Íslendingur - 03.02.1922, Blaðsíða 3
ÍSLENDINGUR
19
5 tbl.
Colmanstivelsi
Maccaronur
Döðlur
Gráfíkjur
Epli
Apelsinur
Kandis
er nýkomið í verzlunina
Hamborg.
Fyrirlesturinn, sem mishepnaðist.
Við umræður þær er fram fóru eftir
fyrirlestur þann, er Jónas Dags-ritstj.
hélt hér hinn 15. jan. þ. á., sagðist
einn af fundarmönnum vera í vafa um
það, hver meining fyrirlesarans væri
með nefndum fyrirlestri og beiddist
upplýsingar þar um, sem fyrirlesarinn
aldrei svaraði né heldur málsvari hans
Ingimar Eydal; að öllum líkindum
vegna þess, að þeir hafa ímyndað sér,
að sú andúð, sem fyrirlesturinn virtist
drukna í hjá áheyrendunum, myndi
sízt minka við sanna skýringu á tilefni
hans. En þegar eg las Dag, sem út
kom 26. jan. þ. á., þar sem ritslj.
mintist á þennan makalausa fyrirlestur
virðist svar vera fengið við umræddri
spurningu, sem sé það, að með hon-
um hafi ritstjórinn ætlað sér að afla
blaði sínu þrætuforða, sem endast
mætti fram eftir * árinu, enda munu
fáir væna ritstjóran þess, að hann
muni ekki reyna að drýja karpið og
þræturnar við andmælendur fyrirlesturs-
ins, sem allra mest, ef dæma skal eftir
skrifum hans um B. Lindal, Hallgrím
Davíðsson o. fl. s. I.'ár. Að sjálfsögðu
skamtar rilstjórinn lesendum sínum af
þeim forða sem hann á mest af; og
dettur andstæðingum hans ekki í hug
að hafa nokkur áhrif á það, hvort
»Dagur« verður meira andfúll yfir-
standandi ár, en hann var árið sem
leið; eu vonandi muna aðstandendur
Dags og styrktarmenn eftir því, að
þeir hafa gengið í einskonar samábyrgð
fyrir þeim vafasama heiðri hinnar
andlegu fýlu, er blaðið flytur út meðal
þjóðarinnar í karps og árásagreinum
þess á einstaka menn.
Tilraun ritstjórans á því, að koma
því inn hjá lesendum sínum, að komið
hafi fram óvild til samvinnustefnunnar
á bændanámsskeiðinu er algjörlega
mishepnuð engu síður an fyrirlestur-
inn, Það voru svo margir menn, sem
sóttu bændanámsskeiðið og vita, að
þar kom engin óvild fram til sam-
vinnustefnunnar eða neinnar annarar
stefnu, að óhugsandi er að ritstjórinn
geti komið því inn hjá fjöldanum þótt
hann reyni. Fyrirlestrarnir, sem þar
voru fluttir voru lausir við alla flokks-
pólitík og umræðurnar sem út af þeim
spunnust fóru fram án alls kala til
manna eða n.álefna. í fám orðum sagt,
ríkti yfir bændanámsskeiðinu samúðar-
andi allra fundarmanna áns alls tillits
til flokkaskiftingar.
Hefði Jónas Rorbergsson fengið leyfi
til þess að flytja þann fyrirlestur á
bændanámsskeiðinu, sein hann .flutti í
samkomuhúsi bæjarins þann 15, jan.
s.l., þá hefði samúðin og einingin, sem
á námsskeiðinu rfkti verið útrekin fyr-
ir fult ogalt; en það kom framkvæmd-
arstjórinn hr. Einar J. Reynis í veg
fyrir, með þvf að hleypa ritstjóranum
ekki að námsskeiðinu með fyrirlestur
sinn. Fyrir það á framkvæmdarstjórinn
þakkir skyldar. Retta sveið ritstjóran-
um — sennilega mest vegna þess, að
hefði fyrirlesturinn fengist fluttur í
skjóli bændanámsskeiðsins, var það
ekki Iengur fyrirlesarinn, sein tók einn
við ákúrunum heldur hlaut nokkuð af
þeim að lenda á Ræklunarfélaginu, sem
þá hefði á vissan hátt skýlt fyririestrin-
um; og það var einmitt skjól og
vernd, sem fyrirlesarinn vanhagaði svo
tilfinnanlega um. En þegar þessi list
ritstjórans brást, var það frekjan og
sjálfsálitið, sem réði fyrir skynseminni;
þess vegna fór sem fór, þrátt fyrir
aðvörun Eydals og máske annara holl-
vina Jónasar.
Áheyrandi,
oc
Úr heimahögum.
Talsimanúmer íslcndings hefir verið
breytt. Er nú 105.
Síld veiddist hér á Pollinum í gær og
og morgun.
Þingmennirnir eru nú á förum til Al-
þingis. Landveg með pósti fór Stefán í
Fagraskógi og líklega Jón Sigurðsson þm.
Skagfirðinga. Með Goðafoss komu að
austan Sveinn Olafssort' í Firði og Þor-
leifur Jónsson í Hólum og frá Húsavík
Sigurður Jónsson frá Yztafelli og Sigurjón
Friðjónsson. Héðan fóru Einar á Eyrar-
landi og Þorst. M Jónsson Norðniýlinga-
þingmaður. Þingmenn Húnvetninga bætast
í förina á Blönduúsi. Af austan þingnrönn-
um sitja 2 heima. Sig. H. Kvaran, sem
engan lækni hefir getað fengið fyrir sig
ennþá og Björn Hallsson á Rangá, sem
ekki var ferða fær sökum þess að hestur
sló hann og meiddi til muna í öðru lær-
inu. Býist við að Fálkinn sæki þessa þing-
menn seinna. Qvíst að Gísli Sveinsson
þm. Vestur-Skaftfellinga geti sótt þingið
söknm heilsubilunar.
Kosnlng á þingmanni fyrir Suður-Þing-
eyjarsýslu á að fara fram 18. þ. m. Frain-
bjóðendur verða að öllum líkindum tveir,
þeir Steingrímur Jónsson bæjarfógeti og
Ingólfur Bjarnarson bóndi í Fjósatungu í
Fnjóskadal. — Dagur í gær getur aðeins
um framboð Ingólfs í leiðara sínum, og
segist ekki vita um aðra, þótt öllum væri
kunnugt um framboð Steingríms áður en
framboð Ingólfs var afráðið. Hví þessi
blekkingaleikur?
Iðnskóíinn kennir öll virk kvöld vik-
unnar:
Tíðin. Einmuna ágætistíð hefir verið
hér undanfarnar vikur, leysingar og blíð-
viðri.
Lummukappátið. Læknirinn frá Hofsós
upplýsir að lummuátið hafi ekki orðið
mönnunum að bana heldur lugnabólga sem
stafað hafi áf ósreik. Höfðu þeir lagt sig
til kvildar að veislunni afstaðinni en her-
bergið verið fult af sterkju (iíklega eftir
lummubökunina) og ósreik sem settist svo
í lungun og réði aldurtila þeirra.
Goðafoss kom frá útlöndum á þriðju-
dagskvöldið og fór aftur héðan suður í
nótt. Með skipinu var fjöldi farþega. Hing-
að kom frá útlöndum Árni Þorvaldsson
kennari. Héðan tóku sér far til Reykjavík-
ur auk þingmanna: Jón E. Bergsveinsson
yfirsíldarmatsm., Ludv. Andersen heildsali,
kaupmennirnir Jakob Karlsson og Magnús
Sigurðsson á Grund, Páll HaJldórsson
ráðunautur, Oddur Björnsson prensmiðju-
eigandi, Kristinn Þorvaldsson verzlunarm.
og Kristín Eggertsdóttir hótelstýra og ung-
frúrnar Anna Pálsdóttir og Anna Daginar
Sveinsdóttir.
Þönglabakki
er laus til ábúðar frá næstkomandi fardögum. Semja má og um
grasbýlislönd.
Grenivík 16. janúar 1922.
Árni Jóhannesson.
Nýbflamálið. Útdráttur úr erindi Björns
Lindals um nýbýli birtist í næsta blaði.
Nýlátin er á Ytri-Tjörnum á Staðarbygð
ekkjan Sigríður Jónsdóttir, rúmlega nýræð.
Var hún ekkja Benjamíns Flóventssonar,
áður bónda á Ytri-Tjörnum, en sem látinn
er fyrir 44 árum síðan. Synir þeirra eru,
Kristján bóndi á Ytri-Tjörnum, Jón bóndi
á Hól á Staðarbygð, Halldór bóndi á Rif-
kelsstöðum og Benjamín vatnsleiðslustjóri
hér á Akureyri. Sigríður heitin var dugn-
aðarkona hin mesta meðan að heilsa og
kraftar entust.
Kirkjan. Messað verður kl. 2. á sunnud.
OC
Skák nr. I.
Athugasemdir eftir Ara Guðmundsson.
Drotningarpeðslelkur.
Halldór Arnórss. Lúðvik Bjarnason
Akureyri, Reykjavík.
Hvitt: Svart:
1. d2 —d4 d7 — d5
2. c2 —c4 e7 —e6
3. Rb 1 — c3 Rg8 — fó
4. Bcl —g5 Bf8-e7 -
5. e2 —e3 Rb8 —c6
Undir þessum kringumstæðum mun
—d7 vera betra;
6. Rgl-f3 d5Xc4
7. BflXc4 0-0
8. 0-0 Rc6-b4
. 9. Rf3-e5 Rb4 — d5
10. Rc3Xd5 e6Xd5
11. Bc4-d3 Rf6-e4
12. Bg5Xe7 Dd8X.e7
13. Ddl —c2 f7—f5
Hér gat líka komið til greina að
f7 —f6 eða Re4- -f6.
14. Hal-cl c7 —c6
15. f 2 — f 3 Re4-d6
16. e3 —e4 f5Xe4
17. f3Xe4 d5Xe4
18. HflXfÖf De7Xf8
19. Bd3Xe4 Bc8-f5?
Betra hefði verið R x B og því næst 1
20. Hcl-fl g7 — g6
21.' Be4Xf5 g6Xf5
22. Dc2-b3f Kg8-h8
Taflstaðan eftir 22. Ieik,
Svart:
Hvítt:
Hvítt gat nú náð algerðri yfirhönd í tafl-
inu við að leika 23. Db3—e6 ógnandi
með D x R og ef svart reynir að bjarga
riddaranum vinnur hvítt við 24. Hfl—f3,
t. d. 23. Db3—e6, Ha8-d8. 24. Hfl-f3,
f5-f4. J&. HH-H3 og vinnwr, eðt 23.
Db3-e6, Kh8—g7. 24. Hfl-f3, f5—f4.
25. Re5—d7 og vinnur.
23. Db3 —h3 Df8-g7
24. Hfl —f3 Dg7-g5
25. Hf3-e3 Ha8-g8
26. Dh3-f3 Dg5-h4
27. Df3 —dl Dh4—f4
28. Ddl — d3 Rd6 —e4
29. Dd3-e2 Re4-d6
30. De2-d3
Jafntefli eftir samkomulagi.
Þetta er ein af þeim 8 ritsímaskák-
um, sem tefldar voru milli Taflfélags
Reykjavíkur og Skákfélags Akureyrar
aðfaranótt hins 30. desember s.l.
H_Vjartans þakklæti vottum við
“ ^öllum þeim nær og fjær, sem
á einn eða annan hátt sýndu okk-
ur hluttekningu við fráfal! og
jarðarför sonar okkur og bróður,
Jóns Olafs Guðmundssonar frá
Hrísey.
Hrísey 30. janúar 1922.
Foreldri og systkini hins látna.
Sandur.
Þeir, sem fengið hafa sand af
Tanganum síðastliðið ár, eru vin-
samlega ámintir um að gefa upp
hve mikið þeir hafa tekið, og borga
hið allra fyrsta.
h. f. Carl Höpíners verzlun.
Parfanaut
má vitja í Sunnuhvol. Afnot kr. lO.oo.
Sigurjón Rögnvaldsson.
Verzlunarmaður
sem er vanur við kontorstörf og öll þau
verk, sem að verzlun lýtur, óskar eftir
atvinnu.
Beztu meðmæli frá fyrverandi húsbónda.
Nánari upplýsingar gefur
A. Schiöth.
Undirrituð spinnur á spunavél
lopa, sem kemdir sjeu vel.
Margrjet Pálsdóttir
Strandgötu 39.
OSTAR
margar tegundir komu með
Goðafoss í
H.f. Carl Höepfners
verzlun.
Prentemiðja Björns Jónssonar.