinu með, fyrir upptekið mál, —allar þessar einkunnir, væri þær innblásnar og gagnteknar af anda Krists, myndi veita Japönum þann góðverknaðar-kraft, sem heimurinn hefir aldrei þekt áður. Endurfæðingar öflin eru þegar vinnandi, og er mikils af þeim að vænta. Margir vitrir Japanar eru farnir aö veita þeim stuðning af alefli. Og skapferli Japana gefur manni rétt til að vænta mikils góðs um árangurinn í kom- andi tíð. G. G.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.