Fréttablaðið - 20.06.2011, Blaðsíða 14
20. júní 2011 MÁNUDAGUR14
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
MOSAIK
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ómar Árnason
cand act,
lést á St. Jósefsspítala laugardaginn 11. júní.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 22. júní klukkan 13.00.
Hrafnhildur Oddný Kristbjörnsdóttir
Kristín Ómarsdóttir Sveinbjörg Bjarnadóttir
Guðrún Yrsa Ómarsdóttir Ágúst Ómar Ágústsson
Árni Björn Ómarsson Borghildur Þórisdóttir
Hulda Sigríður Jeppesen Guðmundur J. Stefánsson
og barnabörn.
Emilía Borgþórsdóttir iðnhönnuður
hlaut gullverðlaun á stærstu húsgagna-
sýningu Bandaríkjanna, NeoCon, sem
haldin er árlega í Chicago. Verðlaunin
þykja mikill heiður og reynist mörg-
um stökkpallur í fremstu línu hönn-
uða á heimsvísu. Emilía fékk verðlaun
í flokki sófaborða en sérstaka athygli
vekur ytra að fyrsta vara hönnuðar,
eins og raunin er með borð hennar,
hljóti svo stóra viðurkenningu.
„Ég var fyrir það fyrsta alveg
nógu ánægð með að fá að taka þátt
í þessari sýningu og var því ekkert
að spá í verðlaunin. Þetta var því
óvænt ánægja og bara meiriháttar,“
segir Emilía þegar Fréttablaðið nær
af henni tali. Borðin, sem kallast
Sebastopol, eru nýkomin á markað,
en Coalesse framleiðir þau. Coalesse
er dótturfyrirtæki stærsta húsgagna-
fyrirtækis í heimi, Steelcase Inc.
„Þessar sýningar eru mjög mikil-
vægar fyrir hönnuði þar sem að þang-
að mæta innanhússhönnuðir til að sjá
hvaða nýjungar eru í boði og versla
fyrir kúnnana sína. Borðin mín eru nýr
vinkill á sófaborð þar sem ég lék mér
með rúmfræðina og formið og borð-
in eiga að geta þjónað öllum þörfum
manns án þess að taka of mikið pláss.“
Emilía segir að þörfin hafi kveikt
hugmyndina. Hún þekki það hjá sjálfri
sér, vinum og kunningjum, hvað stórt
sófaborð geti tekið
mikið pláss í minni stofum en samt vilji
maður geta haft borð þar sem hægt
er að nota fyrir saumaklúbbinn, sjón-
varpskvöld og svo framvegis.
„Mig langaði að athuga hvort ég gæti
ekki brotið form sófaborðsins upp,
gert það nettara og passa um leið að
það samsvaraði sér vel. Úr varð að ég
byrjaði með ferkantaða plötu og skoð-
aði í bak og fyrir hvaða horn ég gæti
skorið af án þess að það kæmi niður á
notkunarmöguleikum borðsins.“ Borð-
unum má raða upp nokkrum saman
endilangt eða láta þau mynda þyrp-
ingu auk þess að hafa eitt og eitt á
stangli. Þau koma í nokkrum litum
og tveimur stærðum.
Emilía útskrifaðist sem iðnhönn-
uður frá Art Institute of California
árið 2009. Hún hefur síðan þá verið
í eigin rekstri þar sem hún býr í San
Francisco og hefur tekið að sér ýmis
verkefni. Hún hefur einnig þann
óvenjulega bakgrunn að vera mennt-
aður sjúkraþjálfari. Emilía segir þá
menntun gagnast sér vel því hún
hafi það alltaf ofarlega í huga að
hún sé að hanna húsgögn fyrir manns-
líkamann. „Það er virkilega gaman að
byrja svona vel, vera tekinn alvarlega
sem hönnuður og komast að hjá svona
stóru fyrirtæki.“
juliam@frettabladid.is
ÍSLENSKUR IÐNHÖNNUÐUR: HLÝTUR GULLVERÐLAUN Í BANDARÍKJUNUM
Gaman að byrja svona vel
LÉK SÉR MEÐ RÚMFRÆÐINA Borð Emilíu Borgþórsdóttur hreif dómnefnd stærstu húsgagnasýningar í Bandaríkjunum, NeoCon, en borðin eru í
nokkrum litum og tveimur stærðum.
44
Handtak.is hefur nú verið
opnað aftur eftir gagn gerar
breytingar og allsherjar
endurskoðun á virkni og
viðmóti kerfisins.
Handtak.is var stofn-
að 2003 og hafa þúsundir
Íslendinga notið þjónust-
unnar síðan. Vefsíðan er
gagnlegur vettvangur þar
sem þjónustuaðilar, þ.e.
verktakar á ýmsum sviðum,
og verkkaupar leita hver
annan uppi. Verkkaupar
skrá verk sín frítt og í kjöl-
farið geta þjónustuaðilar
byrjað að bjóða í verkið.
Gagnagrunnur Hand-
taks.is auðveldar leit að
þjónustuaðilum á öllum
sviðum og sparar tíma.
Margar nýjungar hafa litið
dagsins ljós, eins og raf-
ræn fréttabréf í stóru upp-
lagi fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga.
Hægt er að kynna sér
grunninn á http://handtak.
is/umokkur.htm og http://
handtak.is.
Enn betra handtak
HANDTAK Það sparar bæði tíma og fyrirhöfn að finna verktaka og
verkkaupa á Handtak.is.
AFMÆLISBÖRN
VIGNIR SVAVARSSON
handboltamaður er 31 árs.
ÁRNÝ ERLA SVEINBJÖRNSDÓTTIR
jarðfræðingur er 58 ára.
ROBERT RODRIGUEZ
leikstjóri er 43 ára.
LIONEL RICHIE
tónlistarmaður er 62 ára.
Þrír fangar, allir um tvítugt, struku úr
Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg á
þessum degi árið 1978. Flóttinn varð
um hádegisbil þegar flytja átti fangana
frá Hegningarhúsinu að Litla-Hrauni.
Tveir lögreglumenn gættu fanganna,
sem voru ójárnaðir. Þegar fangarnir
voru komnir út á gangstéttina fyrir utan
fangelsið og áttu að fara upp í lögreglu-
bílinn tóku þeir skyndilega til fótanna,
hver í sína áttina, en lögreglumennirnir
náðu ekki að veita þeim eftirför.
Einn fanganna gaf sig fram síðdegis
við lögregluna en hinir tveir fundust
tveimur klukkutímum síðar á Hótel
Heklu við Rauðarárstíg, þar sem þeir
höfðu leigt sér hótelherbergi og voru
þeir mjög ölvaðir þegar þeir náðust.
Þeir höfðu logið til um nöfn og sagst
vera frá Bíldudal.
ÞETTA GERÐIST: 20. JÚNÍ 1978
Flótti úr Hegningarhúsinu
Merkisatburðir
1627 Tyrkjaránið hefst þegar
ræningjar frá Alsír
koma á skipi til Grinda-
víkur.
1750 Gengið er á tind Heklu í
fyrsta sinn svo vitað sé.
Það gera Bjarni Páls-
son, síðar landlæknir,
og Eggert Ólafsson, vís-
indamaður og skáld.
1970 Listahátíð í Reykjavík er
sett í fyrsta sinn. Meðal
flytjenda á hátíðinni
eru Daniel Barenboim
píanóleikari og hljóm-
sveitin Led Zeppelin.
1976 Vesturlandabúar eru
fluttir frá Beirút.
1980 Luciano Pavarotti syng-
ur í Laugardalshöllinni.
NICOLE KIDMAN leikkona er 44 ára í dag.
„Alveg frá því að ég man eftir mér hef ég viljað prófa allt það sem lífið
hefur upp á að bjóða, jafnvel þótt það sé hugsanlega hættulegt.“