Íslendingur - 28.05.1926, Qupperneq 2
ÍSLENDINGUR
hafa fyrirliggjandi:
Bárujárn
Þakpapp
Innanveggjapapp
Zinkhvítu,
Iandhelgi og er ekki söltuð samkvæmt
íslenzkum lögum. Við viljum hindra
að þeir geti farið í kringum íslenzka
Iöggjöf okkur til tjóns.
r
Ut úr ógöngunum.
Eg sé nú ekki aðra leið út úr
þessum ógöngum en öflug samtök
þeirra manna, sem hér eiga réttmætra
hagsmuna að gæta. En slík samtök
eru útilokuð nema með lagavernd, því
að hér ráða miklu menn, sem eiga
annara hagsmuna að gæta en hags-
muna hinnar íslenzku þjóðar. Þetfa
frv. er samið og flutt í þeirri trú, að
það sé eina liklega leiðin út úr þessu
öngþveiti. Tilgangur þess er fyrst og
fremst sá, að koma betra skipulagi* á
söluna í neyzlulöndunum, Ennfremur
að vanda vöruna, koma henni í álit
á erlendum markaði, sjá um að ekki
verði annað en góð vara á boðstól-
um. F*að er ekki meiningin, að hér
eigi að vera neinn okurhringur á
ferðinni, þvert á móti. Með þessu er
reynt að miðla hagnaðinum af þessari
uppgripaveiði réttlátlega milli fram-
leiðenda og neytenda. Nú er hagur-
inn eingöngu hjá neytendunum. En
neytendurnir verða að skilja það, að
við getum ekki til lengdar selt þeim
síldina fyrir lægra verð en framleiðslan
kostar. Eg hygg að það muni auð-
velt að sannfæra jafnvitra þjóð sem
Svía um slíkt. Og líklega myndi
meðaltalsverðið verða aðgengilegra
fyrir neytendurna, ef hægt væri á
þennan hátt að hafa hönd f bagga
með sölunni.
Með þessu fyrirkomulagi yrði fyrir
það girt, að síldin væri fluft úr landi
svo tugum þúsunda tunna skifti og
ónýttist þar. Það yrði ekki meira flutt
út én von er um að seljist með sæmi-
legu verði, þannig, að framleiðslu-
kostnaður fáist borgaður. Pá er eitt,
sem altaf veltur mikið á í þessu máli,
en það er að gera vöruna þannig úr
garði, að, hún^ sé að skapi neytenda.
Pó að Svíum líki bezt sú verkunarað-
ferð, sem hér er höfð á síldinni og
vilji ekki hafa hana öðruvísi, þá er
ekki svo um aðrar’þjóðir. Pær vilja
sumar hafa aðra meðferð, því að sinn
er siður í landi hverju. Pað myndi
því verða eitt aðalhlutverk félagsins,
að útvega’ nýja markaði og jafnframt
að kynna sér, hvernig neytendurnir vilja
hafa meðferð vörunnar. , HéF má'ekki
flana að neinu, og enginn má búast
við, að slíkt geti tekist á skömmum
tíma.
Eg gat þess áðan, að okkur fim.
væri það fullljóst, að hér getur verið
um hættulegt spor að ræða. Eg held
að í raun og veru verði aldrei vikið
hættulaust frá grundvelli frjálsrar verzl-
unar. En maður verður oft að leggja
á tæpt vað og hættulegt til þess, að
reyna að bjarga sér frá stærri voða.
Herbergi
til leigu á góðum stað í bænum,
með eða án húsgagna.
R. v. á.
Verzlunarmarmafélag
Akureyrar
mótmælir síldareinkasölunni,
Á fundi í gærkvöldi samþykti
Verzlunarmannafélagið svohljóðandi
tillögu og afgreiddi til atvinnumála-
ráðuneytisins:
»Fundurinn telur einkasölu á síld
mjög varhugaverða vegna þess;
1. að hún samrýmist ekki frjálsri
samkepni.
2. að hún kemur tilfinnanlega í
bága við ráðstafanir, sem útgerðar-
menn hafa þegar gert með fyrir- '
framsölu á sfld og kaupum á
tunnum, ?alti og veiðarfærum.
3. að með einkasölufyrirkomulaginu
verði útlendar og innlendar lán-
stofnanir og lánardrotnar með
öllu ófáanlegir til þess að lána
rekstursfé.
4. að veiði og söltun útlendinga
utan Iandhelgi aukist til stórra
muna.
5. að atvinnuleysi er fyrirsjáanlegt,
þar sem margir hinir stærri út-
gerðarmenn neyðast til þess að
hætta atvinnurekstrinum.
Af þessum ástæðum leyfir fund-
urinn sér að skora á hið háa at-
vinnumálaráðuneyti, að nota ekki
heimild sfðasta þings til þess að
veita nokkrum réttindi til einkasölu.«
••
Símskeyti.
(Frá Fréttastofu íslands.)
Rvík 28. niaí.
Utlend:
Frá Munchen er símað, að stærsta
járnbrautarslys f sögu Bayerns hafi
skeð í námunda við borgina á hvíta-
sunnudag. Yfir 100 manns biðu
bana.
Frá París er sfmað, að uppreist-
arforinginn Abd-el Krim hafi beðist
friðar af Frökkum, en þeir hafi neit-
að. Vilja ná honum dauðum eða
lifandi.
Frá Tokió er símað, að stórkost-
leg eldgos og jarðskjálftar herji Jap-
an. Stór landssvæði eyðilögð, fjöldi
manna mist lífið og aragrúi hælis-
laus.
Frá Varsjá er sfmað, að það sje
opinbert Ieyndarmál að Pilsdudski
muni taka sjer einræðisvald.
Frá London er símað, að sfðan
námumenn og námueigendur fyrir
viku sfðan höfnuðu miðlunartillögu
stjórnarinnar, hafi hún ekkert gert í
koladeilunum. Aðalmaður verkfalls-
ins, Cook, er nú orðin alvarlega veik-
ur af áhyggjum og hugarstríði. Hung-
ursneyð yfirvofandi víða í námuhér-
uðunum. Asquith jarl hefir sent
Lloyd George opið hirtingarbréf
fyrir afskifti hans af verkfallinu með
skrifum í amerfsk blöð. Lloyd Ge-
orge hefir svarað bréflega og viður-
kent misgáning sinn.
Frá Osló er sfmað, að Óðalsþing-
ið hafi samþykt afnám korneinka-
Sölu.
Innlend:
Konungshjónin koma til Akureyr-
ar fösjudaginn 18. júní og fara það-
an þann 20.
Sex togarar hættir veiðurn og tal-
ið vfst að fleiri fylgi á eftir. Hið
lága fiskverð valdandi.
©©
Upp og niður.
Lagsbræðurnir.
Ritstj. Verkamannsins gengur mjög til
hjarta hirting sú, sem Ed. Alþingis gaf
landsmála-lagsbróðir hans, Hriflumannin-
um, á dögunum, og reynir að svalasér á
ritstj. ísl. með fúkyrðum fyrir að hafa ekki
vítt Ed. fyrir útreiðina, er hún lét J. J.
sæta, heldur þar á ofan hælt henni meira
en nokkru öðru, sem síðasta þing afrekaði.
Raunar er það uppspuni, að ísl. hafi hælt
Ed. fyrir meðferðina á Jónasi, en fylliiega
skal það játað, að hann hafði til hennar
unnið, og mun enginn ósanngjarn maður
geta litið öðruvísi á það mál, og fjarri er
það öllum sanni, að Morgunblaðið telji
hana þinghneyksli eins og Vm. segir, en
það er framkoma Jónasar, sem blaðið
dæmir þannig. Við verðum að hafa það
hugfast, að þegar að J. J. ber frain máls-
höfðunartillögu sína í Ed. og vill að
dómsmálaráðherra og bæjarfógeta Rvíkur
sé skipað að fara í mál við höf. Nýja
sáttmála, hefir hann sjálfur nokkru áður
af sama höf verið lýstur ærulaus lygari
og rógberi. Þegar skorað er á hann að
hreinsa sig af þessum áburði með mál-
sókn, áður hann fylgi kröfu sinni fram,
svarar hann því, að hann skoði höf Nýja
sáttmála geðbilaðan og taki ekki mark á þvf
sem hann segi, — en ætlast þó til þess,
að Alþingi, eða Ed. fyrirskipi málsókn
gegn manni, sem hann telur geðbilaðan
og tekur ekki mark á. — Nú hljöta allir
að sjá, að deildinni er lítilsvirðing sýnd
mcð þessu og var því ekki við öðru að
búast, en að dagskráin væri harðorð í garð
J.J., er deildin hirti hann með fyrir ósvífn-
ina. — Annars ætti Verkamaðurinn að fara
sér hægt í því, að tala um sóma þingsins
í sambandi við Jónas frá Hriflu, því að
hafi nokkur þingmaðnr verulega misboð-
ið sóma'i þingsins með framkomu sinni,
þá er það hann, og eru Alþingistíðindin
þess óhrekjandi sönnun. En .vera má, að
siðferðisþroska ritstj. Vm. sé samboðnast
mannorðsskemdir, persónulegar svívirðing-
ar og Gróusögurog þvi eigi þettaheima inn-
an vébanda þinghelginnar að hans dómi og
sé þinginu til sóma, en þeir lagsbræðurnir,
Hriflumaðurinn og hann, verða sennilega
fámennir um þá skoðun.
Framsóknarlistinn.
Blað jafnaðarmanna, Verkam. segir
nýlega um Framsóknarlistann m. a.: >Mað-
urinn, sem þar er efstur, stendur mjög
nærri jafnaðarmönnum, eins og allir óviltir
Framsóknarmenn — en þar sem annar
flokkur hefir lekið hann á lista sinn, virð-
ist óþarfi fyrir Alþýðuflokksmenn að fara
yfir á þann lista með atkvæði sín, þar
sem vissa er fyrir, að flokkurinn, sem að
listanum stendur, er viss með efsta mann-
inn hjálparlaust.< —Hvaðsegja bændurnir
um þetta?
Ákveðnasti mótstöðumaðurinn.
Sami Vm.' segir, að Jón Þorl. sé ákveðn-
asti mótstöðumaður Alþýðuflokksins —
jafnaðarmenskunnar, sem í boði sé við
landskjörið. Mikið rétt! Þess vegna eiga
þeir kjósendur, sem óbeit hafa á jafnaðar-
stefnunni eins og hún hefir sýnt sig hérá
landi — að fylkja sér um C-listann.
„Beita".
Ennfremur fræðir Vm. lesendur sína
um, að ísl. hafi sagt, að tveir efstu menn
íhaldslistans þyrftu að komast að,— og segir
síðan, að þar sem nú að kona sé í þriðja
sætinu, sé hún ekki sett þangað til þess að
að komast að, heldur sem beita. — Orð
ísl. eru rangfærð; blaðið sagði aðeins, að
listinn ætti að koma tveimur að, en mint-
ist ekki á, að það þyrftu eudilega að vera
þeir efstu. — Allur er listinn góður, og
kjósendum er í sjálfsvald sett, að breyta
nafnaröðinni á honum eftir geðþótta. Geta
þannig kvenkjósendur listans sett frú Briem
i fyrsta eða annað sætið, ef þeim svo sýn-
ist, og ekki eru minni líkur til, að hún
Þann 11. þ m. lézt að heim-
ili okkar gamalmennið Ingibjörg
Benediktsdóttir.
Petta tilkynnist vinum og vanda-
mönnum hinnar látnu.
Garði í Fnjóskadal, 14. maí 1926..
Elísabet Árnadóttir.
Páll G. Jónsson
komist á þingið en konan, sem skipar
annað sæti Alþýðuflokkslistans og varla
heldur Vm. því fram, að hún sé sett þar
sem beita. Og svo mætti benda Vm. á,
að kosnir eru varaþingmenn og að það
eru þeir, sem næsta atkvæðistölu fá við
hinn kjörna eða kjörnu þingmenn listans
og að varaþingmennirnir komast oft inn á
þingið. Þannig hafa 3 landskjörnir vara-
þingmenn setið á Alþingi, síðan að lands-
kjörið komst á, og var einn þeirra bróðir
ritstj. Verkamannsins.
CO
Leiðrétting.
í 20. tölublaði ísl. í grein um nýafstað-
inn bæjarstjórnarfund, er þess getið, að
pípugerðin hér á staðnum hafi ekki und-
an að steypa skólprör.
Þetta er ekki rétt.
Eg hefi getað fullnægt öllum eftirspurn-
um um grennri rör til skólpræsagerðarinn-
ar i vor, og hefi tekið að mér að steypa
þau rör, sem Akureytarbær hefir óskað
eftir að eg steypti'og get framvegis tekið
að mér að steypa öll þau rör.sem bærinn
þarf. En þegar um sverari rör er að ræða,
þarf eg að hafa tíma til að ná í mót fyrir
þau, þar sem þesskonar rör hafa hingað
til verið steypt af Pípugerð Reykjavíkur.
Akureyri 17. maí 1926.
Sveinbjörn fónsson.
Gangstéttirnar.
Veganefndinni hefir orðið það glappa-
skot á, að láta gera þessar svokölluðu
>gaugstéttir« of mjóar, því að það er ó-
mögulegt fyrir bílana að komast eftir
þeim; eius og þær eru nú, litur úl fyrir,
að þær séu eingöngu lagðar fyrir hjól-
hesta, ríðandi menn og handkerrur, gang-
andi fólk kemst þar sjaldnast fyrir og
verður að hröklast út á akbrautina — svo
þokkaleg sem hún er að jafnaði.
K. N.
Reiðlijól til solu
(Rudge-Whitworth, bezla reiðhjólateg-
und Brellands), með þrenskonar hraða,
sama sem nýtt.
Arthur Gook.
Alla samninga,
og annað sem þarf að vélrita, er bezt
að koma með til mín. Skrautskrifa á
fermingarskeyti o. fl.
Fljót, vönduð og ódýr afgreiðsla.
Jón Norðfjörð.
Lækjargötu 2.
Til leigu
frá 15. júní til septemberloka eru
tvö herbergi með húsbúnaði og með
aðgangi að eldhúsi. Semja ber við
F*orv, Sigurðsson, Hafnarstr. 103.
Nýkomnar bækur:
íslendingasögur (fá eintök).
Topelius: Sögur Herlæknisins.
Theodór Friðriksson: Lokadagur.
Bókaverzlun Kr. Guðmundssonar.
Negrakassarnir
eru komnir aftur í
G E Y S I .