Sameiningin - 01.12.1909, Side 9
3ii
Hvað merkja jólin fyrir big?
■ Eru þau fœðingarhátíð frelsara bíns?
Sé svo, þá hefir þú eignazt jólaljósin í hjarta þitt.
Gefi þá drottinn Jesús þér gleðileg jól. Hann hefir
gefið þér sjálfan sig- og alla góða hluti með sér. Þá
hefir bráðnað allr ísinn úr hjarta þínu, því hann veitir
eilífan gróðr; öll beiskjan við heiminn, því hann elskar
alla menn; allt drambið, því liann einn er voldugr; allt
,mvrkrið, því hann er Ijós sálar þinnar. Þá er tilgangi
komu hans í heiminn náð hjá bér.
Og þá hefir hann veitt þér frið. Þrátt fyrir öll um-
brot heimsins getr |)ú þá fullum rómi tekið undir lof-
söng en^lanna: .,Dýrð sé guði í upphæðum, friðr á jörðu
og velþóknan vfir mönnunum!“ Og þá ber þú einnig
bróðurhug til allra manna guðs vegna. Hann eretr ekki
vaxið nema á kristinni rót. — Hann. drottinn sjálfr, hef-
ir gefið þér sinn frið.
Svo haltu þá jól þín í guðs nafni. Jesús veiti þér
jó^agjöfina dýrmætustu: að „andi guðs vitni með þínum
anda, að þú sért barn guðs, en samarfi Krists.“
-------------------------o-------
Vissan um eilífa sáluhjálp.
Eftir séra Jóliann Bjarnason.
Oft verðr maðr var þeirrar skoðunar, að í trúarefn-
um sé ekki um neina vissu að rœða. Fullkomin vissa sé
þar ekki til. Það sé líka alveg jafnt ákomið þar fyrir
öllum. Enginn viti þar meira en annar. Allir eiginlega
óvissir, alllr gruflandi, allir fálmandi eftir sannindun-
um, en enginn viss á nokkurri tíð, að honum hafi auðn-
azt að finna sannleikann. Með þessu móti er trúin gjörð
að tómri fmyndan, ágizkan, óvissu. Og það er langt frá
að allir þeir, sem slíka skoðun hafa, sé mótstöðumenn
kristninnar, heldr munu margir þeirra vilja vera kristn-
ir menn, játa trúna á frelsarann og vilja gjöra eitthvað
til að efla guðs ríki á jörðinni. En svona löguð trú er
stór-gölluð. Hún er fagnaðarsnauð og máttlaus sem
styrkr og vörn í stríði lífsins. Trúarreynslan verðr ann-