Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1918, Blaðsíða 21

Sameiningin - 01.02.1918, Blaðsíða 21
371 inn á ræðum hans hinum venjulegu, væri fremur annara vegna en sín sjálfs og um leið, að gefa mönnum lexíu í auð- mýkt, sem öllum væri svo nauðsynleg. Framan af prestsskap sínum heyrði Baxter til Biskupa- kirkjunni ensku. Var honum eitt sinn boðið biskupsem- bættið í Hereford, en þáði ekki. Var hann óánægður með ýmislegt, sem sú kirkja áleit gott og gilt og vildi koma á umbótum. Gat hann samvizku sinnar vegna ekki þegið biskupsembættið. pað væri yfirlýsing um, að hann gerði sig ánægðan með ásigkomuilagið eins og það var. Ekkert slíkt gat komið til mála. Varð þessi neitun Baxters, að þiggja biskupsembættið, tilefni til ofsókna, sem vöruðu mestan seinni hluta æfi hans. Var og dregið út úr sumum ritum hans, að hann væri óvinur ríkiskirkjunnar. Loks var honum stefnt og hann dæimdur í þunga sekt og langa fang- elsisvist fyrir illmæli um kirkjuna. Dæmdi dóm þann Sir George Jeffreys háyfirdómari. pykir isá dómur nú ein með hinum miestu háðungum í réttarfarssögu Englands. Baxter sat í fangelsi í átján mánuði. Lét stjómin hann þá lausan og gaf honum upp sektina. Er fullyrt, að stjórnin hafi gert það til að ná vinfengi hans og fylgi. Má af því marka, hve áhrif Baxters hafa verið víðtæk, að stjórnin gerir tilraun að fá hann á sitt band. úr því áformi varð þó ekki. Baxter hélt sínu striki, ritaði um þau mál, sem honum sýndist og á þann hátt, sem saimvizka hans bauð honum, hvort sem það var að skapi ríkis og kirkju eða ekki. peir voru samtíðarmenn, Baxter og Oliver Cromwell, sá er velti Karli konungi fyrsta úr konungstign, og gerðist einvaldur á Englandi. Baxter og Cromwell voru kunningj- ar, en aldrei vinir. Báðir voru miklir trúmenn og töldust báðir til sama flokks, Púrítanflokksins. Alt um það var fremur fátt með þeim. Cromwell sneyddi hjá að hlýða á prédikanir Baxters og lét sem sér þætti hann leiðinlega málskrafsmiki 11. Aftur má ráða af orðum Baxters, að hon- um þótti Cromwell fremur óþjáll og einþykkur. “pað sem Cromwell lærir verður að koma frá honum sjálfum”, er haft eftir honum. Kunningsskapur þessi mun aðallega hafa verið áður en Cromwell komst til nokkurra valda. Meðan á styrjöldinni stóð milli Cromwells og konungsvaldsins, átaldi Baxter báða flokka. Eftir að Cromwell var dauður (1658) og konungsvaldið endurreist, varð áköf deila um það, hvemig maður Cromwell hefði verið. Urðu margir til að dæma hann harðlega, kölluðu hann verið hafa hinn versta mann. Sérstaklega fékk hann þungan dóm fyrir líflát

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.