Fréttablaðið - 20.06.2011, Side 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
KJARAMÁL „Ég sé ekki forsendur
fyrir því að ráðast í stórfram-
kvæmdir í vegagerð, byggðar á
vegatollum, á þessu stigi málsins,“
segir Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra spurður um afstöðu
sína til gagnrýni aðila vinnu-
markaðarins um seinagang í fram-
kvæmdum á vegum hins opinbera.
Hann segir almenna andstöðu við
slíka fjármögnun framkvæmda.
Ráðherra fundaði með full trúum
ASÍ og Samtaka atvinnulífsins
(SA) í gær eftir að þau síðarnefndu
höfðu lýst því yfir að meintur
skortur á efndum ríkisstjórnar-
innar hefði sett endurskoðun á
forsendum nýgerðra kjarasamn-
inga í uppnám. Í dag eða á morgun
kemur í ljós hvort ASÍ og SA telji
forsendur vera fyrir þriggja ára
samningum eða hvort þeir verði
ógiltir og aðfararsamningur látinn
gilda til loka janúar 2012.
„Spurningin snýst um hraða
framkvæmda og hvernig er greitt
fyrir þær,“ segir ráðherra.
Hann bætir þó við að stjórnvöld
leggi sex milljarða króna í nýfram-
kvæmdir í vegamálum í ár og
fimmtán milljarða alls.
„Verkefni okkar er að nýta fjár-
muni með þrennt í huga í senn:
Bæta samgöngukerfið, auka
umferðaröryggi og skapa sem flest
störf við framkvæmdirnar.“
Hann segir rangt að uppkomin
staða skapi forsendubrest varðandi
kjarasamninga SA og ASÍ.
„Við ætluðum að fara yfir stöð-
una og reyna að fá niðurstöður
varðandi flýtiframkvæmdir en
nú standa mál þannig að það eru
ekki forsendur til að ráðast í fram-
kvæmdir fjármagnaðar með veg-
tollum. Þetta er raunsætt mat og í
anda þess sem almenningur vill.“
Pétur Reimarsson, forstöðu-
maður hjá SA, hafnar þessum
rökum ráðherra og segir tafir á
stórframkvæmdum áhyggjuefni.
Pétur segir SA hafa lagt áherslu
á að hægt sé að ráðast í fram-
kvæmdir núna þar sem gjaldtaka
hefjist ekki fyrr en að verki loknu.
„Okkar sýn er sú að aðstæður
í samfélaginu verði þá töluvert
öðruvísi en í dag og að sú viðbótar-
gjaldtaka sem framkvæmdum
fylgi verði hófleg. Þetta séu arð-
bærar og góðar framkvæmdir sem
skipti miklu máli. Við slíka heildar-
endurskoðun yrði þetta hagstætt
fyrir allt þjóðfélagið.“
Varðandi endurskoðun á forsend-
um kjarasamninga segir Pétur að
þetta sé hluti af heildarmyndinni.
„Þetta er þáttur í því hvort við
komum hagvexti og atvinnusköpun
í gang og hvort þjóðfélagið komist
út úr vandanum og það lítur ekki
vel út.“ - þj / sjá síðu 4
Mánudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
20. júní 2011
141. tölublað 11. árgangur
Nú standa mál
þannig að það eru
ekki forsendur til að ráðast í
framkvæmdir fjármagnaðar
með vegtollum. Þetta er
raunsætt mat og í anda þess
sem almenningur vill.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
INNANRÍKISRÁÐHERRA
Spennandi tækifæri
Herborg Eðvaldsdóttir er á
leið í starfsnám hjá Kahla í
Þýskalandi.
allt
Hlýtur gullverðlaun
Emilía Borgþórsdóttir
iðnhönnuður verðlaunuð á
virtri húsgagnasýningu.
tímamót 14
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Herborg Eðvaldsdóttir er á leið í starfsnám í postulínsverksmiðjunni Kahla í Þýskalandi.
Sýningin Hlutirnir okkar stendur nú yfir í Hönnunarsafni
Íslands í Garðabæ. Þar gefur að líta fjölbreytt úrval af safngripum
í eigum safnsins. Má þar nefna verðlaunalampann Heklu frá
1962 eftir Jón Ólafsson og Pétur B. Lúthersson húsgagna-
hönnuði sem safnið fékk að gjöf í tilefni sýningarinnnar.
Spennandi tækifæriÞ etta verður skemmtileg upplifun,“ segir Her-borg Eðvaldsdóttir, einn þriggja nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík sem valdir voru í starfsnám í postulínsverksmiðjunni Kahla í Þýskalandi. Tilkynnt var um valið á alþjóð-legu sýningunni DMY í Berlín á dögunum, þar sem sjö nemendur skólans sýndu verk sín.„Við fáum fullan aðgang að verkstæðum, efnum og sérfræðingum verksmiðjunnar í þrjár vikur. Það hljómar ekki langur tími en ofnarnir eru öfl-ugir og vinnuferlið gengur hraðar en hér,“ segir Herborg. Hún segir spennandi að fá að kynnast starfsemi svo stórrar verksmiðju og að starfs-námið geti opnað ýmsa möguleika í framtíðinni.Herborg sýndi samsettan blómavasa í Berlín. „Ég var orðin leið á að leita eftir vasa sem hent-aði undir blómvendi. Ég gerði því vasa sem hægt er að stækka og minnka eða raða saman eins og skúlptúr. Eins er hægt að snúa stykkjunum við og nota sem kertastjaka,“ segir Herborg, sem sér sjálf um framleiðslu vasans. „Ég er að koma mér upp vinnuaðstöðu og kemst vonandi af stað í haust. Draumurinn er auðvitað að láta fjöldaframleiða hann.“Nánar má kynna sér verk nemendanna á síðunni www.atriptothefactory.com.
heida@frettabladid.is
Gleðilegt grillsumar www.weber.is
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opnunartími:mánud.-föstud. kl. 11:00 - 18:00 Lokað laugardaga
ÚTSALA
MIKIÐ ÚRVALAF FALLEGUM
FATNAÐI
FASTEIGNIR.IS
Inná www.landmar .is er hægt að panta
verðmat ða selja í sölu.
...Og við höfum samband um hæl!
Land ark fasteignasala
- Þú hringir – við seljum!
KÍKTU INNÁ WWW.LANDMARK.IS – ÖFLUGUR HÓPUR SÖLUMANNA!
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
20. JÚNÍ 2011
25. TBL.
Hraunhamar fasteignasala hefur til sölu
glæsilegt einbýli á einni hæð með sérstæðum
bílskúr í Hafnarfirði.
E inbýlið stendur við Steinahlíð í Hafnarfirði og er í heildina 168 fermetrar.Góður inngangur er á húsinu og komið er
þvottaherbergi með sérútgangi er einnig í fasteign-inni.
Í svefnálmu eru tvö góð barnaherbergi með skáp. Þá er rúmgott svefnherbergi með skáp og útgangi út í garðinn. Einnig er flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtuklefa, vandaðri innréttingu og glugga.
Innfelld halógenlýsing er í stofu, borðstofu og sjón-va kál Þ
Einbýli á rólegum stað
Eignin er fullbúin og vönduð.
Lactoghurt
daily
þ j g
innar og komið á jafnvægi.
Ráðlagður dagskammtur er 1 hylki á dag.
Lactoghurt fæst í apótekum.
S
1
1
3
0
1
3
Einstök blanda mjólkursýrugerla
fiskurinn
Mánudags
Fáðu uppskriftina
á gottimatinn.is
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 3.990 m2 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Með nál og tvinna á lofti
Charlies-stelpurnar sitja
sveittar og sauma.
fólk 26
NOKKUÐ BJART Í dag verður
fremur hægur vindur víðast hvar.
Bjart með köflum SV-lands en líkur
á skúrum seinnipartinn. NA-lands
léttir til með deginum.
VEÐUR 4
7
12
8
6
8
Þurftum meiri tíma
Eyjólfur Sverrisson fer yfir
þátttöku Íslands í EM U21 í
Danmörku.
sport 22
FÓLK Íslenski arkitektinn Gulla Jónsdóttir
hefur fengið það verkefni að endurhanna
hið fræga kvikmyndahús Grauman‘s
Chinese Theatre í Hollywood. Húsið var
vígt árið 1927 og á sér mikla sögu, þar sem
Óskarsverðlaunahátíðir voru haldnar þar
á árum áður. Margir tengja húsið við hina
sögufrægu stétt framan við leikhúsið þar
sem sjá má handarför yfir á annað hundrað
stjarna í steypunni.
„Þetta er rosalega spennandi verkefni en
húsið er friðað, þannig að fara verður varlega. Mig
langar að endurskapa þennan gamla Hollywood-
glamúr sem tilheyrir fortíðinni,“ segir
Gulla þegar Fréttablaðið nær af henni tali.
Gulla stendur í stórræðum því á dögunum
hlaut hún verðlaun í arkitektúr í flokki
næturklúbba fyrir hönnun næturklúbbsins
Roxbury í Hollywood. Verðlaunin eru veitt
árlega af tímaritinu Hospitality Design og
þykja mikil viðurkenning. Mynd af nætur-
klúbbnum prýðir forsíðu tímaritsins um
þessar mundir. Auk þessa á Gulla í sam-
starfi við franska hönnuðinn Phillippe
Starck um hönnun innandyra á Bellagio-hótelinu í
Las Vegas. - jma
Gulla Jónsdóttir arkitekt hlaut verðlaun fyrir hönnun næturklúbbs í Los Angeles:
Endurskapar gömlu Hollywood
FÓLK Gunnlaugur Sigurðsson,
sem útnefndur er Reykvíkingur
ársins 2011, rennir fyrstur fyrir
lax þegar veiði hefst í Elliðaánum
í dag. Með því er brotin áratuga
hefð fyrir því að borgarstjórinn
í Reykjavík ríði á vaðið í ánum í
boði Stangaveiðifélags Reykja-
víkur.
Gunnlaugur, sem er 79 ára
fyrrverandi lögreglumaður, býr í
Fellsmúla. Nágrannar segja hann
hafa haldið sameign og lóðum
fjölbýlishúsanna við Fellsmúla 13
og 15 hreinum í áratugi án þess
að þiggja greiðslu, auk þess að
hreinsa burt illgresi við gang-
brautarkanta í nágrenninu.
„Gunnlaugur hefur alla burði
til þess að vera í hópi fyrir-
myndar Reykvíkinga, sem láta
sér annt um umhverfi sitt og
stuðla jafnframt að friðsælu sam-
býli fólks með ólíkar skoðanir og
viðhorf,“ segir í tilkynningu frá
borgaryfirvöldum. - gar
Borgarstjóri fær staðgengil:
Lögreglumaður
á eftirlaunum
fyrstur í laxinn
Stórframkvæmdir í biðstöðu
Innanríkisráðherra segir ekki forsendur fyrir stórframkvæmdum í vegagerð vegna almennrar andstöðu við
vegatolla. Breyti þó engu varðandi kjarasamninga. SA segir tafir á framkvæmdum vera mikið áhyggjuefni.
GULLA JÓNSDÓTTIR
ANNIR Á KVENNAFRÍDEGI Sjá mátti og reyna verklag fyrri tíma á Árbæjarsafninu í blíðunni
á Kvennafrídeginum í gær. Ásta Fanney leiðbeindi Rögnu Dúu og Kolbrúnu Köru við að vinda þvott með gamla
laginu og Guðrún fylgdist með. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG