Fréttablaðið - 20.06.2011, Page 30
20. júní 2011 MÁNUDAGUR18
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
Lesendur okkar
eru á öllum aldri
með ólíka
sýn á lífið
– og við þjónum
þeim öllum
Allt sem þú þarft
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. helminguð, 6. í röð, 8. sólunda, 9.
móða, 11. frú, 12. ílát, 14. dvaldist,
16. bókstafur, 17. orga, 18. beita, 20. í
röð, 21. skrifa.
LÓÐRÉTT
1. ónæði, 3. spil, 4. handarlínulist, 5.
skip, 7. brennivínstegund, 10. strá,
13. frjó, 15. bannhelgi, 16. krass, 19.
ólæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hálf, 6. aá, 8. sóa, 9. ský,
11. fr, 12. karfa, 14. varst, 16. pí, 17.
æpa, 18. áta, 20. áb, 21. rita.
LÓÐRÉTT: 1. rask, 3. ás, 4. lófaspá,
5. far, 7. ákavíti, 10. ýra, 13. fræ, 15.
tabú, 16. pár, 19. at.
Stefnumót
við höfund
ævisögunnar
VÖRTUR
OG ALLT
BÆKUR
KYNNIR:
Skrímsli
sem
finnast í
Mítlar
Itchus Bitchus
Skallabjöllur
Hottus
Grandus
Húðflær
Spottus
Speus
Finnast í flestum
koddum! Geta valdið
kláða og ofnæmi!
Óvætturinn mikli!
Borðar hárið af höfðinu
og veldur skalla.
Læðist upp andlitið á
nóttunni! Getur skilið
eftir brún sár á húðinni!
Eða freknur, ef fólk kalla
þær það.
Grípur því miður sumt fólk
og veldur ranghugmynd-
um og mikilmennskubrjál-
æði. Nær aðallega til fólks
með lága greindarvísitölu!
Pierce!
Fékkstu
Nano!
Ójá! Þeir eru
geðveikir!
Þúsund??
Má ég sjá!
Örþunnur en
tekur samt
þúsund lög.
Þú ættir
að fá þér
svona!
Jafnvel þótt
ég muni bara
eftir svona tólf
góðum lögum?
ÞÁ: NÚ:GOTT UPPELDI
Horfðu í báðar
átti áður en þú
ferð yfir götuna.
Ekki láta þér detta
í hug að fara yfir
götuna.
Það sem okkur tókst að barma okkur yfir þessu kalda vori. Þrátt fyrir vel-
byggðu húsin og upphituðu bílana leið
okkur eins og við værum tötrumklæddir
niðursetningar sem sendir hefðu verið
upp á heiði í leitir frostaveturinn mikla
og ættum von á kalsárum frá tám og upp
undir handarkrika. Okkur tók sárar að
sjá hitastigið falla en gengi íslensku krón-
unnar, enda ef til vill orðin því vön. „Það
var búið að lofa / hnattrænni hlýnun,“
segir í Júníhreti, ljóði Gyrðis Elías-
sonar úr Nokkrum almennum
orðum um kulnun sólar. Margir
hafa eflaust hugsað svipað.
Í SÍÐUSTU viku fór loksins að
hlýna og þá var ekki að sökum
að spyrja. Við dembdum okkur
yfir í hinar öfgarnar. Hita-
stigið var skyndilega orðið svo
ægilegt að heilsu okkar og lífríki
var ógnað. Strax 14. júní birti
Morgun blaðið veglega umfjöll-
un um það sem fæstir vilja
rekast á – pöddur. Fyrirsögnin
er ógnvænleg: „Innfluttar og
óþarfar pöddur geta vald-
ið miklum skaða“. Gæti ég
trúað því að lesendum blaðs-
ins hafi svelgst á morgun-
kaffinu við þessi voveiflegu
tíðindi og þá sér í lagi myndinni af
skemmuköngulónni sem teygir granna
limi sína yfir hálfa síðu.
AÐ SÖGN Erlings Ólafssonar skordýra-
fræðings er ástæðan fyrir fjölgun skor-
dýra hér á landi einföld; stóraukinn
innflutningur á gróðurvörum en líka
hækkandi hitastig. Í greininni er síðan
skýrt frá pöddum sem blaðamaður segir
„ráðast til atlögu“ og „gera usla“. Þau eru
„mikil átvögl“ og ein er meira að segja
„argasta rándýr“. Taldar eru upp nokkr-
ar tegundir sem hafa numið hér land,
svo sem skógarmítillinn sem getur sýkt
menn af heilabólgu en líka blaðflugan
sem er víst alveg meinlaus.
MAÐUR skyldi samt aldrei vera viss
og inni í kústaskápnum mínum bíður
gripur sem líkist tennisspaða. Ekki þarf
ég annað en að leggja hann á pöddurnar,
sem fyrir mér eru allar jafnóþarfar, og
ýta á rauðan takka til að gefa þeim eilítið
rafstuð. Fyrir þessum aldurtila hafa þær
hingað til unnið sér inn með látlausu
suði, svo ekki sé minnst á óprýðina sem
af þeim hlýst. Héðan í frá mun ég samt
líka hugsa um það hvernig húshumlan
er smám saman að ryðja gamla ramm-
íslenska móhumlukyninu úr vegi um leið
og ég reiði til höggs.
Ísland í öfganna rás
MAN U-vírus
Manshait Nogood
Ubrukilius