Íslendingur - 04.08.1922, Blaðsíða 3
32. tbl,
ÍSLENDINGUR
hans, né um að lækka refsingu Ólafs
frá því, er hún var ákveðin í undir-
réttardómnum.
Reykjavík, 23. Júní 1922.
Kristján Jónsson.
Ath. ritstj.
Drátturinn, sem orðið hefir á birt-
ingu þessarar yfirlýsingar stafar af því,
að »Morgunblaðið», sem hana flytur,
hefir fyrst nýlega borist oss í hendur;
því þótt kaupendur fái Morgunblaðið
reglulega, er seuding þess til blað-
anna hér í meiralagi seinfær.
03
Trausti á Hólum.
Flestir Norðlendingar kannast við
nafnið — og margir aðrir menn víðs-
vegar um land. Pví fremur furðar mig
það, að enginn af þeim mörgu, sem
þektu manninn, skuli hafa furidið hvöt
hjá sjer til að minnast hans opinber-
lega — nú, þegar séð er fyrir endann
á jarðlífsvist hans.
Ekki er rú svo vel, að eg getl
bætt dr þesau á viðunandi hátt. Til
þess brestur mig tvent: nákvæma
persónulega þekkingu á manmnum
Qg skilríki til að draga skýrt og rétt
fram höfuðdrættina úr lífssögu hans.
Línur þéssar verða því aðeins að
skoða3t sem vinsemdarvottur fjarlægs
kunningja. Er þeim ekki ætlað að
vefa víðtiekari en það, að aðrir fær-
ari og betur settir komi á eftir og
geri betur.
Geirfinnur Trausti hét hann og var
Friðfinnssou. Þingeyingur var hann
að ætt og uppruna, fæddur og upp-
alinn í Ljósavatnshreppi í Þiugeyjar-
sýslu. Á þeim slóðum kvæntist hann
og byrjaði sjálfstætt lífsstarf sem bóndi
í sveitinni. Síðar bjó hann allmörg
ár f Hálshreppi f sömu sýslu. Vorið
1905 tók hðtin skólahúsið á Hólum
í Hjaitadal á leigu. Var hann bústjóri
á staónum í 9 ár eða til vors 1914.
Fá skilaði hann því af sér og fékk
Hof í Hjaltadal til ábúðar (hluta af
Hólaeigninni). Far dvaldi hann, þegar
hann fyrir nokkrum misserum varð
fyrir því áfalii að fá slag. Náði hann
aldrei síðan fullkominnl heilsu, heldur
ágerðist líkamsveiklunin, þar til lífs-
þráðurinn slitnaði að fullu 11. Júlf
síðastliðinn, Var hann þá á sextugasta
aldursári (fæddur 18. maí 1862).
Trausti sál. var með stærri mönnum
á vöxt, frfður og föngulegur. Varð
hann nokkuð feitur á síðari árum.
Mundi flestum sýnast, að svo mynd-
arleg og sterklég líkamsbygging mundi
eigi hrörna svo snemma og hrynja
saman, sem raun á varð. En svona
gengur það stundum.
Eftir því sem um er að gera um
þá alþýðumenn, sem litla fræðslu
hafa fengið, mátti telja Trausta sál. að
mörgu vel færan mann. Hann var líka
allmikið riðinn við opinber störf í
öllum þeim aveitum, sem hann bjó í:
hreppstjórn, hreppsnefndarstörf og
sýslunefudar m. fl.
Auk þess, sem hann var vel fær til
þess konar starfa, komu hin persónu-
legu einkenni hans þar mönnum og
tnáleínuin að góðu haldi. Tillögur
hatis voru ávöxtur ósérplægnisanda,
inamtéðar og frjálslyndis og stcfndu
því jafn.tu í þá áttina, sem hoiium
skildist réttast.
Trausti sál. var glaðvær í lund og
skemtinn. Voru þau einkenni mjög
rikjandi í fari hans og komu fram á
heimili hans í viðræðum við gesti eða
heimamenn, sem og á samkomutn og
öðrum mannamótum. Og þó að hann
iðkaði ekki mikið opinber ræðuhöld,
var hann laginn á að búa hugsanir
sínar í áheyrilegan og skemtandi
búning.
Hann var eigi ríkur maður, eins
og það er kallað, en þó vel sjálfstæð-
ur fjárhagslega og allmikið veitandi.
Var hann gestrisinn, greiðugur 'og
hjálpsamur. Nulu margir góðs af því.
Konan hans, Kristjana Hallgrímsdóttir,
og börn hans — þegar þau komust
upp — voru honum líka samtaka í
því að veita þeim, er að garði báru,
og gera þeim dvölina sem ánægju-
legasta, sem og að liðsinna öðrum út
f frá, eftir því sem tækifæri og ástæð-
ur voru til.
Trausti sál. var að sjálfsögðu eigi
gallalaus maður fremur en aðrir menn.
En þrátt fyrir það vildi eg með fram-
anskráðum línum minna á það, að
yfirleitt munu samferðamenn hans
hafa svo margs góðs að minnast og
sakna, að þeir hljóti að blessa minn-
ingu hans og hafa hana í heiðri.
Seyðisfirði 20. Júní 1922.
Slg. Sigurðsson
(kennati).
cc
Rússneska grimdin.
Maxim Oorki, rússneska skáldið fræga,
hefir nýlega skrifað greinarflokka í ýms
stórblöð Norðurálfunnar um rússnesku
þjóðina. Ein af grcinum þessum er
um hina rússnesku grimd. Eftir að
hafa lesið hana getur maður ekki bor-
ið honum á brýn, að hann reyni til
að fegra landsmenn sína eða sýna
þá 1 öðru ljósi en honum finst réttast.
— Eg hefi séð, segir Oorki, og
orðið að þola grirad mannanna. Ald-
rei hefi eg þó skili ðtil fulls eðli hinn-
ar mannlegu grimdar. Alt mitt líf hef-
ir eú spurning legið á mér eins og
mara: af hvaða hvöt sprettur hin
mannlega grirad?
Fyrir löngu las eg bók, sem reyndi
að skýra það, að vaxandi framfarir
mannanna stuðiuðu að því, að efla
hina meðfæddu löngun þeirra til þess
að kvelja hvern annan andlega og lík-
amlega. Eg las þessa bók með gremju
og trúði ekki hið minsta á það, sem
haldin var fram í henni og gleymdi
fljótlega efni hénnar.
En — nú eftir hinn skelfilega trytl-
ing styrjaldarinnar og drápshátíðir
stjórnbyltingarinnar, mintist eg aftur
og aftur þessarar bókar. Pó verð eg
að taka það skýrt fram, að hin rúss-
neska grimd sýnist ekki hafa tekið
neiuum breytingum, hún hefi alt af
verið eins.
Rússneskir annálar frá byrjun 17.
aldar geta þess sem dæmi um grimd
þeirra tífna, að mummr þess sem
hegna átti var fyltur með púðri, og
síðan kvcikt í þvi. Enii fremur átli
það sér stað, nð stungin voru göt á
brjóst kvenmanua, reipi dregin í gegu
um sárin og líkatninn síðan hengdur
upp.
Árin 1918 og 1919 kom þetta sama
fyrir við Don og í Ural: »Rauðir« og
»Hvítir« drápu hertekna menn með
því að setja dinamitpatrónur í enda-
þarm þeirra og kveikja sfðan í þeim.
Eg hygg, að hið eina aameiginlega
einkenni á Rússum og sem er alveg
sérstakt fyrir þá, sé grimdin, í sama
hlutfalii eins og t. d. »humor« er
sérstakt iyndiseinkenui hinnar ensku
þjóðar. Og það er sérstök tegund af
grimd — það er harðneskjuteg rann-
sókn á þolinmæði mannanna að þola
þrautir é yztu snasir.
Augljósasta einkenni hinnar rúsi-
nesku þjóðar er hin margháttaða upp-
fyndingasemi, hin djöfullegasta marg-
breytni í aðferðunum til að kvelja.
Eru þetta afleiðingar af vínnautn? Eg
held, að rússneska þjóðin sé ekki
spiltari af vinnautn en aðrar Evrópu-
þjóðir, þó það bcri að játa, að áhrif
vsns á sálarlífið munu vera meiri f
Rússiaudi en annarsstaðar vegns þess,
hve fæða alþýðunnar er verri en víðast
apnars staðar.
Hið eina, sem ég þori að fullyrða
með vissu, að hefir aukið margbreytni
grimdarinnar, það er Iesturinn á æfi-
sögum hinna helgu píslavotta, en það
er kœrasti lestur rússneskra bænda.
— f sveitaþorpi f Stberíu fundu
bændurnir upp þcasa aðferð: Þeir
grófu raðir af gryfjum f jörðina og
settu niður f þær á höfuðið nokkra
fangaða herménn úr »rauða« hernum.
Þeir létu fæturnar standa upp úr nið-
ur að knjám, og stðan mokuðu þeir
hægt og rólega ofan í holurnar og þjöpp-
uðu moldinni vel að. Á eftir athuguðu
þeir með mikilli forvitni fæturnar. Af
krampateygjum þcim, sem fóru um
fæturnar, þóttust þeir geta ráðið hver
fanganna entist Iengst, í hverjum vær
mest líf, hver dæi síðast.
í héraðinu Traipbow, voru herteknir
kommunistar negtdir fastir á tré, einn
meter yfir jörðu, á þann hátt, að nagl-
arnir voru aðeins reknir gegn um
vinstri hönd og fót. Síðan skemtu
bændurnir sér við að horfa á hvernig
þessir hálf-krossfestu menn böðuðu út
hinum lausu limum.
Einn fanga kvöldu menn á þennan
hátt: gflt var skorið á tnagann, og þar
tekinn út endi af görnunum, sá endi
var negldur á tré eða síniastaur. Þar
næst var fanginn rekinn í kring ura
staurinn með spörkum og höggum,
en á meðan var athugað hvernig
görnin raktist út um opið á mag-
anura.
Á einum 6tað voru fangaðir liðsfor-
ingjar klæddir úr öllum fötum, af báð-
um öxlum þeirra voru síðan skoriu stykki
af húðinni á stærð við axlaskraut þcirra
og ennfremur var húðin fleigÍH af þar
sem korðinn hékk og á lengd við hann
og sömuleiðis önnur stykki á lengd
við buxnaröndina gyltu.
Á síðustu áruin hafa margir slíkir
atburðir gerst og enn viðbjóðslegri,
en eg skal ekki lýsa frekar þessöm
blóðugu athöfuum. (Meira).
cc
Úr heimahögum.
Biskttpinn yfir Jslandi, herra Jón Helga-
söji dfc ibeok, kom ineð »Goðafoss« í
vftiWhrferö hér uin sýsluna. Hér visiterar
hanii á Sunmidaginn og byrjar með messu
kl, 12 á hádegi.
125
Kotóaramr
nýkominn.
Ágæt skipakoh
Verðið:
lægst í bænum
hjá
Ásgeir Péturssyni.
Slldveiðin gengur fremur treglega. Á
Siglufirði eru komnar á land um 12 þús.
tunnur, á Hjalteyri tæpar 4000, hér á Ak-
ureyrf um 2000 tunnur og um 1000 tunn-
ur samtals á öðrum upplagningastöðum
hér við fjörðinn. Aflinn er því undir
20 þús. tnnnum enn þá.
Hjáskapur. Á Laugardaginn voru gefin
saman í hjónaband af sóknarprestinum
hér ungfrú Guðný Magnúsdóttir og Jón
Banediktsson prentari.
Hailgr. Kristltisson forstjóri kont land-
veg sunnan úr Reykjavík á Miðvikudaginn.
Fyrirlestarinn, sem sira Jakob Kristins-
son hélt í Samkomuhúsinu á Sunnudag-
inn var, nefndi hann »Ekki er alt sem
sýnist*. Var hann ágætlega fluttur og
þótti mikið tíl hans koma.
»W/femoes« kom & Mánudaginn frá
Englandi með steinolíu til Landsverzlun-
ar. Fór um kvöldið.
»Ooðafoss« kom um hádegi í dag að
suiman. Fer aftur í fyrramálið.
»AustanfarU, blað þeirra Seyðfirðinga,
er eina blaðið, sem kemur út á Austur-
landi. Tekið á móti áskriftum á skrif-
stofu íslendings. Árgangurinn að eins 5 kr.
»Cróin Jðrð< kallast kvikmynd, sem Bíó
sýnir um þessar muudir óg er bygð á
hinni heirasfrægu skáldsögu Knut Ham-
suns »Markens Gröde«. Myndin er stór-
inerkileg og ættu bæjarbúar að fjölmenna
í Bló meðan hún er sýnd þar.
Eggert Stefánsson söngvari syngur í
Samkomuhúsinu kl. 8'/> í kvöld.
Misprentanir. í reglugerðinni um Spán-
arvinin í síðasta blaði í 9. gr. stendur:
»Ef lyfsali glatar rétti sinum«, en á að
vera: Ef veitingamaður o. s. frv. — í 3.
aths. við svör H. N. stendur: »dauð-
legar verur«, en á að vera: ódauðlegar
verur.
OO
Utan úr heimi.
\
Gutlfundur.
Nýlega fór nokkur hópur manna
frá Englandi til Brazilíu og er aðal-
erindi þeirra að kanna Araguayan ána
og sumar af þeim ám, sem renna í
hana. Eru þessir menn sannfærðir um,
að í farvegum áa þessara sé um að
ræða feykimikinn auð í gulli og gim-
steinum. Mælingamenn enskir, sem á
þeim stöðvum^hafa verið, segjast ekki
vera í minsta vafa um að svo tnikið
gull sé í sandeyrunum meðfram ánni
og i árbotninum, að það margborgi
sig að vinna það. Einnig segjast þeir
hafa fundið demanta í sumum af án-
um, sem renna í Araguaya-ána. Með-
fram ám þessum búa hinir svonefndu
Rauðu Indíánar, eru þeir friðsamlegir
og vittgjarnlegir. Og ennfremur segir
eintJ þessi landmælingamaður, að hann
vonist til að geta fundið kynþátt þann
af Indfánum, sem sögur fara af að
þar búi einhverstaðar og beri hálsmen
sem þelr búa tii ár gullmolum, er
þeir tíni upp einhverstaðar þar, sem
nóg eí af þeim tnálmi,