Sameiningin - 01.06.1920, Side 1
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga,
gefið út af hinu ev. lút. kirlcjufélagi ísl. í Vestrheimi
XXXV. árg. WINNIPEG, JÚNÍ 1920 Nr. 6
Ársskýrsla forseta
til kirkjuþings 1920
Háttvirta kirkjuþing!
Það er mér mótlæti meira en eg fái skýrt frá, að eg'
ekkij á þnss kost að koma til kirkjuþings í þetta sinn.
Heilsa mín er nú svo biluð, að læknarnir banna mér alla
áreynslu um tíma, og samkvæmt fyrirskipun þeirra verð
eg að halda kyrru fyrir. Eg veit, að Drottinn hefir látið
mótlæti þetta að höndum bera mér til blessunar, og vil eg
leitast við að beygja mig undir vilja hans í Jesú nafni.
Vara-forseta, séra Kristni K. Ólafssyni, hefi eg gert
aðvart um að taka við störfum mínum á kirkjuþinginu,
og veit eg þeim vel borgið í höndum lians. Eg hefi leit-
ast við að undirbúa þingið sem bezt eg gat. Áætlaða
dagskrá þingsins hefi eg birt í Sameiningunni. Vitan-
lega er hún einungis til leiðbeiningar, og er á valdi
þingsins að breyta henni eftir þörfum. Með því að ekki
getur orðið af fyrirlestri þeim, sem eg átti að lialda í
Wynyard sunnudagskvöld 20. júní, vildi eg ráða til þess,
að á því kvöldi væri haldinn trúmálafundur þingsins, en
fundurinn fyrirhugaði í Mozart á laugardagskvöldið væri
almennur starfsfundur. Tveimur heimboðum hefi eg
tekið á móti og þegið fyrir þingsins hönd, eins og sjá má
af starfsskránni. 1 því sambandi vil eg geta þess, að eg
liefi lofað því þeim, er borið Iiafa fram heimboðið frá Les-
lie, að þinghlé skyldi vera á mánudaginn frá kl. hálf
ellefu f. h. til kl. átta um kvöldið. Vona eg að þingið