Fréttablaðið - 20.06.2011, Side 4

Fréttablaðið - 20.06.2011, Side 4
20. júní 2011 MÁNUDAGUR4 VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 27° 25° 20° 16° 18° 23° 19° 19° 27° 19° 28° 27° 36° 20° 23° 25° 18°Á MORGUN Fremur hægur vindur víðast hvar. MIÐVIKUDAGUR Fremur hægur vindur víðast hvar. 7 10 8 5 6 9 8 87 6 11 9 12 9 8 8 3 3 5 5 3 45 4 5 4 2 710 6 7 5 ÁGÆTT Fremur hæg N- og NA- læg átt víðast hvar næstu daga. 5-15 stig að deginum, hlýast SV-lands. Líkur á næturfrosti í innsveitum NA- lands. Gera má ráð fyrir einhverjum skúrum SV-lands næstu daga. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður ÍTALÍA, AP Umberto Bossi, formaður Norðurbandalagsins á Ítalíu, hefur sett forsætisráðherranum Silvio Berlusconi afarkosti fyrir áframhaldandi samstarfi. Berlusconi hefur beðið hvert áfallið á fætur öðru undan farna mánuði en Bossi segir engu að síður að óskynsamlegt sé að efna til kosninga nú. Í ræðu á ársfundi Noðurbanda- lagsins í gær setti hann ströng skil- yrði fyrir framtíðarstuðningi. Bossi krefst þess meðal annars að skattar lækki, tvö ráðuneyti hið minnsta verði flutt til norðurhluta landsins og hernaði verði hætt í Líbíu. - þj Norðurbandalagið á Ítalíu: Setur Berlus- coni úrslitakosti RÚSSLAND Rússneski aðgerðar- sinninn Jelena Bonner er látin eftir langvinn veikindi, 88 ára að aldri. Lést hún í Bandaríkjunum á laugardag. Bonner var virk í baráttu fyrir mannrétt- indum í Sovét- ríkjunum á sjöunda áratug síðustu aldar. Árið 1972 gift- ist hún kjarnorkuvísindamann- inum Andrei Sakharov, sem vann friðarverðlaun Nóbels þremur árum seinna. Hátt settir evrópskir stjórn- málamenn minntust á laugardag baráttu Bonner fyrir mannrétt- indum. - mmf Hátt settir minntust Bonner: Jelena Bonner lést á laugardag UMBERTO BOSSI JELENA BONNER SAMGÖNGUR Sveitarstjórnarfólk á Suðurlandi segir andstöðu almenn- ings við vegtolla ekki þurfa að standa nauðsynlegum vegafram- kvæmdum fyrir þrifum. Ögmund- ur Jónasson innanríkisráðherra sagði að loknum fundi með aðilum vinnumarkaðarins í gær að sökum andstöðu almennings og atvinnu- rekenda væru ekki forsendur til að ráðast í stórframkvæmdir á grund- velli vegtolla. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar- stjóri í Hveragerði, segir ótrúlegt að ekki skuli enn vera hafnar fram- kvæmdir við Suðurlandsveg. „ Þ a ð m á áfangaskipta þessu meira en hingað til hefur verið ráðgert og hefja þann- ig framkvæmd- ir strax, þrátt fyrir að þær muni taka lengri tíma. Það má svo bæta því við að vegfarendur borga í dag háar upp- hæðir til ríkisins, til dæmis í formi eldsneytisskatta, sem fara að stóru leyti í aðra málaflokka.“ Aldís segir „órofa samstöðu“ meðal sveitarstjórnarfólks á Suður landi um að íbúar svæðis- ins skuli sitja við sama borð og aðrir landsmenn hvað varðar fjár- mögnun nauðsynlegra vegafram- kvæmda. „Það er skilyrðislaus krafa okkar. Að öðrum kosti hljótum við að gera ráð fyrir því að allar vegaframkvæmdir á Íslandi verði héðan í frá fjármagnaðar með veg- tollum, hvort sem um er að ræða innanbæjar í Reykjavík, yfir Hellisheiðina, eða hvar sem er á landinu.“ - þj Krefjast þess að framkvæmdir hefjist við Suðurlandsveg strax, óháð andstöðu almennings við vegtolla: Sunnlendingar sitji við sama borð og aðrir ALDÍS HAFSTEINSDÓTTIR VILJA HEFJA FRAMKVÆMDIR Sveitar- stjórnarfólk á Suðurlandi vill að fram- kvæmdir hefjist strax við Suðurlandsveg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GENGIÐ 16.06.2011 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,5547 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 116,59 117,15 187,83 188,75 164,39 165,31 22,039 22,167 20,924 21,048 17,896 18,000 1,4444 1,4528 184,74 185,84 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR OSTBORGARI MEÐ FRÖNSKUM + CARLSBERG Á KRANA 20 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið HÓPKAUP.IS Í DAG í krafti fjöldans hópkaup.is 790 kr. GILDIR Í 24 TÍMA 1.750 kr. Verð 55% Afsláttur 960 kr. Afsláttur í kr. PI PA R\ BW A TB P • SÍ A • 11 155 31 STJÓRNMÁL „Eflaust er eitthvað sem má endurskoða en ég tel að við munum byggja á þeim grunni sem þarna er til staðar,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðar- nefndar Alþingis, um niður stöður sérfræðihóps sjávarútvegs- ráðherra um hagræn áhrif frum- varps hans um fiskveiðastjórn. Sérfræðihópurinn segir þær breytingar sem felist í frumvarpi Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- ráðherra vegi að rekstri og stöðu sjávarútvegsfyrirtækja og draga úr arðsemi af fiskveiðum. Hægt væri að styrkja byggðir með öðrum hætti en að beina þang- að veiðiheimildum. Undir þetta tók Björn Valur Gíslason, flokks- bróðir Lilju í sjávarútvegsnefnd, í Fréttablaðinu á laugardag. Nýta mætti arðinn af fiskveiðiauðlind- inni til að búa til ný atvinnutæki- færi. Lilja segir að líta verði á heildar myndina, sem hafi fleiri víddir en aðeins fjárhagslegar. „Kannski ætti hrunið að kenna okkur það að við þurfum að horfa á hlutina út frá fleiri þáttum en bara köldum markaðshyggjulög- málum. Þeir landshlutar sem liggja vel að miðunum verða að geta treyst því að þeir geti byggt afkomu sína í grunninn á sjávar- útvegi og vinnslu og þjónustu- greinum sem snúa að þeim geira,“ segir hún og undirstrikar mikil- vægi þess að horft sé á málið í stóru samhengi: „Við getum alveg látið reikna það út að einhver 300 þúsund manns á eyju út í ballarhafi gætu verið einhvers staðar allt annars staðar og látið togara Evrópu- sambandsins sækja fisk í sjó við strendur Íslands. Það væri alveg hægt að gera þannig hagfræðilega úttekt og sýna fram á að það borg- aði sig ekki fyrir okkur eyjar- skeggja að vera yfirhöfuð uppi á þessu skeri,“ segir Lilja. Greinargerð sérfræðihóps sjávar útvegsráðherra verður nú að sögn Lilju vegin inn í heildar- endurskoðun á kerfinu. Fengnar verði fleiri umsagnir í sumar. Síðan verði nýtt frumvarp lagt fram í október. „Byggt verður á þeirri stefnu beggja ríkistjórnarflokkanna að endurskoða fiskveiðistjórnun- arkerfið með heildarhagsmuni þjóðar innar í huga,“ segir Lilja og ítrekar að hún telji fráleitt að ætla að segja við fólk á svæð- um sem liggi vel við sjósókn að reiknað hafi verið út á borðum hagfræðinga að ekki borgi sig að þessi byggðarlög hafi atvinnu af sjósókn. „Ég er ekki farin að sjá að það borgi sig að þær byggðir sem liggja vel að fiskimiðunum hafi ekki möguleika á að draga afla í land – það er þá einhver hagfræði sem ég skil ekki.“ gar@frettabladid.is Hagfræðingar gætu reiknað þjóðina burt Formaður sjávarútvegsnefndar segir stjórnarflokkana áfram byggja á frum- varpi um fiskveiðistjórnum þrátt fyrir gagnrýni sérfræðihóps. Sú hagfræði að það borgi sig ekki að sækja sjó frá stöðum næst fiskimiðunum sé óskiljanleg. LILJA RAFNEY MAGNÚSDÓTTIR Formaður sjávarútvegsnefndar, sem hér sést í brúnni á leið á sjóstöng frá Suðureyri við Súgandafjörð, segir það sína hugmyndafræði að sjávarútvegsbyggðarlög eigi að hafa möguleika á sjósókn til að skapa sér grundvöll. MYND/ÚR EINKASAFNI MENNTAMÁL Háskólinn í Reykja- vík hefur tekið við 200 milljóna króna framlagi sem ætlað er til eflingar starf- semi og rann- sókna innan skólans. Frá þessu greindi rektor Háskóla Reykjavíkur, Ari Kristinn Jónsson, í ræðu sinni við braut- skráningu 470 nemenda frá skólanum á laugar- dag. Bakhjarlar skólans standa að framlaginu, Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins og Sjálfs- eignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun. Í ræðu Ara kom fram að háskól- inn í Reykjavík útskrifaði tvo af hverjum þremur sem lykju tæknimenntun á háskólastigi. - jma Háskólinn í Reykjavík: Framlag frá atvinnulífinu ARI K. JÓNSSON HEILBRIGÐISMÁL Þórir Kr. Þóris- son, fyrrverandi bæjarstjóri í Fjallabyggð, hyggst hjóla frá Seltjarnarnesi til Siglufjarðar og hefst ferðin á morgun. Þórir hjólar til styrktar Iðju, dagvist á Siglufirði sem veitir fötluðum einstaklingsmiðaða dagþjónustu. Markmið ferðarinnar er að vekja athygli á starfsemi Iðju og safna fyrir svokölluðu „skynörv- unarherbergi“, sem er mikilvægt hjálpartæki við þjálfun fatlaðra, en vegna fjárskorts hefur ekki tekist að innrétta slíkt. Hægt verður að styrkja söfnun ina með því að leggja inn á reikningsnúmer: 1102-05-402699, kt. 580706-0880 í Sparisjóði Siglufjarðar. - jma Fyrrverandi bæjarstjóri: Hjólar til styrkt- ar fötluðum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.