Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1909, Side 23

Sameiningin - 01.12.1909, Side 23
321 ekki um laugan aldr, og ef til vill aldrei, sýnt jafn-mikiÖ öjáifstœði og manndóm sem nú í kirkumálunum vestra. Eg verð að játa, að eg liefi ekki fyrr en nú lært að meta verk og þýðing kirkjufélagsins. Skoðun mín á kirkju- iegum félagskap vestra hefir áðr hallazt heldr í þá átb- ina, að ætla hann hvíla fremr á ytri samvinnu en á innri þörf hjartnanna; og því var mér það enn meira gleðiefni, að hann liefir nú reynzt hvíla á grundvelli lifandi trúar- sannfœringar, að trúarjátning margra félagsmanna hef- ir nú reynzt vera persónuleg og hjartfólgin eign þeirra, sem þeir hafa varið eins og mönnum sœmir að verja það, sem þeirn er dýrmætast. Það er nærri því undarlegt, að nokkur maðr með óbrjálaðri skynsemi skuli hafa getað fengið það af sér að ráðast á kirkjufélagið fyrir framkomu þess í deilu þessarri. Eg hygg, að ef vel er athugað, verði því naumast neitað, að það hefir gengið svo langt í sátta- tilraunum sínum, að lielzt til nærri hefir verið höggvið kröfum sjálfs málefnisins; og auðveldlega liefði sú getað orðið afleiðingin, að þeir menn, sem samkvæmt afstöðu sinni allri gagnvart grundvallaratriðum þess ekki gátu staðið í því nema sér til minnkunnar og enn meira tjóns og því til vandræða, liefði setið þar kyrrir; en sem betr fór lét guð þeirra eigin ofsa keyra þá á dyr. Og fyrir það þakka eg honum innilega. En um það bið eg hann, að kærleiki hans fái leitt þá inn um dyr frelsisins og að vér mættum verða eitt í Jesú Kristi, hvort sem þeir svo ganga að nýju inn í þetta kirkjufélag eða ekki. Það hafa verið sögð svo mörg og góð orð af félags- ins hálfu um það, hvernig þeim, sem í raun og veru eru ósamþykkir grundvallarskoðunum þess, beri að skilja við það, og hvernig barátta þessi ætti að knýja þá, sem með því standa, til að flýja: með enn meiri alvöru en nokkru sinni áðr á vald guðs miskunnar; og vissulega yerðr þessi raun til þess að efla trú þeirra á guð og orð ; hans. Drottinn hefir jafnan stutt og huggað vini sína því frábærlegar sem ytri eða innri neyð hefir átakanleg- s ar að þeim kreppt. Guð gefi vðr öllum náð til að líða fyrir hans nafn

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.