Sameiningin - 01.12.1909, Qupperneq 3
Má naðarrit til stuð'nings kirkju og kristincLómi íslendin<i«.
gejið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi fsl. í Vestrheimi
RITSTJÓRI JÓN BJAJiNASON.
XXIV. Arg. WINNIPEG, DESEMBER 1909. Nr. 10.
Getr þú haldið kristileg jól?
Sá, sem tillit tekr til dagsins, gjörir það vegna
drottins—Róm. 14, 6.
Vel er það gjört að taka tillit til jólahátíðarinnar.
Vitrleg er venja sú og heilsusamleg, að menn láti merk-
isdaga og tíðaskifti koma út á æfi sinni, svo að í bili
verði hlé á hverndagslegri vinnu og menn njóti fagnaðar
með brœðrum og systrum. Sá siðr styðr að því, að sú
tilfinning verði ráðandi, að lífsþarfir almennings eigi að
sitja í fyrirrúmi fyrir lífsþörfum einstaklinga. Það
rninnir oss, livern um sig, á að setja liið litla sigrverk
vort öðru hvoru eftir hinni stóru klukku mannkynsins,
sem gengr eftir sóltíma.
Þó er annað betra en að t-aka á þennan hátt tillit til
hátíðar þeirrar, sem nú er um að hugsa, og það er að
halda í raun og veru kristileg jól.
Ert þú til þess fús að gieyma því, sem þú hefir gjört
fyrir aðra, en muna eftif því, sem aðrir hafa gjört fyrir
þig? — ekki neitt að hugsa um það, sem lieimrinn skuld-
ar þér, en í þess stað að hugsa um það, sem þú skuldar
heiminum? — láta réttindi þín þoka sem mest þér úr
augsýn, en skyldur þínar fœrast fram á mitt sjónar-
sviðið, 0g tœkifœrin, sem þér eru veitt, til þess að gjöra
lítið eitt betr en skvldan bvðr, fremst á sjónarsviðið? —
sjá það, að náungar þínir með sínum þörfum eiga engu
minna rétt á sér en þú með þínum þörfum, og gjöra þér
far um að líta lengra en til þess, er þeir bera með sér