Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1909, Qupperneq 6

Sameiningin - 01.12.1909, Qupperneq 6
3o8 tugs aldr. Sesar fer báli og braudi um Gallíu. Epí- fanes vanhelgar musteri drottins; grimmd og guðleysi ganga í fótsbrœðralag. Og hver kynslóð veitti hinni næstu arf og einkenni, „því bölvun í nútíð er framtíðar- kvöl.“ ílinn saklausi líðr ætíð fyrir hinn seJca. Það var myrkt í sálum mannanna. Og kuldinn var myrkrinu samferða. Það var vetr. Og flestum féll það vel í geð; það var þeim eðlilegt. En alvörugefnir og göfugir menn leituðu ljóssins; stálgrár myrkrveggr- inu umkrirgdi þá. Og þeir sögðu hver við annan: „Látum oss skapa ljós.“ 0g þeir fóru á stað og unnu eins mikið og orka var til. Og þeir fengu heiminum ís- blóm, sem stirndi af um vetrarnóttina. Menntanin var hjartalaus. En öli skepnan andvarpaði eftir vorinu. Og er mennirnir sváfu í syndunum, töluðu þeir með heiskju mikilli um afleiðingar syndanna. En syndin, drottning myrksins, gekk risafetum um jörðina og krafðist skatts af löndum sínum. 0g allir voru í skuld. Og hún á- varpaði herstjóra sinn, dauðann, og mælti: „Þessi er minn; hregð þú sigð þinni.“ Og mennirnir dóu. „Þeir elskuðu myrkrið meir en Ijósið, því þeirra verk voru vond.“ En í gegn um þessa sí-endrteknu sögu harms og liryggðar var mannkynið að læra að þekkja eigið eðli sitt, — skilja það, að synd er glœpr, en ekki að eins „vöntun gœða“. Og sálirnar sorgbeygðu andvörpuðu eftir ljós og yl. Þær hryggðust yfir sínum eigin sjálf- skapa-refsidómi. Og þær báðu um vorið. Mennirnir höfðu gegn um eldraunir aldanna lært það að nokhru, að þeir geta ekki bjargað sjálfum sér, lært að þekkja sjálfa sig. II. Stjörnurnar skinu skært og fagrt í geimninum um- hverfis jörðina. Svo hafði það verið frá ómunatfð. Og þar ríkti heilög ]iögn og friðr. Og þær — allr himn- anna her — aumkvuðust yfir jörðina. Öld eftir öld höfðu þær blikað á hveli himnanna, sí-endrtekið tákn þess, að drottinn er náðugr. öld eftir öld höfðu þær

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.