Íslendingur - 03.02.1922, Page 2
18
>lslendingur< kemur út á hverjum
föstudegi og aukablöð þegar ástæða er til.
Argangurinn kostar sex krónur. Gjalddagi
fyrir 1, júlí ár hvert. , Uppsögn'skrifleg,
bundin við áramót, sé komin til áfgreiðslu-
manns fyrir 1. október.
Auglýsingar og innheimtu annast rit-
stjórinn. Skrifstofutími kl. 10—12 og 5—7.
Afgreiðslumaður blaðsins er Hallgrímur
Valdemarsson Hafnarstræti 84.
Samkv. 5. eignalið kr. 764914,64
Hjá útbúunum . . — 399467,19
Víxilskuldir . . . - 831585,56
Samfals kr. 1995967,39
Nefndin hefir haft til alhugunar skrár
yfir þessar útistandandi skuldir allflest-
ar, og telur meiri hlutinn að gera
verði ráð fyrir einhverri rýrnun á þeim,
sem ekki er tiltökumál, þar sem um
svo mikla vellu er að ræða og svo
þröngt, sern nú er í ári, og er ekki
unt, að segja fyrirfram, hve mikil sú
rýrnun kann að verða, en ekki er sjá-
anlegt, að hún þurfi að verða mjög
veruleg.
Að öliu athuguðu telur meirihlutinn
óhætt að áætla, að varasjóður verzl-
unarinnar muni verða um næstu ára-
raót full 1 milj. kr. ef fyrirtækinu verð-
ur þá lokið, og er það nokkuð minna
en sú upphæð, sem ríkissjóður greiðir
verzluninni til þess að standast hið
fyrra tap á kolum og salti.
Því fer mjög fjærri, að nefndin vilji
álasa ríkisstjórninni eða stjórn lands-
verzlunarinnar fyrir það, að hafa ekki
gert þessa ófriðarráðstöíun að gróða-
fyrirtæki. Meiri hluti nefndarinnar vill
ekki heldur fara úí í neinn samanburð
á aðstöðu landsverzlunar og frjálsrar
verzlunar, en einungis benda á, að
auk þeirrar aðstoðar, sem ríkissjóður
veitir fyrirtækinu með greiðslu kola-
og salttapsins, þá hefir verzlunin haft
mjög hagkvæm afnot af skipastól lands-
ins og stuðst við takmarkanir á inn-
flutningi á vissum vörutegundum til
annara, og þetta alt á þeim tírnum,
er innflutningur á vörum gat naumast
gefið tap.
Þegar gera skal tillögur og taka á-
kvarðanir um framtíð þessa verzlunar-
reksturs ríkisins, virðist oss fyrst verða
að h'ta á það, að aldrei mundi hafa
verið til þess stofnað, ef ekki hefði
gerst þeir viðburðir í heiminum, sem
komu meiri truflun á alt viðskiftalíf en
dæmi eru til áður. Er þá einkum átt
við það, að allskonar þömlur lögðust
á verzlun og siglingar, og það svo,
að sijórnir ófriðarþjóðanna heimtuðu
afskifti viðkomandi ríkisstjórna um út-
og innflulning, og varð þetta þess
valdandi og beinlfnis orsök þess, að
til landsverzluaar var gripið.
Það hefir þó eflaust vakað jafnt fyrir
þingi sem þjóð, að hjer væri að eins
um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, sem
afnema bæri, þegar alt kæmist á rjett-
an kjöl að ófriðnum loknum.*
(Framh.)
Karlmannaföt o. fl.
sauma eg fyrir af^rlágt verð.
Sveinbjörg Kristjánsdóttir,
Brekkugötu 19
Til sölu
lítið hús á Oddeyri. .R. v, á,
íslendingur
Hálfsögð saga.
»Dagur« frá 19. jan. minnist á fram-
komu mína á þingmálafundi á Grund
nieð sinni vanalegu kurteisi eða óhlut-
drægni!! Það er auðheyrt af sögunni,
að einhver miður góðgjarn náungi
færir honum sögurnar og ritstj. lætuH
svo blað sitt flytja þær almenningi.
Fyrsta mál á dagskrá var um það,
að fá sérstakan læknir fyrir héraðið
— Eyjafjörð — og annan læknir fyrir
spítalann á Akureyri. í umræðum máls-
ins mátti skilja svo, að héraðslæknir-
inn ætti að segja af sér, og hann fengi
svo yeitingu fyrir læknisembætti við
Akureyrarspítala að viðbættum bænum.
Engin umsögn var frá héraðslækni um,
að hann vildi þessa breylingu, eða að
hann yildi leggja niður-héraðslæknis-
embættið, í von um að fá veitingu
fyrir Akureyrarbæ og spítalanum. Það
var svo að skilja á þeim, sem í mál-
inu töluðu, að hjá þeim væri veiting-
arvaldið, því héraðslæknirinn vildu
þeir eigi missa frá spítalanum, eins og
ekkert vit hefði verið í. Málið var
svo illa undirbúið frá þeirri hlið á
fundinum, þar eð engin yfirlýsing lá
fyrir frá héraðslækninum, að það út
af fyrir sig hefði verið næg ástæða
að fella málið.
En svo var að líta á fleiri hliðar
málsins. Þingmennirnir gáfu það ský-
laust upp, að ef Eyfirðingar ætla að
fá nýtt læknisembætti stofnsett á Ak-
ureyri, mundi það leiða til þess, að
5 — fimm — önnur læknaembætti
á landinu yrðu stofnsett. Þörfin væri
svo brýn í fleiri stöðum. Annar þing-
maður talaði um hrossakaup, og hvað
þau gætu í ýmsum tilíellum verið
bráðnauðsynleg, og gat maður dregið
út úr því, að læknisembættð fengist
ekki nema með hrossakaupum við aðra
þingmenn, sem vildu fá ný læknahér-
uð stofnsett. Þessi skýring þingmann-
anna um, að fara að stofna á þessum
fjárhagslega örðugu tímum 6 ný lækna-
embætti, mun hafa valdið því, að mál
þetta fékk andstöðu. Eg skal tilnefna
einn fundarmann, Bergstein í Kaup-
angi, sem talaði á móti málinu og
greiddi atkvæði á móti því. Hann
lýsti hvernig læknaskipun væri í Ár-
nessýslu, sem hann er uppalinn, og
eftir lýsingu hans er þar miklu lakara
með læknaleysi en hér í Eyjafjarðar-
sýslu. Þegar þess er gætt, að Berg-
steinn í Kaupangi er varamaður í
stjórn Kaupfél. Eyf. og í stjórn í út-
gáfuféjagi »Dags< og þræðir þar senni-
lega hina »kristilegu grunnlínu«, þá
má merkilegt heita, að mér einum er
kent, að eg »gekk á móti því velferð-
armáli héraðsins, að því sé með lög-
um trygð læknishjálp sem öðrum hlut-
um þessa lands«. Eftir orðum þing-
mannanna, sem »Dagur« heldur þó af,
er það rangt hjá ritstj., að Eyjafirði
sé trygð lakar læknishjálp en öðrum
hlutum landsins. Bæði þingmennirnir
og Bergsteinn lýstu jafn brýnni, ef
ekki meiri, þörf á læknahéruðum í
öðrum hlutum landsins.
Blaðið sýnir mér þann heiður, að
ég hafi haft þau áhrif á fundinum, að
5 menn slæddust með mér að greiða
atkvæði á móti tillögunni. Eg hefi
nú nefnt einn manninn á nafn, sem
slæddist með, og sem eg hygg að
ritstj, hefði viljað hlífa við hnútukast-
inu, en hún hlýtur ekki síður að hitta
hann en mig. Suma hina tnun hon-
um einnig vera sárt um.
Á dagskrá fundarins var sett, að
spara sem mest fé ríkissjóðs, og á-
skorun til þingmannanna að skila fjár-
lögunum hallalausum. Formælandi
fyrir því máli var hreppstjóri Davíð
Jónsson á , Kroppi, og talaði hann
sköruglega fyrir því máli; brýndi fyrir
þingmönnunum sparnað og lagði þeim
ríkt á hjarta, að skila úr þinginu fjár-
lögunum hallalausum.
Þetta þótti ýmsum fundarmönnum
eigi vera í samræmi við að spara1
og skila fjárlögunum hallalausutn, að
fara að stofna 6 ný læknaembætli, en
það vill oft svo verða, að »hægra er
að kenna heilræðin en halda þau«,
og á fundum snúast sumir á móti
sínum eigin kenningum, og svo varð
á þessum fundi.
Þegar þess er gætt, að síðasta þing
skilaði fjárlögunum með nær tveggja
miljóna króna tekjuhalla og ríkið varð
að taka lán nteð slæmum kjörum tii
að geta borgað nauðsynlegustú útgjöld
og starfsmönnum landsins lögákveðin
laun og dýrtíðaruppbætur, og þá sparn-
aðarbjallan kveður við landshornanna
milli, þá er eigi afsakanlegt, að á þing-
málafundi skuli vera samþykt tillaga,
sem gengur í þá átt, að bæta við em-
bætti, sem eftir orðum þingmannanna
fæðir af sér 5 önnur embætti.
Þjóðin verður umfram alt að reyna
að standa á sínum eigin fótum, reyna
að verða efnalega sjálfstæð og taka
eigi miljóna króna lán upp í tekju-
halla til að borga starfsmönnum rík-
isins. Við þurfum að spara okkur
enibættismenn sem annað, heldur fækka
þeim 6n fjölga. Þetta mun hafa verið
skoðun þeirra, sem greiddu atkvæði á
móti tillögunni.
Að auka skatta á þjóðina nú í
þessu ári er ekki árennilegt, en eitt-
hvað verður til bragðs að taka til að
afnema tekjuhallann og borga áfallnar
rentur og afborganir af skuldum
ríkisins.
Ef hver þingmálafundur á landinu
hrópar um aukna embættismenn og
þingið samþykkir svo beiðnirnar, hvar
lendir þá með hag ríkissjóðs? (Meira).
E. S.
oo
Símfréitir frá útlöndum.
Rvik i gœr.
Kuldar miklir ganga nú yfir Norð-
ur- og Mið-Evrópu. Hafa allar skipa-
ferðir orðið að hcetta milli dönsku
eyjanna og meginlandsins vegna þess
að sundin eru frosin og millilanda-
skip frá Kaupmannahöfn þarfað saga
gegnum isinn svo þau nái rúmsjó. /
Paris var 11 stiga frost 1. þ. m.
{Á Akureyri var þann dag 1 stig hiti.)
Kauprnannaráðið danska hefir sarn-
kvœmt tillögum nefndar, sem falið
hefir verið að rannsaka viðskifti is-
lenzkra kaupmanna i Danmörku, far-
ið þess á leit við þjóðbankann, að
hann hlutaðist til um, að skrásett
gengi yrði sett á islenzka krónu.
5. tbl.
Dans
kenni eg á kvöldin yfirstand-
andi mánuð. Listi til áskriftar
liggur frammi í Gudmans Efterf.
verzlun.
Guðrún Indriðadóttir.
Nýkomið í verzlunina
HÁMBORG
Kvenpeysur ullar
Kvensokkar
Vasaklútar
Hnappar margar teg.
. Millifóðurstrígi
Vatt
Hjálpræðisherinn
Vetrarhátíð föstud. þ. 3. og laugard.
þ. 4. þ. m. kl. 8. Útsala — veitingar
— hljómleikar — Inngangur. 35 aura.
Islenzka krónan seldist fyrir 77 aura
1 Kaupmannahöfn i fyrradag.
Stjórn Bandarikjanna hefir neitað
að taka þátt í fjármálardðstefnunni i
Genúa i nœsta mánuði, ef Bolshevika-
stjórnin rússneska fái að send full-
trúa þangað.
Pýzka stjórnin hefir fengið þingið
til að samþykkja að eins miljarðs
gullmarka nauðungarlán verði jafnað
nidur á þjöðina, til þess að geta mœtt
skaðabótakröfum bandamanna.
Páfinn jarðaður i gœr viðhafnar-
laust, og þykir það nýlunda.
Röstur á Indlandi, auka Bretar
herlið sitt þar i ákafa.
co
Innlendar símfregnir.
Rvik i gcer.
Bœjarstjórnarkosningarnar í Reykja-
vik fóru þannig að A-listinn (borgara-
listinn) fékk 3360 atkv. og kom að
3 fulltrúum, Pétri Magnússyni, Birni
Ólafssyni og Jónatan Þorsteinssyni
en B-listinn (verkamannalistinn) fékk
1720 atkv. og marði með naumindum
2 fulltrúum i gegn, Héðni Valdemars-
syni og Hallbirni Halldórssyni prentara.
Lœtur Alþýðublaðið hið versta yfir
úrslitunum.
Liklegt talið að Magnús Kristjánsson,
forstjóri Landsverzlunarinnar verði at-
vinnumálaráðherra i stað Péturs heit-
ins Jónssonar, haldi Jón Magnússon
völdum. Ráðherravalið bíður komu
þingmanna.
Þingmálafundir Árnesinga og Rang-
œinga hafa lýst vantrausti á stjórn-
inni.
QC