Íslendingur - 26.08.1927, Side 4
4
fSLENDlNGUR
K V i t t u n.
Eg verð líklega að gera Jónasi
Porbergssyni aðvart utn það, að eg
hefi veitt eftirtekt vesaidardropanum,
sem lekið hefir úr penna hans (mið-
stöðinni?) í 20. tbl. Dags þ. á , til
andsvars ádeilu minni á formann
Búnaðarfélags íslands, úí af framkomu
hans og stjórnar Bf. í. gagnvart bún-
aðarmálastjóra, sem ísl. flutti 22.
aprí! s. I.
í grein minni í ísl. færði eg gild
rök að vítaverðri framkomu form. Bf.
í. gegn búnaðarmálastj., þar sem hann
með lognum sökum og ófrægingum
ræðst á S. S. og sviftir hann stöðu
sinni fyrirvaralaust.
í stað þess að viðurkenna þetta
grípur hann (þ. e. J. F\) til hinna Jón-
asarlegu vopna, ósannindanna, er hann
segir, að það séu verlt íhaldsflokksins,
nokkur hluti hans hafi unnið það til,
að sparka Valtý úr stjórn Bf. í. og
koma Magnúsi á Blikastöðum í stjórnina
í hans stað, og með því hafi þeir ætlað
Sigurði skilyrðislausa frávikning. En
Jónas veit nú betur, — að það eru 3
Framsóknarmenn, þeir Halldór Stefáns-
son, Jörundur og Ágúst Helgason,
sem sæti áttu í landbúnaðarnefnd Al-
þingis 1926, sem eiga hér fyrst og
fremst hlut um val hinna þingkjörnu
fulltrúa í stjórn- Bf. í., ásamt 2 íhalds-
mönnum af 5, sem í nefndinni voru.
Pað var því meirihluti íhaldsmanna,
sem vildu að Valtýr væri endurkosinn
í stjórn Bf. í., en greiddu ekki atkvæði
um kosningu þeirra Magnúsar og
Tryggva, er meirihluti nefndarinnar
synjaði þeim um hlutfallskosningu; það
sjá því allir, að það eru Framsóknar-
mennirnir 3, sem ráðið hafa kosningu
þeirra Magnúsar og Tryggva. Að
fyrir þeim hafi vakað skilyrðíslaus
afsetnitig Sigurðar, skal eg ekki rengja
Jónas um, honum munu kurinug
vinnubvögð flokksbræðra sinna og
hugaiþel í garð Sigurðar. En fiam-
koma Tryggva efíir endurkosninguna
gagnvart Sigurði ber hér glegst vitni.
Tii að sýna, að eg fari hér rétt með
gang þessa máls í landbúnaðarnefnd Al-
þingis 1926, gefeg hér einum nefndar-
manninum, Árna Jónssyni, orðið:
»Eins og kunnugt er, eru þingkjörnu
fulltrúarnir í stjórn Búnaðarfélagsins kosnir
af landbúnaðarnefndum beggja deilda sam-
eiginlega. I" landbúnaðarnefnd neðri deild-
ar eiga 5 menn sæti, en í efri deildar nefnd-
inni 3. Þessir áttu sæti í landbúnaðar-
nefnd neðri deildar: Árni fónsson, Hákon
Kristójersson og Jón Sigurðsson kosnir
af íhaldsflokknum og Halldór Stejánsson
og Jörundur Brynjóljsson kosnir af Fram-
sóknarflokknum. í efri deild nefndarinnar
áttu sæti: Ágúst Helgason kosinn af Fram-
sóknarflokknum, Eggei;t Pálsson og Gunn-
ar Ólafsson, kosnir af íhaldsflokknum.
Af þessum 8 mönnum, sem fjalla áttu
um kosninguna hafði Íhaldsflokkurinn
þannig 5 fulltrúa, en Framsóknarflokkurinn
þrjá.
Postulinn skrifar : »Og í staðinn (þ. e. a.
s. fyrir V. St.) setti stjórnarflokkurinn
mann, sem allir vissu að bar sérstakan
óvildarhug til Sigurðar forseta.*
Þegar til kosninga kom, varð það ljóst,
að íhaldsflokkurinn var skiftur. Þrír íhalds-
menn, Á. }., E. P. og O. Ó. vildu endur-
kjósa Valtý Stefánsson. En tveir vildu
heldur Magnús Þorláksson á Blikastöðum.
íhaldsmennirnir þrír seni nefndir voru,
fóru fram á að höfð væri hlutfallskosning
eins og tíðkast hefði. Var gengið til at-
kvæða um það og till. feld með 4 atkv.
gegn 3. Einn nefndarmannanna, H. St.,
greiddi ekki atkv. Var síðan gengið tit
skriflegrar kosningar. Á. J. og E. P. viku
þa af fundi, en þriðji maðurinn, O. Ó.,
skilaði auðum seðli. Síðan var Magnús
á Blikastöðum kosinn í stjórnina með 5
samhlj.atkv.,Framsóknarfulltrúanna þriggja
og íhaldsfulltrúanna tveggja.
FOOTWEAR COMPANY.
Gúmmístígvél
með
Hvííuœ botni
Byrgðir af:
Hvítum og
brúnum striga-
skófatnaði með
gúmmíbotnum
mnusKor
BERNHARD KJÆR
Gothersgade 49, Köbenhavn
Telegr. Adr. »HoImstroin«
K.
Jónas fullyrðir, að Magnús hafi verið
kosinn í stjórnina til þess að koma
Sigurði búnaðarmálastjóra fiá. Ekkert
get eg um það sagf, hvað fyrir þeim vakti,
sem að kosningu hans stóðu. En hafi
svo verið, þá getur Jónas fyrst og fremst
kent það fulltrúum Framsóknarflokksins
i landbúnaðarnefndum. Þeir stóðu þar
allir sem einn maður. Með þeim var
kosningin hreint flokksmál. Hins vegar
studdu aðeins tveir íhaldsmenn af' fimm
kosningu þessa manns, sem Jónas segir
að allir hafi vitað, að borið hafi »sérstakan
óvildarhug* til búnaðarmálastjóra.
En hvað er um Tryggva Þórhallsson?
Hann er kosinn af öllum sömu mönnum
og Magnús á Biikastöðum. Ef þessir
menn hafa viljað S^»urð feigan í stöðunni
og kosið Magnús til þess að koma fram
vilja sínum, er þá líklegt að þeir hafi í
sömu andránni kosið Tr. Þ. í stjórnina til
þess aJ haida hlífiskildi yfir Sigurði?
Engum heilvita nianni dettur það í hug
Tr. Þ. hafði búið þær ákærur á hendur
Sig., sem landbúnaðarnefnd bygði álit
sitt á. Allar þessar ákærur hef/r Tr. Þ.
endurtekið í greinargerð Búnaðarfélags-
stjórnarinnar. Ákærurnar um ofsókn á
hendur búnaðarmálastjóranum lenda þess
vegna fyrst og fremst á Tr. Þ.
Annað mál er það, að Tr. Þ. var í
sumar orðið kunnugt um, að málið mundi
mælast illa fyrir. Þá gerir hann tilraun
til þess að hlaupa frá afleiðingum gerða
sinua, með því að skjóta máli sínu til
Búnaðarþings.c (Vörður 42. tbl. 1926).
Parf hér ekki frekar vitnánna við,
að Árni Jónsson viti hér betur en
Jónas Þorbergsson. Þá kem eg að
þeim orðum J. Þ., er hann segir:
»Tr. Þ. vildi að staðan væri Iaus á
Búnaðarþingi, sem hafði máiið til ratin-
sóknar og úrlausnar. Hann hamlar
því, að staðan væri veitt á síðastliðnu
hausti. Hann hamlar því, að Sigurð-
ur væri á síöastl. vetri rekinn eða jafn-
vel borinn út úr húsum Búnaðarfél.
Loks leiðir hann málið til þeirra úr-
slita, er urðu á Búnaðarþingi.* ! !
Þessi framkoma Tryggva minnir
óueitanlega á gainlan kunningja úr
Njálu, Björn í Mörk. Birni var svo
lýst: »Ok hafði Björn í sínu orðinu,
hvórt at hann vildi flýja sem harðast
eða hann vildi bíða ok taka í móti.*
Það er broslegt eftir að Tryggvi
hefir reynt að hafa æru og mannorð
af Sigurði með tilbúnum áburði, áð
heyra sögur af kostmannlegri vörn
Tryggva fyrir málstað Sigurðar, það
Iíkist nokkuð raupi Björns í Mörk, er
hann sagði Valgerði konu sinni sögur
af hugrekkis- og hreystiverkum sínum.
»Og hann (þ. e. Tr. Þ.) leiddi
II
a
Rapmótorinn þykir beztur b^ta- og skipamótor í Noregi, og hefir
hann fengið þar langmesta úíbreiðslu allra mótora á s.l. 3 árum.
Mótorinn er fábrotinn, afar olíuspar, gangviss, ódýr og traustbygður
úr úrvals efni.
Nokkrir Rapmótorar hafa þegar verið keyptir á Austfjörðum og
reynst ágætlega.
Aliar uppiýsingar um Rapmótorinn, sem lysthafendur kynnu að óska,
gefur undirritaður.
Einar Gunnarsson,
aðalumboðstnaður fyrir Rapmótorinn á Norðurlandi.
málið til þeirra úrslita*), er urðn á
Búnaðarþingi,« segir jónas. Það er
[)á Tryggva að kenna hin hneykslan-
lega meðferð málsins á Búnaðarþingi.
Tryggva að kenna að Búnaðarþingið
brást trausti manna um »rannsókn og
útskurð*, en breiddi loðinn lepp
vesaldóms og undanbragða yfir málið.
Tryggva að kenna að Sigurður fær
aðeins hálfa uppreisn. Tryggva að kenna
að Búnaðarþingið leggur blessun sína
á brot gegn lögum Búnaðarfélagsins.
Tryggva að kenna sá þverbrestur,
sem hefir orðið á trausti og tiltrú til
Búnaðarþings og Búnaðarfél.stjóinar.
Loddaraleik Tryggva í þessu máli
verður ekki svarað viðuuandi á annan
hátt e» með stöðumissi í stjórn Bf. í.
Bændur geta ekki Falið arftaka Björns
í Mörk forustu í Búnaðarfélagi ísiands.
Grein Jónasar Þorbergss. er ekki
endaslepp með Jónasar-háttinn; klikkir
hann út með persónulegu níði í minn
garð; er það að vísu vanaleg til-
hneiging mannsins þessa, en sorglegt
vitni þess, hvað lítill og itlur efnivið-
ur hefir verið í manninum, þrátt fyrir
að hafa þó getað notið handleiðslu
föðurs til þessa dags.
Ef ummæli J. Þ. um föður minn
væru frá þeim manni, sem góðir
menn tækju mark á, væru þau þakka-
verð, en um leið þungur dómur yfir
stefnu Jónasar og hanslíka í »Samvinnu-
málum«. Um það vita kunnugir best.
Þá er Jónas af venjulegu þrællyndi,
að bera mér á brýn, að eg sé ættar
og stéttar skömm vegna »uppeldis í
skólanum á Svalbarði.®
Sennilega ber að skilja þeita svo
*) Auðkent af mér. J. L.
sem hjá rnér gæti einhverra áhrifa
frá bóndanum á Svalbarði, og líkar
mér all-vel, því framkoma hans í þjóð-
rrtálum og framkvæmdir á Svalbarði
bera þess glögt vitni, að hann ann
sinni þjóð og er sótni íslenzkra bænda.
Annars verður það seint talið lastvert
rreðal drenglundaðra manna, að áhrif
góðra manna gæti hjá einum og
öðrum.
Gunnar á Hlíðarenda verður ekki
lítils viitur, þótt hann sækti ráð til
vitringsins Njáls. En þrællinn Þor-
björn Öngull hefir jafnan lítinn sóma
af ráðum fóstrunnar.
[óh. Laxdal.
(Sökmn rúrnleysis í blaðinu, hefir grein
þessi orðið að bíða í lengri tíma. Ritstj.)
LINOLEUH
Margar gerðir fyrirliggjandi
— A. B. C. —
fæst í verzlun
Péturs tl. Lárussonar.
Handskorið
neftóbak
fæst í verzlun
Péturs H. Lárussonar.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.