Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1909, Qupperneq 14

Sameiningin - 01.12.1909, Qupperneq 14
3l6 4. Verðlausar dýrustu skrautfórnir skarta; skaparann hyllir ei gullpyngjan væn; dýrðlegra miklu er dýrkanda hjarta, drottni er þekkari aumingjans bœn. 5. Dag þinn lát, mætasti morgunsins sona ! myrkrunum renna, og hönd þína’ oss Ijá; austrœna stjarna! er veg gyllir vona, vísa oss barns-ásján frelsarans á. —-------o------- Jólahald. Eftir séra Kristinn K. Ólafsson. Svo telst til, að á annarri eða þriðju öld hafi fyrst verið stofnað til hátíðar í kristninni til minningar um fœðing frelsarans. Ein frásögn eignar upptökin að því Telesphorus biskup í Róm (128—139). Er þess einnig getið, að hann hafi liðið píslarvættisdauða, og ein sökin gegn honum hafi verið sú, að liann stofnaði til þessa há- tíðarhalds. Mætti líta á það sem vísbending um, hve mikilvægt fyrir kristna menn hátíðarhald það hafi verið í augum heiðingjanna úr því þeir ömuðust svo mjög við því. Enda er víst, að jólahald samboðið viðburðinum, sem þá er minnzt, hefir ætíð mjög blessunarrík áhrif. En gagnstœtt jólahald er auðvitað til hins mesta tjóns. Jólin koma þvínær á sarna tíma sem miðsvetrarhá- tíðir heiðingjanna. Margar siðvenjur, sem áðr voru tengdar við þær hátíðir, voru alls ekki lagðar niðr, þeg- ar jólin urðti kristin hátíð, heldr að eins hreinsaðar af heiðinglegum ósiðum og þeim gefin ný kristileg merk,- ing. Dœmi upp á þetta er hin alkunna og fagra frásögn um uppruna jólatrésins, sem nú á tímum á svo mikinn þátt í jólahaldinu. Er Bonifacius hinum helga eignað það að hafa komið því inn í jólahaldið. Var hann trú- boði meðal germönsku þjóðanna í Þýzkalandi, sem nú er. Þar var siðr að safnast saman til blóta á miðsvetrartíð- inni við hinar svo nefndu „helgu eikr“. Stefnan var

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.