Fréttablaðið - 20.06.2011, Page 10
20. júní 2011 MÁNUDAGUR
LAUGARDAGUR 25. júní – FÉLAGSHEIMILIÐ BORG SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ – ÞRASTALUNDUR
og FÉLAGSHEIMILIÐ BORG
AÐGANGUR ÓKEYPIS að dagskrá
í félagsheimilINU Borg
FÉLAGSHEIMILIÐ BORG
KL. 15:10
KL. 15:45
Suðurlands
Menningarráð
STYKKISHÓLMUR Matís, stærsta
matvælarannsóknafyrirtæki
landsins, hefur ákveðið að vera
með starfsemi í Stykkishólmi í
sumar.
Starfsmenn eiga að aðstoða
matvælaframleiðendur og aðra á
svæðinu sem hafa hug á að reyna
fyrir sér í framleiðslu og vöru-
þróun. Aðstoð verður meðal ann-
ars veitt við vinnslutilraunir og
fyrstu framleiðslu. Ekki verður
þó sett upp sérstök aðstaða fyrir
slíkt í Stykkishólmi heldur hefur
bærinn útvegað skrifstofuaðstöðu
fyrir sumarið. - þeb
Ný starfsemi í Stykkishólmi:
Aðstoða fólk
við vöruþróun
STYKKISHÓLMUR Aðstoð verður veitt við
tilraunir og fyrstu framleiðslu.
Nokkrir sváfu í steininum
Lögreglan á Akureyri hafði í nógu
að snúast vegna Bíladaga sem fram
fóru í bænum um helgina. Átta
fangarými lögreglunnar voru fullsetin
aðfaranótt sunnudagsins. Eitthvað var
um slagsmál og tveir ökumenn voru
stöðvaðir vegna gruns um að vera
undir áhrifum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FÓLK Tvær sýningar voru opnað-
ar í Menntaskólanum í Reykjavík
á laugardag, „Alþingi á sal Lærða
skólans“ og „Jón Sigurðsson og
Reykjavík“. Sýningarnar eru sam-
starfsverkefni afmælisnefndar
Jóns Sigurðssonar og Reykjavíkur-
borgar.
Sólveig Pétursdóttir ávarpaði
gesti í hinum forna þingsal Alþing-
is, en þar hafði húsgögnum verið
stillt upp eins og var á fyrsta
þinginu 1845. Ljósmyndir af þing-
fulltrúum voru við sæti þeirra.
Forseti Alþingis, Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, talaði
um þingið í Lærða skólanum og
formaður borgarráðs, Dagur
B. Eggerts son, um tengsl Jóns
Sigurðs sonar og Reykjavíkur.
Í lokin fluttu nemendur frum-
samið atriði með sögulegu ívafi,
leik og söng.
Sýningarnar verða opnar alla
daga frá klukkan 13 til 17 til 18.
ágúst. - mmf
Tvær sýningar í Menntaskólanum í Reykjavík:
Jón í Lærða skólanum
LÍFSHLAUP JÓNS Björg Brjánsdóttir í hlutverki Ingibjargar Einarsdóttur, konu Jóns, og
Ragnhildur Ásta Valdimarsdóttir í hlutverki vinnukonu. Nemendur í MR fluttu stutt
leikrit um lífshlaup Jóns við opnun sýningarinnar.
DÓMSMÁL Hópur fólks sem tapaði
milljörðum á kaupum hlutabréfa
í Glitni vikuna fyrir þjóðnýtingu
bankans hyggst stefna ríkinu.
Hópurinn segist hafa verið rænd-
ur, þar sem ráðamönnum hafi
verið grafalvarleg staða banka-
kerfisins ljós en engu að síður
leyft kaup og sölu á hlutabréfum
í bankanum. Frá þessu var greint
í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld.
Hinn 29. september 2008
ákvað íslenska ríkið að leggja
Glitni til nýtt hlutafé að upphæð
600 milljónir evra og varð með
því eigandi 75 prósenta hlutar
í bankanum. Þetta var Glitnis-
leiðin svokallaða og töldu marg-
ir að bankanum hefði þar með
verið bjargað. Glitnir féll um
viku síðar.
Guðmundur Jón Matthíasson,
sem fer fyrir hópnum, sagði í
fréttum Stöðvar 2 að það væri
forkastanlegt að ríkið og stofn-
anir á borð við Fjármálaeftir-
lit og Seðlabanka skyldu hafa
opnað fyrir viðskipti með bréf í
bankanum á sama tíma og óvissa
hefði ríkt um framtíð bankans.
„Hvers á fólkið á götunni að
gjalda,“ spyr Guðmundur.
Fólk sem tapaði á hlutabréfakaupum stefnir ríkinu:
Forkastanleg vinnubrögð