Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 29.05.1931, Qupperneq 3

Íslendingur - 29.05.1931, Qupperneq 3
ÍSLENDINGUR 3 Verzlniin NORBURLAND er flutt í hús Bifreiðastöðvar Akureyrar við Strandgötu. lnnilegt þakklœti vottum við öll- utn þeim, er minntust okkar og sýndu okkur vinarhug á silfurbrúð- kaupsdegi okkar 12. þ.m Maren og Einar Gunnarsson. Innlend: Undirréttardómur er fallinn í máli Rórðar Flygenrings. Er hann dæmd- ur í 18 mánaða betrunarhúsvist og sviftur æfilangt rétti til að reka eða stjórna verzlun eða öðru atvinnu- fyrirtæki. Var dæmdur fvrir svik og brot á 5 greinum 26. kafla hegn- ingarlaganna. Beinteinn Bjarnason var dæmdur í 30 daga einfalt fang- elsi og Ingólfur Ffygenring í 1500 kr. sekt. Verkamaðurinii og fiskverkendur. Vkm. frá 23. þ. m , segir að fisk- verkendur hafi brotið taxta verka- kvennafélagsins í>Eining«. Retta er alls ekki rétt. Ef fiskverkendur hefðu gengið að taxta þeim, sem verka- kvennafélagið setti í vor, og gilda skyldi frá 1. maí, og síðan ekki greitt þar ákveðið kaupgjald, þá hefði verið hægt að segja að þeir hefðu brotið taxtann. En um þetta er ekki að ræða, því verkakvenna félagið hefir alls ekki grenslast eftir því, hvort íiskverkendur gætu greill taxta félagsins. Hér er því ekki um neitt taxtabrot að ræða, heldur það, að fiskverkendur hafa lýst því yfir, að þeir gætu ekki greitt hærra kaup, en í fyrra. Og í raun og veru geta þeir ekki einu sinni greitt jafnhátt kaup, þó þeir hafi ákveðið að gera það f þeirri von, að tíðin verði þeim hagstæð. Rað er sannanlegt, að flestir fisk- verkendur á Akureyri hafa tapað á fiskverkun s. 1, ár. Regar miðað er við 20 kr. verkunargjald á stórfisk og Labradorfisk. Tíðin var stirð frá ágústmánaðarbyrjun og hefir það haft sín áhrif. En það sem mestu hefir valdið um slæma reikningslega útkomu er hið háa kaupgjald og þó sérstaklega á fiskþvottinum. Hvergi á landinu er greitt eins mikið fyrir fiskþvott og á Axureyri. Nú er greitt hér 75 aurum meira fyrir þvott á stórfiskskippundi en á ísafirði og 30 aurum meira fyrir Labradorskippund. Vkm. vitnar í það að verkakonur á ísafirði haíi 85 uura kaup fyrir klukkustund en einnugis 70 aura hér. Mundi ekki láta nærri að jafn- mikið sé greitt í kaup fyrir fisk- verkun hér og á ísafirði þegar til- lit er tekið til þess, hvað hér er greitt hærra íyrir fiskþvott en þar? Vkm. vill setja verkbann á,alla fiskverkendur, líklega á öllum svíð- um atvinnu þeirra, til þess að þvinga þá til að ganga að kauptaxta verka- kvennafélagsins. Við skulum ætla að verkbannið nái tilgangi sínum, en þá þyrfti annað verkbann til þess að þvinga fiskverkendur að halda áfram að iáta verka fisk, því enginn þeirra leggur út í það með hærra kaup- gjaldi en í fyrra. Til þess yrði að hækka verkunargjaldið og kæmi það æði hart við fiskeigendur, útgerðar- menn og sjómenn, og eitthvað tillit þarf að taka til þeirra. Rað vilja fiskverkendur gera jafnframt því sem þeir vilja halda við þessari al- vinnugrein, fiskverkun, sem'er mjög þægileg kvenfólki og unglingum Fiskverkpn á Akureyri færir íbú- unum líklega um 300 þús. króna at- vinnu. Ress myndi einhversstaðar vart, ef þessi, alvinnugrein legðis niður og verkalaunin féllu í hendur útlendinga t. d. Englendinga. En til Englands er árlega fiutt mikið af óverkuðum fiski, sem svo er verk- aður þar. Slíkur útfiuthingur myndi aukast, ef kaupgjaldsboginn hér heima yrði spentur of hátt. Eftir að þetta er skrifað hefir birst í Vkm, ein hin svívirðilegasta grein, sem þar hefir birst og er þá langt til jafnað. Greinin eru sam- fléttaðar svivirðingar um fiskverk- unarstúlkur. Greinin telur fiskvei k- unarstúlkur lifa á sama stigi og dyrin, en kreíjist þess þó að fá að lifa á æðra stigi, en atvinnurekend- ur standi þar á móti með því að ganga ekki inn á kauptaxta verka- kvennafélagsins. Kaflinn, »Launakúgun og vinnu- þrælkun« í greininni er svo ósvíf- inn, að það er varla að slíkt geti hafa fæðst í huga nokkurs kven- manns. Eða geta fiskverkunarstúlk- ur tekið það til sín að þær vanræki heimilin, eiginmann og börn eins og þar er lýst. Ég geri ráð fyrir að þær láti einmitt það sitja í fyirrúmi fyrir öllu öðru. Setningarnar, 'pœr verða seint taldar allar syndir auðdrottnanna i garð kvenna. Meö launakiigun og þrœlkun hej'ir peim tekist að gera kynferðið aö verslunarvöru)«, er ekki hægt að skilja á annan hátt en þann að íiskverkunarstöðvarnar séu vænd- iskvennahús og þarf þá ekki að íara í graígötur um hverjar »Verkakon- an« ætlar að séu vændiskonurnar. En svo virðist að »Verkakonán« sé ánægð yíir slíku bara, ef kauptaxt- inn sé greiddur. Hinar tilvitnuðu setningar hljóta að vekja kröfu fiskverkunarstúlkna um að greinarhöfundur gefi sigfram, og að fiskverkunarstúlkur geti fylgt sama félagsskap áfram og greinar- höfundur er útilokað. Fiskverkunarstúlkur! Munið kinn- hestinn. K. Leiðréfting. í 22. tbl, í greininni uin landsreikning- inn 1929 hafa af rnisgáningi nokkrar línur fallið niður á einum stað og ineð því raskast frásögnin. Klausan, sem þetta óhapp kom fyrir, átti að hljóða svo: „Til skýrslugerða, utan hagstofu og stjórnarráðs, hefir verið varið rúm- lega 14 þús. kr. — og þessutan er full- yrt að um 100 þús. kr. hafi gengið í ýmiskonar nefndastarfsemi, þó minnst af því komi fram á reikningum, og hefir allt þetta fé verið greitt í heimildarleysi. — Pá eru færðar til útgjalda kr. 9450,00 fyrir „Útdrátt nokkurra mála“ og spyrj- ast endurskoðunarmenri fyrir um hvern- ig á þeim greiðalum standi — en stjórn- in neitar að svara, segir að almenningur fái að vita það á sinum tíma. — Slík svör gefur stjórnin trúnaðarmönnum Al- þingis.“ Sel mold og plöntur á mánudögum. Heima kl. 10-12 f. h. JÓN BALDVINSSON. 1 eða 2 stúlkur vantar í kaupavinnu í sumar að Höfða í Höfðahverti. Nánari upp- lýsingar gefur SVEINN ÞÓRÐARSON, hjá K.E.A. Ur heimahðgum. Kirkjan: Messað á Akureyri kl. 11 f.lr. á sunnudaginn. Framboðsfundurinn, er halda átti lrér á annan í Hvitasunnu, fórst fyrir vegna veikinda frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins — Guðbrandar Isbergs. — Lagðist hann á laugardaginn í slæmri kvefsótt, með háum hita, og hefir legið rúmfastur síð- an. í gær var hanu hitalaust og mun að líkmdum geta tekið þátt í framboðs- fundinum sem nú er ákveðið að haldinn verði í Samkomuhúsinu á sunnudaginn og hefjist kl. 4 síðd. Dr. Alexandrine kom í gærkvöldi. - - Margt farþega, þar á. m. Pórsteinn Sig- valdason veiziunarstjóri og Ingvar Guð- jónsson útgerðarmaður. Guðm. Pétursson úlgeiðarmaður hefir verið kosinn af útgerðarmönnum í út- flutningsnefnd Síldareinkasölunnar í stað Ásgeirs bróður síus, og Jón Arnesen kon- súll varamaður. Rússavíxlarnir, fyrir síldinni frá í fyrra, hafa nú verið seldir. Gaf ríkisstjórnin — með samþykki allra þingflokkanna — ríkisábyrgð fyrir þeiin, svo hægt væri að selja þá. — Útborgun á hlut útgerðar- nranna og sjómanna mun fara fratn iiæstu daga, og verður úlborgað kr, 1,50 á luniiu, Prófessor Þórður Sveinsson kom með Drotningunni,- Verður hauri prófdómari við stúdentspróf Menntaskólans hér. Ljðsmóðirin jórunn Bjarnadóltir er flutt í Oddeyrargötu 38. Leiðréttingar. 1 tilkynningu um útdrátt skuldabréfa U M.F.A, í síðasta blaði hafði rnisprenlast 1831 fyiir 1931, 75 fyrir 76 og talan 131 fallið burtu. Hjúskapur. Ungfrú Pórunn Einarsdótl- ir og Reimar Þórðarson bílstjóri, tingfiú Sigurlina Aðalsteinsdóttir og Adam Magn- ússon smiður. Ungfrú Jóhanua Krisljáns- dóttir og Guðm. Pórarinnsson smiður. Hér og þar. Kjördæinaverzlun Framsóknar. Einar Árnason fyrv. fjármálaráð- herra lýsti það ósannindi á fundin- urn á Hrafnagili, að nokkurt makk haíi verið milli Framsóknar og jafnaðarmanna í þingbyrjun í vetur, eða síðar um kjördæmabreytingar, þó vera kynni að jafnaðarmenn hefðu eitthvað fært þetta í tal og flytur Dagur í gær yfirlýsingu frá miðstjórn Framsóknar, er gengur í sömu átt. — Aftur* hafa bæði Héð- inn Valdemarsson og Jón Baldvins- son, aðalforingjar jafnaðarmanna, lýst hinu gagnstæða fíir. Hafa þeir lýst því yfir, að þeir hali átt í lang- varandi samningum við Framsóknar- ráðherrana fyrri hluta þingsins, um breytta kjördæmaskipun, og hafi stjórnin boðist til að gera Sigluíjörð og Norðfjörð að sérstökum kjör- dæmdm, og jafnvel vera því fylgj- andi að bæta einum þingmanni við Reykjavík, en jafnaðarmenu vildu vrðtækari breytingar á kjördæma- skipuninni. Segist Héðni Valde- marssyni svo frá um það sem síðar gerðist: »Regar ráðherrana fór að gruna að við jafnaðarmenn værum farnir að tala við Sjálfstæðismenn um stjórnarskrárbreytingarnar, þá kom Tryggvi Rórhallsson að máli við okkur. Talaði hann þá bæði við mig og Jón Baldvinsson, Ráðlagði Stór brjóstnál með upphleyptri steinmynd í silf- urumgerð, tapaðist á 2. í Hvítasunnu. — Skilist gegn fundarlaunum til frú Tulinius, Iiafnarstræti 8. hann okkur, að við skyldum semja við Sjálfstæðismenn um kjördæma- skipunina, og komast eins langt í þeim samningum, eins og við frek- ast gætum teygt Sjálfstæðismenn, fá-hjá þeim eins hagkvæm tilboð fyrir okkur og hægt væri. Lagði hann ennfremur þau ráð á, að við skyldum ekkert afgera um afstöðu okkar jafnaðarmanna, en koma aftur til Framsóknarmanna, og þá skyldu Framsóknarmenn ganga að hag- kvæmari samningum við Alþýðu- flokkinn, en Sjálfstæðismenn hefðu verið fáanlegir til. Hvað eftir ann- að kom Tryggvi Rórhallsson til okkar í þessum erindum. Hans ráð voru ennfremur þau, að við kosn- ingarnar í surnar ætti Framsókn að nota það sem vopn í baráttunni, að Sjálfstæðismenn hefðu gert Alþýðu- flokknum tilboð í þessu efni.« Helir Héðinn skýrt þannig frá á fundum víða um landið, en jaíníramt getið þess, að jafnaðarmenn haii ekkert sinnt þessum málaleitunum Tryggva. Framsóknarþingmaður- inn fón i Stóradal hefir á fundi á Blönduósijátaö frásögn Héðins rótta vera og má þvf ganga út frá því sem nokkurnvegin gefnu, að yfir- iýsing miðstjórnarinnar er tii þess eins framkomin, að slá ryki í augu bænda. Það nui telja fullsannað, að Tryggvi Pórhallsson hejir boðið jaj'naðarmönnum samviumt um aö breyta kjördæmaskipuninni eins og . þeim best Ukaði — og átti fylgi peirra að koma í móti. Töp bankanna. Framsóknarloddarnir revna að leggja töp bankanna, síðustu 10—12 árin, að dyrurn Sjálfstæðis- flokksins; honum eða íhaldsttokkn- um gamla. séu þau aðallega að kenna. Állir vita að ræturnar að hinum miklu töpum bankanna ná miklu lengra fram en bæði Ihalds- ílokkurinn og arftaki hans Sjálf- stæðisflokkurinn — eða til næstu áranna eitir að stríðinu mikla lauk. Árið 1920 var efiaust erfiðasta verzlunarárið, sem komið hefur hér á landi. Rá steig enend vara um helming, en innlend vara féll um helming. Bændur landsins, jafnt og aðrir atvinnurekendur, urðu hart úti eftir þá geysikreppu — og verður engum stjórnmálaflokki um hana kennt — og hvað sízt Sjálfstæðis- flokknum. Ef kenna ætti íslenzkum stjórnmálaflokki töpin, þá yrði að minnsta kosti að láta skuldina skella á þeim flokkum, sem þá voru starf- andi en öðrum ekki. Af stjórn- málaflokkunum þremur, sem nú starfa — kommúnistar koma í þessu sambandi ekki til greina — voru tveir stofnaðir fyrir 1920, Fram- sókn og Alþýðuflokkurinn. íhalds- flokkurinn, sem er aðaluppistaða núverandi Sjálfstæðisflokks, var ekki stofnaður íyr en á þingi 1924. — Aftur hafði Framsókn verið stjórn- arflokkur mest allan tímann frá 1917 fram að stofnun íhaldsflokks- ins, og ber frekast allra stjórn- málalfokkanna ábyrgð á töpum

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.