Fréttablaðið - 20.06.2011, Side 8
20. júní 2011 MÁNUDAGUR8
SJÁVARÚTVEGUR „Þetta er mjög
góð viðurkenning enda teljum
við að fleiri fyrirtæki muni sækj-
ast eftir umhverfisvottun,“ segir
Gísli Gíslason, ráðgjafi hjá Sjávar-
nytjaráðinu, Marine Stewardship
Council (MSC),
á Íslandi.
MSC í Evr-
ópu og Gísli
hafa gert nýjan
samning um
samstarf sem
felur í sér
að Gísli mun
starfa áfram
f y r i r M S C
hér auk þess að vera tengiliður
Sjávarnytja ráðsins við Færeyjar.
MSC vottar að fiskur komi úr
stofnum sem nýttir eru á sjálfbær-
an hátt. Alþjóðanáttúruverndar-
sjóðurinn (WWF) og stórfyr-
irtækið Unilever stofnuðu
Sjávarnytjaráðið árið
1966 í því augna-
miði að þrýsta á um
umbætur í fiskveiði-
stjórnun og auka eft-
irspurn eftir sjávar-
fangi úr sjálfbærum
veiðum. MSC lítur heild-
rænt á fiskveiðar, ástand fiski-
stofna og aðferðir við að ná aflan-
um. Merki ráðsins er á vottuðum
vörum.
Gísli segir áhuga íslenskra
fyrir tækja á vottun MSC skýr-
ast af því að hún opni þeim dyr að
erlendum mörkuðum.
Sæmark sjávarafurðir í Reykja-
vík fær afhent fyrstu umhverfis-
vottun MSC hér á landi á fimmtu-
dag. Vottunin er veitt eftir úttekt
íslenskra sérfræðinga á nokkrum
fiskveiðiútgerðum undir forystu
Sæmarks. Fyrirtækin gera út á
handfæri, línu og dragnót. Vottun-
in gerir Sæmarki kleift að selja
þorsk og ýsu erlendis með merki
MSC. Umsókn útflutningsfyrir-
tækisins Icelandic Group er enn
í ferli hjá MSC en fyrirtækið sótti
um vottun fyrir þorsk og ýsu fyrir
öll veiðarfæri og á öllum miðum.
Norsk vottunarstofa vinnur að
úttektinni.
Umhverfisvottun
MSC nær um heim
allan og getur nærri
að tíu prósent af
öllum heimsveiðum
séu ýmist þegar með
hana eða umsókn um
slíkt í ferli. Sem dæmi
eru þorskveiðar í Noregi
vottaðar og veiðar í Eystrasalti og
Norðursjó ýmist í ferli eða komn-
ar með vottun.
Í byrjun mánaðar báru tíu þús-
und vörur merki MSC í 74 löndum.
„Þetta er orðin krafa margra
stórmarkaða erlendis. Þeir vilja
hafa vissu fyrir því að fiskurinn
sem þeir kaupa sé úr vel nýttum
fiskistofnum og gera kröfu um
að fyrirtæki geti sýnt fram á að
stofnarnir séu sjálfbærir,“ segir
Gísli Gíslason.
jonab@frettabladid.is
DANMÖRK Danskir karlar eru í
áhættuhópi hvað varðar krabba-
mein og áunna sykursýki og lifa
skemur en kynbræður þeirra í
nágrannaríkjunum.
Skýrsla á vegum Evrópusam-
bandsins var birt nýlega og tók til
ástandsins í 33 löndum. Þar kom í
ljós að karlar eru almennt við verri
heilsu en konur og er þar mörgu
um að kenna. Til dæmis eru konur
líklegri til að leita til læknis og ef
menn fara yfirhöfuð í læknisskoð-
un er það oft of seint.
Það sem er mest sláandi varð-
andi heilsufar danskra manna er
tíðni krabbameins, en þarlendum
mönnum er afar hætt við að fá
krabbamein í endaþarm, eistu og
blöðruhálskirtil.
„Við höfum ekki gert nóg,“ sagði
Svend Aage Madsen, yfirlæknir á
Ríkissjúkrahúsinu, í samtali við
Berlingske tidende. „Sjúkdómur-
inn uppgötvast síðar og dánartíðni
er hærri en í öðrum löndum. Málin
standa ekki vel í Evrópu, en sérlega
illa í Danmörku.“
Félagsskapur um heilbrigðismál
karlmanna þar í landi segir bráða
þörf vera á sérstakri heilbrigðis-
stefnu fyrir karlmenn, bæði hvað
varðar fræðslu og meðhöndlun. - þj
Við höfum ekki gert
nóg.
SVEND AAGE MADSEN
YFIRLÆKNIR Á RÍKISSJÚKRAHÚSINU
Þeir vilja hafa vissu
fyrir því að fiskurinn
sem þeir kaupa sé úr vel
nýttum fiskistofnum....
GÍSLI GÍSLASON
RÁÐGJAFI
Sæktu um
skuldalækkun
strax í dag
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Ekki þarf að sækja um lækkun fasteignaskulda ef öll áhvílandi lán eru í
Landsbankanum. Sækja þarf um ef önnur lánafyrirtæki þurfa að færa niður
skuldir. Ekki þarf að sækja um endur greiðslu vaxta. Skilmála og nánari upp-
á landsbankinn.is, eða í
næsta útibúi.
Skuldalækkun Landsbankans verður aðeins í boði
í fáeinar vikur. Sæktu strax um að lækka skuldir
þínar áður en frestur rennur út.
Lækkun fasteignaskulda - Þú sækir um í næsta útibúi
Lækkun annarra skulda - Þú sækir um í netbankanum
1. júlí
15. júlí
1 Hver er forseti Sýrlands?
2 Hver er nýkjörinn formaður
Kvenréttindafélags Íslands?
3 Edduhótelin héldu upp á
stórafmæli um helgina. Hvað eru
hótelin gömul?
SVÖR
Danskir karlar koma illa út úr heilbrigðiskönnun:
Tíðni krabbameins
og sykursýki er há
1. Bashar Assad 2. Helga Guðrún Jóns-
dóttir 3. Edduhótelin eru fimmtíu ára
TRÚMÁL Pétur Bürcher, biskup kaþ-
ólsku kirkjunnar á Íslandi, hafnar
því að kaþólska kirkjan hafi þagað
þunnu hljóði þrátt fyrir vitneskju
um kynferðislegt ofbeldi innan
kirkjunnar.
Kaþólski biskupinn sendi frá
sér yfirlýsingu á föstudagskvöld
vegna umfjöllunar Fréttatímans
um kynferðisofbeldi sem fyrr-
verandi nemendur við Landakots-
skóla höfðu orðið fyrir af hálfu
skólastjórans, kennara og sam-
starfskonu.
Í yfirlýsingunni kemur jafn-
framt fram að síðastliðinn vetur
hafi biskup kaþ-
ólsku kirkjunn-
ar fengið bréf
þar sem lýst
var kynferðis-
legri áreitni
eins af prestum
kirkjunnar, sem
var nýlátinn.
„Þá kom fram í
bréfinu að bróð-
ir viðkomandi
[brotaþola] hafi orðið fyrir áreitni
af hálfu fyrrum skólastjóra Landa-
kotsskóla og samstarfskonu hans.“
Í framhaldinu bentu fulltrúar
kaþólsku kirkjunnar þolanda
hinna meintu brota á að leita til
yfirvalda og myndi kirkjan veita
alla þá aðstoð sem unnt væri til að
upplýsa málið.
Biskup var boðaður til fundar
í innanríkisráðuneytinu þar sem
gerð var grein fyrir viðbrögðum
við bréfinu og upplýsti hann að
kirkjan ynni að gerð samræmdrar
viðbragðsáætlunar við kynferðis-
brotum í samráði við biskupa ann-
arra Norðurlanda. Þá áréttar bisk-
up að kaþólska kirkjan líti mál af
þessum toga mjög alvarlegum
augum. - mmf
Kaþólska kirkjan bendir fórnarlömbum kynferðisbrota á að leita til yfirvalda:
Vilja aðstoða við að upplýsa málin
PÉTUR BÜRCHER
GARÐABÆR Útikaffihús verður
starfrækt við Arnarnesvoginn í
Garðabæ um helgina og um næstu
helgi. Sett hefur verið upp tjald
og boðið verður upp á einfaldan
mat þessar helgar frá fimmtudegi
til sunnudags. Veitingastaðurinn
Himinn og haf rekur kaffihúsið,
en lóðin við Arnarnesvoginn hefur
verið úthlutuð eigendum kaffihúss-
ins undir veitingastað.
Unnið er að fjármögnun veit-
ingastaðarins, sem á að vera með
gott útisvæði enda eru fjölmargar
gönguleiðir í kring. - þeb
Útikaffihús við Arnarnesvog:
Boðið upp á
einfaldan mat
ARNARNES Kaffi og veitingar verða í
boði um helgar í sumar.
Fyrstu vottun
MSC landað
Alþjóðleg umhverfisvottun á sjávarfangi opnar út-
flutningsfyrirtækjum dyr á erlendum mörkuðum.
Áhuginn hér hefur glæðst mikið. Sæmark fær merki
Sjávarnytjaráðsins í þessari viku.
FISKUR FÆRÐUR TIL HAFNAR Alþjóð umhverfisvottun Marine Stewardship Council
opnar íslenskum fyrirtækjum dyr á erlenda stórmarkaði, segir Gísli Gíslason ráðgjafi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GÍSLI GÍSLASON
UMHVERFISMÁL Fyrirtæki, stofnan-
ir og íbúar í Strandabyggð eru nú
hvött til að taka þátt í hreinsunar-
átaki.
„Kvennakórinn Norðurljós reið
á vaðið með rusltínslu meðfram
vegum á vegum Vegagerðarinnar
og Vinnuskólinn í Strandabyggð
fegrar umhverfið á hverjum degi.
Þá hefur fjöldi íbúa lagt hönd
á plóg með hreinsun í kringum
bæi, tún og fjörur og í kringum
íbúðarhús og götur á Hólmavík
sem er til fyrirmyndar,“ segir á
heimasíðu Strandabyggðar. - gar
Hreinsunarátak á Ströndum:
Kvennakór tínir
rusl við vegina
VEISTU SVARIÐ?