Íslendingur - 03.02.1922, Side 1
ISLENDINGUR
Talsími 105. Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson. Aðalstræti 16.
VIII. árgangur.
Akureyri, 3. Febrúar 1922.
5. tölubl.
Hrakfarirnar.
Bæjarstjórnarkosning fór fram í
Reykjavílc á laugardaginn var. Fimm
fulltrúa átti að kjósa, og um 2 lista
var að velja, A-Iistinn, sem kallaður
var borgaralistinn og B-listinn, sem
Alþýðuflokkurinn stóð að. Úr bæj-
arstjórn höfðu gengið 3 verkamanna-
fulltrúar og tveir af hinum og héldu
flestirað sömu hlutföll mundu halda
sér eftir kosningarnar. En hvað
verður uppi á teningunum? A-list-
inn fær nærfelt helmingi fieiri at-
kvæði en verkamannalistinneða rúm-
iega 3300 atkv. á móti 1700 atkv.
og munaði að eins örfáum atkv. að
A-listinn fengi lcomið 4 fulltrúum
að, þó hlutföllin yrðu 3 og 2. Ófar-
ir B-listans urðu því hinar hrakleg-
ustu, og sýna ljóslega afstöðu
Reykvíkinga gagnvart leiðtogum Al-
jaýðuflokksins.
. Menn þeir, sem mest hafa verið
ráðandi í Alþýðuflokknum nú upp
á síðkastið, hafa allir verið æsinga-
menn í svæsnara lagi, og nú var
tjaldað á lista þeirra einvörðungu
mönnum af sama sauðahúsinu.
Verkamannafulltrúarnir sem úr bæj-
arstjórninni gengu voru allir hæg-
fara og gætnir og stétt sinni til
sóma, en þeim var nú kastað til
hliðar sem óhæfum, enginn þeirra
fékk að komast á listann, og þó
hafði einn þeirra verið bæjarfulltrúi
um langt 9keið og þingmannsefni
flokksins við síðustu kosningar. Nú
áttu þeir Héðinn Valdemarsson,
skrifstofustjórí Landsverzlunarinnar
og Hallbjörn vararitstjóri Alþýðu-
blaðsins og þeirra líkar að fylla
sætin.
Hamfarir Alþýðublaðsins í kosn-
ingabaráttunni voru sóðalegar og
spiltu fyrir flokknum. Að kalla and-
stæðinga sína manndrápara og morð-
télafanta, eins og það gerir hlýtur
að vekja viðbjóð allra rétthugsand'
manna á blaðinu og veikja málstað
þess flokks sem það er málgagn
fyrir. Að atgangur blaðsins hefir
haft þessi áhrif sést hvað berlegast
af því að flokkurinn fær nú 500 atkv-
faerra en hann fékk fyrir ári síðan-
Úrslitum kosninganna mun al“
nient fagnað um land alt. Pau sýna
að alþýðan í Reykjavík er ekki blind"
u>' leiksoppur ofstækisfullra lýð-
skrumara og að hún fylkir sér ekk'
um þá menn, sem vilja fótumtroða
landslög og rétt. Hér gafst henni
j fyrsta sinn tækifæri að sýna livern-
Jnín liti á Nóveniberuppþotið og
hún sýnir sigj fullkominni andstöðu
við afstöðu leiðtoga sinna. Var slíks
að vænta, þó öðruvísi væri um spáð
af mörgum.
Daginn eftir hinn mikla ósigur
jafnaðarmanna í Reykjavík, gerðist
sá atburður hér á Akureyri sem
einnig er í frá sögur færandi.“Þann
dag hélt Verkamannafélag Akureyr-
ar aðalfund sinn og gerði fullkomna
stjórnarbyltingu. Feldu æsingamenn
þá, er verið höfðu við stýrið und-
anfarandi og kusu í stjórnina í þeirra
stað gætna og ráðdeildarsama íhalds-
menn. Munu þau umskifti að sjálf-
sögðu reynast happavænleg fyrir
Verkamannastétt kaupstaðarins.
99
íslenzka krónan.
Fréttir frá Kaupmannahöfn segja
að kaupmannaráðið þar hafi sam-
þykt að gangasí fyrir því, að fast
gengi yrði sett á íslenzku krónuna
og hafi snúið sér í þeim efnum til
Pjóðbankans danska, sem hafi
fallist á tillögur kaupmannaráðs-
ins og að bráður bugur muni undinn
að því að koma þessu í framkvæmd.
Prívatbankinn danski var farinn að
taka íslenzka seðla er síðast fréttist
gegn 25°/o gengismun og af ný-
komnum bréfum sézt að íslenzkir
seðlar hafa verið keyptir með 30°/o
afföllum) Símfregn til blaðsins í gær
úr Reykjavík segir þó krónuna nú
í 77 aurum.
co
Landsverzlunin.
i.
Landsverzlunin, sem rekin hefir
verið frá upphafi á ríkisins kostnað,
sækir tilveruheimild sína til laga um
heimild fyrir ríkisstjórnina til ýmsra
ráðstafana út af heimsstríðinu, sem
náðu staðfestingu 1. febr. 1917 og
viðauka við þau lög frá 30. júlí
1918. Landsverziunin var hrein og
bein ófriðarráðstöfun, gerð til þess
að draga úr afleiðingum styrjaldar-
innar fyrir landið meðan hún stæði
yfir. Nú eru liðin rúm 3 ár síðan
að ófriðnum lauk og enn þá er
þessi ófriðarráðstöfun í gildi.
En áður en vér förum að rita
um núverandi tilverurétt Landsverzl-
unarinnar, skal farið nokkrum orð-
um um starfsemi hennar og rekstur
á liðnum árum. Er þá ábyggileg-
ast, að birta samdrátt úr reikning-
um hennar, eins og hann er iagð-
ur fram á síðasta Alþingi, með því
yfirliti og skýringum, sem meiri hluti
viðskiftanefndar lætur honum fylgja.
Samdrátturinn sýnir aðalniðurstöðu
fekstursius ár frá ári.
Samdráttur
úr reikningum Landsverzlunarinnar frá 1914 til ársloka 1920.
Vörusala Arður Útist. skuldir Vöruleifar Samanl. varasjóður
1914 —80A ’17 3131619,00 + 313505,37 703250,70 556306,60 313505,37
1917s,A-8l/i2 7764954,00 590000,00 3011917,18 4225237,88 903505,37
1918 . . . 16293231,00 418534,40 1568875,87 7325927,55 1322039,77
1919 . . . 20865949,00 860932,79 1348558,00 1987772,90 2182972,56
1920 . . . 11506000,00 347566,44 1995967,39 2279271,09 1835406,12
59561753,00
Til skýringar skal þess getið, að í
dálkinum .Vörusala. felast allar seld-
ar vörur, að meðtöldum kostnaði og
álagningu; dálkurinn »Arður« sýnir
rekstrarafgang hvers árs, þar í talinn
arður af vörusölu, gengismismun o.
fl.; í næsta dálki felast eingöngu skuldir
hérlendra/ viðskiftamanna verelunarinn-
ar, ein9 og þær eru í hver árslok, en
í síðasta dálkinum er varasjóðurinn
samanlagður frá ári til árs.
Trá því verzlunin byrjaði 1914 og
til 30. apríl 1917 var hún rekin bein-
línis undir umsjón atvinnumáladeildar
stjórnarráðsins. Eins og samdráttur-
inn sýnir, var viðskiftaveltan lítil á því
tímabili, í samanburði við það, sem
síðar varð. Frá þessu tímabili hefir
nefndin ekki haft annað til meðferðar
en lokareikning tímabilsins. Frá 1.
maí 1917 hefir verzlunin verið rekin
sem sjálfstæð stofnun með sérstakri
stjórn, og eftir það eykst veltan mjög
niikið, og stafaði það í fyrstu af því,
að ráðstafanir ófriðarþjóðanna garðu
það óhjákvtemilegt, að draga miklu
meira af verzluninni í hendur ríkisins
en áður hafði verið.
í ófriðarlokin átti verzlunin miklar
birgðir af kolum og salti, sem hún
seldi með miklu tapi. Tapið nam:
á salti . . kr. 499936,84
á kolum . — 1036153,78
Samtals kr, 1536090,62
Petta tap er ekki talið verzluninni
til útgjalda f reikningum þeim, sem
ofanritaður samdrittur er tekinn úr.
Ákveðið hefir verið, svo sem kunnugt
er, að láta rikissjóð borga þetta tap
og vinna það upp með sérstökum
tolli á kolum og salti. Ef landsverzl-
unin hpfði átt að bera tapið, væri
varasjóður hennar auðvitað þeirri upp-
hæð lægri, en mundi þó hafa numið
samkvæmt reikningunum íárslok 1919
kr. 646881,94.
Niðurstaðan af verzlunarrekstrinum
1920 er sú, að varasjóðurinn lækkar
um kr. 347566,44, og er sú upphæð
þá reikuingslegur halli á rekstrinum
það ár. Orsökin er sú, að verzlunin
átti miklar birgðir af kolum í árslok
1920, og var ákveðið, að færa verð
á þeim niður úr 300 kr. í 200 kr
tonnið frá áramótum, en þessi verð-
lekkun vörubirgðanna er tekin inn á
reikninginn fyrir 1920, og nemur hún
kr. 818594,56. Par upp f keraur svo
viðskiftahagnaður ársins 1920, sem
stafar að töluverðu leyti frá gróða á'
gengi dollara.
Viðvíkjandi horfum fyrir afkomu
verzlunarinnar yfirstandandi ár, verður
að geta þess, oð snemma á árinu var
söluverð kolanna enn fært niður úr
200 kr. f 140 kr. fyrir tonnið, og
hlýtur það tap, sem af þessu stafar,
að rýra mjög útkomuna á þessu ári,
jafyvel svo, að rekstrarhalli komi fram
á ársreikningnum og vara6jóðurinn
minki eitthvað þess vegna.
Til frekari glöggvunar um það,
hvernig högum verzlunarinnar er nú
háttað, er hjer birtur útdráttur úr efna-
hagsreikningi hennar 31, des. 1920.
E i g nir.
1. Fasteignir . . . kr, 142141,93
2. Ýms áhöld . . - 13219,20
3. Vörubirgðir . . — 2279271,09
4. ínnieignir í bönkum — 1370684,46
5. Skuldir innl. við-
skiftamanna . . — 764914,64
6. Skuldir útbúa veril-
unarinnar ... — 562496,65
7. Víxlar .... — 831585,56
8. Peningar í sjóði . — 915848,97
Samtals kr. 6880162,50
S k u I d i r.
1. Innieign innl. viðsk.m.kr. 28903,21
2. Inneign útl. viðsk.m. — 1950450,04
3. Inneign ríkissjóðs . — 2941754,01
4. Fyrningarsjóður . — 23649,12
5. Ólokin viðskifti . — 100000,00
6. Varasjóður . . . - 1835404,12
Samtals kr. 6880162,50
«
Af vörubirgðum eru kr. 1463266,44
í koium og koksi, hitt í öðrum vör-
um.
Af 6. eignalið, skuldum útbúanna, er
nálega 160000 kr. í vöruleifum og ná-
lega 400000 kr. í útistandandi skuld-
um hjá skiftavinum útbúanna.
. Útistandandi skuldir verzlunarinnar
hafa því verið alls um síðastliðin ára-
mót;