Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1909, Síða 4

Sameiningin - 01.12.1909, Síða 4
3°6 hið ytra, svo þú fáir liugsað um dýpstu þrá lijartna þeirra, þorstann eftir sannarlegum fögnuði? — kannast við, a'ð til þess hefir guð lang-líklegast látið þig verða til — ekki að þú hefðir svo eða svo mikið upp úr lífinu, heldr að þú yrðir lífinu — annarra manna lífi — til svo eða svo mikils gróða? — hætta mögli og kvörtunum um það eða það, sem er að í tilverunni, en í þess stað litast um eftir hentugum bletti, þar sem þú getir sáð fáeinum frœkornum til veilíðunar einhverra annarra? — Ef þú ert til þess fús að gjöra þetta einn dag eða svo, þá má með sörinu um þig segja, að þú sért til þess fœr að lialda jól — kristileg jól — í raun og veru. Ert þú til þess fús að lúta svo lágt, að þú fáir í- hugað þarfir smábarna og' eftirlanganir þeirra? — muna eftir veikleik og einstœðingsskap þeirra, sem ellin hefir fœrzt yfir? — kœfa niðr hjá þér allar spurningar um það, hve mikið vinir þínir elska þig, en spyrja sjálfan þig í þess stað, hvort þú elskar þá nóg? — láta þér vera hugfastar hjarta-byrðarnar, sem aðrir menn hafa til bruims að bera? — gjöra þér far um að skilja, hvað það muni vera, sem þá vardiagar helzt um, er heima eiga í sama húsi. sem þú, en bíða ekki eftir, að þeir segi þér það? — tendra lamoa þinn, svo hann láti frá sér meiri birtu, en minna af ljósreyk, og bera hann fyrir framan þig, svo skuggi þinn falli á bak við þig? — grafa gröf til þess að þar sé látnar í hinar ljótu hugsanir |)ínar. en búa út gróðrarreit fyrir góðar tilfinningar með greiðum aðgangi fyrir alla? — Ef þú ert til þess fús að gjöra þetta einn dag eða svo, þá má með sönnu um þig segja, að þú sért til þess fœr að halda jól — kristileg jól — í raun og veru. Ert þú til þess fús að trúa því, að kærleikrinn sé stQrkast afl í heimi — sterkara afl en hatr, sterkarn en það, scm illt er, sterkara en dauðinn — og að lífið bless- aða, sem rann upp í Betlehem fvrir nítján hundruð ár- um, sé ímynd og dvrðarljómi hinnar eilífu kærleiks- veru £ruð«? Sé svo ástatt fvrir þér, þá getr þú haldið kristileg jól.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.