Íslendingur - 28.05.1926, Síða 3
ISLENDINGUR
3
Úr heimahögum.
Kirkjan. Messað kl. 2 á sunnudaginn.
Gagnfrœðaskólanum verður sagt upp á
mánudaginn kl. 2 e. h.rFIytur skólameist-
ari þá erindi, er hann nefnir: Skólabragur
og skólabresfir.
Horristeinn Heilsuhælis Norðurlands var
lagður á þriðjudaginn 25. þ. m. og var
fjöldi fólks viðstatt þá athöfn. Steingrímur
Jónsson bæjarfógeti flutti ræðu.
Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri
hefir látið af þeim starfa. Heis upp mis-
klíð milli Búnaðarfélagsstjórnarinnar og
hans, útaf áburðarsöluumboði, er hafð/
burtför hans frá félaginu í för með sér,
Hjónaefni. Trúlofun sína opinberuðu á
hvítasunnudag ungfrú Borghildur Jónsdóttir
bankaritara Finnbogasonar og Jakob Frí-
mannsson fulltrúi í Kaupfél. Eyf.
Sjóörn sást fljúga yfir Pollinn fyrra
sunnudag.
Danmörk i lifandi myndum, — 12 þátta,
kvikmynd, var sýnd í Akureyrarbíó á þriðju-
dagskvöldið. ,Var boðið þangað öllum
börnum Barnaskólans, kennurum skólanna
bæjarfulltrúunum, ritstjórum blaðanna o. fl,
— Er myndin tekin að tilhlutun danska
utanríkisráðuneytisins og'gerð til þess að
vekja athygli á og auka þekkingu ókunn-
ugra á Iandi og þjóð. Er myndin hin fjöl-
breyttasta og fræðir mann sérstaklega um
aðalatvinnuvegi Dana (landbúnað og verk-
smiðjuiðnað) og ýmsa þjóðarhætti.
Kennarafundur. Fundur norðlenzkra
barnakennara stóð hér yfir tvo undanfarna
daga. Ræddu kennarar þar ýms áhuga-
mál sín. Fundinn sátu 22 kennarar.
Stofnfundur hins væntanlega síldarsölu-
félags á að haldast í Rvík eftir komu
Ooðafoss þangað, og eru boðnir á hann
allir þeir, sem hagsmuna hafa að gæta og
skilyrði hafa til félagsþátttöku. Héðan fóru
& fundinn með Goðafoss síðast: Ásgeir
Pétursson, Magnús Blöndal, Jón E. Sig-
urðsson og Lúðvig Sigurjónsson. Áður
voru farnir suður: Ingvar Guðjónsson,
Guðm. Pétursson og Steindór Hjaltalín.
Meirihluti þessara manna eru andvígir
einkasölunni.
Ingólfi Jónssyni eand. jur. hefir verið
veitt bæjargjaldkera- og fátækrafulltrúa-
starfið á ísafirði frá 1. n. m. Eru laun-
in 4000 kr. um árið auk dýrtíðaruppbótar
eins og embætismenn ríkisins fá. Auk
þessa verður hann hafnarsfjóri með 500
kr. launum. Ingólfur og frú hans fóru
vestur með Goðafoss síðast.
„Nova" kom að sUnnan á laugardags-
kvöldið og fór aftur austur og út aðfara-
nótt 2. hvítasunnudags. Með skipinu
komu séra Geir Sæmundsson, Hallgrímur
Davíðsson verzlunarstj. og frú, Sigvaldi
Þorsteinsson kaupm., Porlákur Jónsson
bæjarfógetaskrifari, frá útlöndum — og
auk þess fjöldi fólks frá Reykjavík. Með
Nova tók sér far til Norðfjarðar frú Sig-
ríður Sveinsdótlir og 3 börn hennar og
fjöldi af skólafótki á austurhafnirnar.
Mannalát. Pann 25. þ. m. andaðist í
Guðlaugsvík í Hrútafirði merkisbóndinn
Ragúel Ólafsson, 76 ára gamall. Hann
var faðir Jóh. Ragúels kaupmanns hér í
bæ og þótti í hvívetna hinn mætasti niaður.
Þá er nýlátinn hér í bænuin eftir langvar-
andi veikindi Guðrún Kristjánssdóttir, kona
Kristjáns Helgasonar verzlunarmanns við
Kf. Eyf. — 58 ára gömul. Góð kona og
vel látin.
„Bavu“ heitir 7 þátta kvikmynd, sem
Akureyrarbíó sýnir annaðkvöld. Gerist hún
í rússnesku stjórnarbyltingunni og þykir
frábærilega tilkomumikil. Á sunnudags-
kvöldið verðursýnd önnur 7 þátta mynd:
„I kvcldbirtu New York-borgar". Þótt'
öllum mikið til hennar koma, er sáu hana
á miðvikudagskvöldið.
Útmœling á mólandi í Eyrarlands- og
Kotárgröfum fer fram á fimtudögúm kl.
5—8 síðd ., n ekki frá 5—6 eins og stóð
í síðasta blaði.
Elegant samkvæmiskjóll
I sölu með tækifærisverði. .R.v.á.
Gengi peninga hjá bönkum í dag.
Sterlingspund . . kr. 22,15
Dollar . . . . — 4,57
Svensk króna . . — 122,12
Norsk króna . — 99,02
Dönsk króna . . — 119.C3
Franskur franki — 15,50
Belg. franki . — 14,54
Mörk . . . . — 108,54
A. 30.
co
Vönduð »Chevrolet«bifreið fæst stöðugt til fólksflutninga í
lengri og skemri ferðir. Pöntunum veitt móttaka daglega á vinnu
stofu okkar Strandgötu 1, sími 94.
Guð/ón & Aða/björn
gullsmiöir.
Alþingi.
Kosningar innan þings.
Sameinað þing kaus undir þinglok-
in 3 fulltrú3 í dansk íslenzku ráðgjaf-
arnefndina fyrir tímabilið frá 1. des.
1926 til 30 nóv. 1934 og urðu fyrir
valinu, Bjarni Jónsson frá Vogi, Jó-
hannes Jóhannesson bæjarfógeti og
JÓnas Jónsson frá Hriflu. Eru hinir 2
fyrstnefndu endurkosnir.'én Jónas kem-
ur í stað prófessors Einars Arnórs-
sonar. Kaus Framsókn Jónas til þess
að hressa upp á heiður hans eftir
hirtingu Efri deildar.
— í hina svokölluðu orðunefnd
voru kosnir, þeir Klemens Jónsson og
Guðm. Björnsson landlæknir. Ráðstaf-
ar nefndin Fálkaorðunni íslenzku. —
Kosning á einum manni í stjórn
Minningarsjóðs Jóns Sigurðssonar
frá Gautlöndum fór þannig í Nd. að
Ingólfur Bjarnason alþm. var kosinn
með 14 atkv., Guðm. Friðjónsson
fékk 13 alkv. Yfirskeðunarmenn Lands-
reikninganna voru kosnir Magnús Jóns-
son dósent, Jörundur Brynjólfsson og
Árni Jónsson frá Múla.
Pá voru 5 þingmenn kosnir í nefnd
til þess að undirbúa hátíðahaldið á
Þingvöllum 1930 — 1000 ára afmæli
Alþingis.
Linoleum
kemur með e.s »Bro« um næstu
helgi.
Tómas Björnsson.
Veggfóður,
margar tegundir, nýkomið.
-„Vaskabelræk" 3,10-5,30-
Tómas Björnson.
Málningavörur
allskonar, mjög góðar og ódýrar
fást hjá
Tómasi Björnssyni.
Rrossspönn
fæst hjá
Tómasi Björnssyni.
Ritvél mína
í ágætu standi (með íslenzku letri) vil
eg selja fyrir 150 kr. Finnið mig
áður en >Goðafoss« kemur.
Arthur Gook.
Gott herbergi
til leigu, R. v. á.
Klæðaverksmiðjan Gefjun
Verksmiðjufélagið á Akureyri Ltd.
Frá 1. júní n.k. lækkar verð á öllum framleiðsluvörum verk-
smiðjunnar, svo að um munar.
Jafnframt viljum vér benda heiðruðum viðskiftavinum vorum
á, að verksmiðjan er vel birg af allskonar dúkum við allra hæfi,
sem fyllilega þola samanburð erlendra dúka, hvað snertir útlit,
gæði og verð.
pr. Klœðaverksmiðjan Gefjan
Verksmiðjufélagið á Akureyri Ltd.
fónas Pór.
L í n a .
Árabáta-, mótorbáta- og skipalína, uppsett og fullgerð til
veiða, fæst hjá
Ingvari Guðjónssyni.
Hafnarvörður,
sem jafnframt á að vera lögregluþjónn, verður ráðinn um 4
mánaða tíina á þessu sumri. Þeir, sem sækja vilja um starfann,
sendi umsóknir til mín fyrir 4. næsta mánaðar.
Akureyri 28. maí 1926.
Bæjarstjórinn.
| P. W. Jacobsen & Sön
| Timburverzlun
i Símnefni: Granfuru Stofnuð 1824 Carl-Lundsgade,
* New Zebra Code. Köbenhavn C.
Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Khöfn.
Eik til skipasmíða. — Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð.
Biðjið umtil boð. Aðeins heildsala.
Úrgangs-fiskur
verkaður og góður til manneldis fæst í
Verzlun Sn. Jónssonar.
Silkolin
Munið eftir að biðja kaup-
mann yðar um hina alþektu
» S I L KO L I N « ofnsvertu.
Engin ofnsverta jafnast á við
hana að gæðum!
Andr. J. Bertelsen.
Austurstræti 17. Reykjavík.
Motor-
Cylinder-
Olíur
Mikið og fjölbreytt úrval affyrsta
flokks amerískum Mótor-cylinder-
O L í U M.
Verðið sanngjarnt!
Jón E, Sigurðsson.
Verzl. Hamborg.
Akureyri.