Íslendingur


Íslendingur - 14.08.1925, Page 1

Íslendingur - 14.08.1925, Page 1
Talsíini 105. Ritstjóri: Gunsnl. Tr. Jónsson. Strandgata 29. XI. árgangur. Akureyri, 14. ágúst 1925 35. tölubl. mmmsmmmmmi akureyrar bio Laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9: Feðgarnir í skóginum. 8 þátta kvikmynd úr frumskógum Ameríku. Aðalhlutverkið leikur Miriam Cooper. Miðvikudags- og fimtudagskvöld kl. 9: MONTANA JIM. Afarskemtileg mynd í 5 þáttum. Aðalhlutverkið leikur DOUOLAS MAC LEAN. Myndirnar aðeins sýndar tvisvar. Samvinna og pólitík. i. Dagur hefir undanfarið verið að fræða menn um það, að kaupfélög- in væru ópólitísk, og fært þeirri fullyrðingu sinni til sönnunar, að ekkert sé það í lögum félaganna eða fundarsamþyktum, er fyrirmæli pólitísk afskifti af hinum almennu málum þjóðarinnar. En á sama tíma heldur hann því eindregið fram, 'að samvinnustefnan eigi að vera pólitísk, og að allir samvinnu- menn ættu »að ganga saman í pó- litískar fylkingar.« En skylt er skeggið hökunni, segir máltækið, og Dagur segir, »að sá, se/ti er kaupfélagsmaður, er og pólitískur samvinnumaður,« en þó séu kaupfélögin ópólitísk. Mun eiga að skilja þessa röksemdafærslu þannig, að hveitisekkirnir og annar dauður varningur í kaupfélögunum sé og eigi að vera fyrir utan pólitík, þ. e. a. s. sala og kaup vörunnar, en alt í félögunum, sem hafi sál og skynjan, sé og eigi að vera pólitískt. Það geíur ekki hjá þvf farið, að kaupfélögin séu og veiði einn liður í hinum pólitísku samtök- um samvinnumanna, beinlínis eða óbeinlínis, — þeim samtökum, scm Dagur telur nauðsynleg fyrir vexti og framþróunn samvinnuhreyfingar- innar. Alt tal hans í gagnstæða átt, eru hreinar og beinar blekkingar, og í algerðu ósamræmi við það, sein hann margoft hefir haldið áð- ur fram. Það hefir verið bent á það áður hér í blaðinu, að samvinnufélags- skapurinn væri pólitískur í tveimur löndum aðeins, — íslandi og Rúss- landi, alstaðar annarsstaðar væri hann ópólitískur, og eitt helzta grundvallaratrið hans algert hlut- leysi í stjórnmálum. — Sambands- samvinnusamtökin íslenzku og kom- múnistarnir rússnesku tvímenna því í »turniment«, eins og komist var að orði, á móti samvinnafylkingum allra annara þjóða. Tíminn sagði raunar um daginn að dönsku samvinnumennirnir, sem til þessa hafa verið skoðaðir einna öflugastir í Evrópu, væru á eftir tímanutn. Saina mun álit hans og Dags um hina ópólitísku samvinnu- menn annara Ianda, — pólitísku samvinnumennirnir íslenzku og rúss- nesku eru brautryðjendur hugsjón- anna. — í augum þessara blaða. II. Dagur lætur mikið yfir hugsjóna- gnótt Framsóknar-ritstjóranna og samvinnuforkólfa Sambandsins. — Samvinnan er æfagömul hugsjón og er raunar ekkert annað en hagnað- arstefnan, sem uppi hefir verið svo að segja síðan mannkynið varð til, — búningurinn er lítið eitt breyttur, það er alt og surnt, og ef um hug- sjón er að ræða hjá samvinnurit- stjórunum og yfirráðendum þeirra, þá felst hún í því, að hafa puntað samvinnubúninginn með pólitískum bryddingurn. Níðróg samvinnublaðanna urn ritstjóra íhaldsins og ýmsa aðra úr þeim herbúðum, mun frekar verða að heimfæra undir hugarþel en hug- sjónir, þó að hið fyrra leiði oft til þess síðara. Mætti jafnvel kalla níðið og óírægingarnar hugrósir og og festa þær síðan í hnappagatið á hinum pólitíska samvinnubúningi. Dagur hefir með skrifum sínum leittsamvinnumenn eftir hinni »kristi- 4egu grunnlínu«, sem kalla má og hinn þrönga veg, inn á »hinn breiða grun/V1; út frá honum liggur afti r m. a. hinti breiði vegur, og allir vita hvert hann stefnir. — Liggur leiðin eftir honum? SaiDniDisroíin enn. Erlingur Friðjónsson, hinn prúði og pennafæri/l) skrifar 5 dálka grein í síðasta blaði Vm. utn »Verkfallið á Siglufirði*. Mun hún eiga að vera skrifuð í þeim tilgangi að verja gerðir síldarstúlknanna þar, en er þannig úr garði gerð, að hún gerir þeim hið mesta ógagn og vekur djúpa fyrirlitningu á höfuudinum,— hafi þar verið á bætandi. Lygar, ófrægingar og ógeðsleg- ustu getsakir eru meginmál greinar- innar. Algerlega óviðkomandi menn eru dregnir inn í umræðurnar og dróttað að þeim lúalegustu áfornr- um. Níðrógurinn er taumlaus. Höf. dregur t. d. upp mynd af »ríkishern- uin«, eins og hann segir að »hug- sjón* þeirra Jóns, Magnússonar og Jóns Þorlákssonar hafi verið, hefði hún komist í framkværnd, og hefði þá gefist á að lífa síldarstúllairnar reknar til vinnu »ineð uppreiddum axarsköftum og byssustyngjum«, eða »handteknar og færðar í bönd- um í tukthúsið«. Slík og þvílík hafi »hugsjón« ráðherranna verið og þannig hafi hugarþel Björns Lín- dals verið í garð síldarstúlknanna. Að maður, sem á að heita að lrafi óbrjálaða skynsemi, þó lítil sé, skuli láta annað eins og þetta eftir sig á prenti, mun dæmafátt, en lengi getur vont versnað — og E. F. fer síversnandi. Ósannindi eru það hjá E. F., að ísl. sjái eftir 25 aura hækkuninni, sem síldarstúlkurnar fengu á tunn- una. ísl. lagði engan dóm á kaup- gjaldið annan en þann, að í meðal- ári fengi síldarstúlkurnar sæmilega borgaða vinnu sína með 75 aura söltunargjaldi, vikupeningum og öðrum hlunnindum, og hefir eng- inn orðið til að mótmæla því. Bregð- ist hinsvegar síldveiðin, verður pyngjan vifanlega létl eftir sumarið, en enginn okkar er sá spániaður, að hann geti sagt í byrjun vertíðar, hvernig að aflinn muni verða, svo að hægt sé að haga sér eftir því. Ennfremur eru það ósannindi hjá E. F., að ísl. hafi sagt, að síldar- stúlkurnar hafi verið ánægðar að fara í fyrra með létta pyngju frá Siglufirði. ísl. sagði, að stúlkurnar hafi virst ánægðar er þær réðu sig í fyrra með kjörin, sem þeim voru boðin, en þar sem að veiðin hafi brugðist/hafi margar farið heim með létta pyngju. Á þessu er allmikill munur, þótt E. F. sjái hann ekki. E. F. þykist orðinn fróður um síldveiði og síldarverð síðan að bróðir hans og flestir helztu garpar Verkamannafélags Akureyrar kom- ust í þjónustu eða urðu hluthafar í »stóra félaginu« á Tanganum. En ef hann hefir þaðan, að síldartuunan standi nú í 50 kr. dönskum í Kaup- mannahöfn, þá væri betra fyrir hanh að snú sér til annara með upplýs- ingar, sem vita um verðið. Síðustu boð í síld frá Khöfn voru tæpar 40 kr. tunnan, eða rúmum 10 krónum lægra en E. F. segir. Ber altaf að sama brunni hjá honum með sann- söglina. En þetta eru í rauninni aukaatriði.. Um samningsrof síldarstúiknanna hefir ísl. ekki annað að segja en það, sem hann hefir áður sagt, og þó að E. F. segi það rakalaus ó- sannindi, þá er það létt á metunum. Mál þetta hefir verið skýrt svo greini- lega í ísl., að þar er engu við að bæta; og þó að síldarstúlkurnar mis- skilji ráðningasamninga sína, þá breytir það engu raunveruleikanum. En það eru önnur samningsrof, sein E. F. getur um og á þarf að að minnast, og það eru samnings- rof Verkamannafélags Akureyrar við vinnuveitendur vorið 1924. E. F. segir raunar að þau samningsrof séu aðeins þvættingur úr ísl., en þar fer hann með vísvitandi ósann- indi eins og víðast hvar annars- staðar, og skal nú sýnt og sarinað að svo er: í vetrarbyrjun 1923 gerðu stjórnir Verkamannafélags Akureyrar og Vinnuveitendafélagsins á Akureyri samuing um kauptaxta, er gilda skyldi frá 24. nóvember 1923 til 15. júní 1924. Var samningurinn sam- þyktur af báðum fétögunum og undirskrifaðar af stjórnum þeirra. Snemma í maí 1924 framber stjórn Verkamannafélagsins þá ósk við stjórn Vinnuveitendafélagsins, að kaupgjaldið sé' lrækkað, þrátt fyrir samninginn, um 20°/o. Vinnuveit- endafélagið tekur málið til meðferð- ar og samþykkir hækkunina frá maí- lokum, eða hálfuin mánuði áður en samningurinn var útrunninn. Bar félagir.u vitanlega engin skylda lil þessarar tilslökunar, þar sem það gat heimtað uppfylling samnings- ins til lokatíma. Er málið kom svo aftur til kasta Verkamannafélagsins, beitir Erlingur Friðjónsson sér fyrir því, að félagið rjúfi samninginn og setji nýjan kauptaxti frá 20. maí, og þrátt fyrir mótmæli stjórnarinnar — bróðir hans, H. F., var þá for- maður félagsins — fær Erlingur Friðjónsson þessu framgengt í fé- laginu, — það gerir samningsrof að lians undirlagi. Stjórn félagsins datt ekki í hug að bera á móti því, að hér væri um samningsrof að ræða, og einn úr henni, Gísli R. Magnússon, fanst heiðri félagsins svo misboðið með því að ganga á gerða samninga. að hann gekk úr félaginu. Þessu getur Erlingur Friðjónsson ekki mótmælt, og ekki heldur þveg- ið þann blett af sér að hafa gerst frumkvöðull að samningssvikum. En sér til réttlætingar segir hann, að vinnuveitendur rjúfi oft samn- inga, er þeir hafa gert sín á milli um kaupgjald, og kemur með sem dæmi síldarútgerðarmennina á Siglu- firði, sem hafi gert samninga um, að gjalda 75 aura í söltunarlaun á tunnu, en hafi rofið þá að nokkrum dögum liðnunr og gjaldi nú krónu. Og þetta kallar E' F. hliðstætt dæmi samningsrofum Verkamannafélags- ins. Hann er altaf jafn gáfaður, pilturinn. Hefir hann gleymt verk- fallinu og kröfum síldarstúlknanna. Um leið og útgerðarmenn féllust á að ganga að þeim, var viianlega þeirra fyrri samjiykt um 75 aura söltunargjaldið fallin úr gildi. Hvar samningsrofum er hér til að dreifa mun enginn sjá nema Erlingur. Frekar er vaðall E. F. ekki svara- verður.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.