Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1909, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.12.1909, Blaðsíða 7
309 kallað mennina til iðrunar, — en mennirnir skildu ekki tungumál þeirra, því það var talað til lijartnanna. Og raddir þeirra liöí'ðu endrtekið viðvörunarorð spámann- anna fornu; samhljóma lireimr viðvarana drottins á kimnum og á jörðunni. En mennirnir liöfðu líflátið spámennina og grýtt þá; til stjarnanna náðu þeir ekki. En nú kveðr við rödd lirópandans í eyðimörku: „Tilbúið veg drottins; beinið brautir hans.“ Sterk- ar en nokkru sinni fyrr hljómar viðvörunarrödd drott- drottins í eyrum mannanna. Og mennirmr risu upp við olnboga og sögðu: „Hvað er þetta? Ný kenning? Lát- um oss athuga hana í tómi.“ Og flestir skeyttu rödd hrópaudans engu. — En það var ekki ný kenning. Hún hafði ætíð knúð á dyr mannanna, frá því þeir lokuðu idiðunum í Eden sakleysisins fyrir sjálfum sér. En stjörnurnar endrtaka með þúsund röddum: „Tilbúið veg drottins; beinið brautir hans.“ Og fagn- andi þoka þær sér til hliðar. Svo þagna þær. Þögul eftirvætning ríkir í geimi guðs. Ný stjarna birtist í austri. Ljós hennar lýsir jörð- ina. Það er sendiboði guðs til að auglýsa dýrð drottins öllum lýð. Því dýrð guðs og miskunn eru samkynja hugtök. Og braut þeirrar stjörnu er bein á liimninum meðal allra liinna. Ilún kallar til herskara liiminsins: „Tilbúið veg drottni; beinið brautir hans.“ Hún líðr á loft. Birta hennar breiðist tit um jörð- ina. Og mennirnir undrast fegrð hennar. „Hvað boðar þessi nýja stjarna?“ — spyrja menn og leggja á stað í langferð til að fá skýring á ráðgátu sálna sinna. (Þeir gjöra það enn í dag.) óljós draumr, en þó sterkr, um líkn, fyrirboði frelsis mannkynsins, ríkir í salum þeirra. Og þeir halda leið sína fagnandi. Því stjarnan skín augum þeirra. Hún líðr á loft. Yitrir menn á öllum tímum fylgja leiðbeinanda Ijósi guðs, því livergi nema þar er vísdóm að finna. Stjarnan líðr um loftið. Hún nemr staðar yfir Betlehem. Og hún bendir skínandi geislafingrum sín- um á hrörlegt hreysi mállausra dýra og segir: „Fagnið

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.