Fréttablaðið - 20.06.2011, Side 33
MÁNUDAGUR 20. júní 2011 21
Yfirnáttúrulegur
veitingastaður
Gló leggur ríka áherslu á að nota einungis ferskasta og besta hráefni sem völ er á. Daglega
eru í boði fjórir mismunandi réttir: Hráfæðisréttur, kjúklingaréttur, grænmetisréttur og súpa,
með öllum réttum er brakandi ferskt salat og ljúffengar sósur sem kitla bragðlaukana.
Kökur staðarins eru orðnar velþekktar á meðal sælkera.
Sollu þarf vart að kynna fyrir landsmönnum enda verið frumkvöðull í gerð hollari matar
í fjölmörg ár og er stöðugt að leita nýrra leiða til að gera góða rétti betri.
Listhúsinu Laugardal · Engjateig 19 · 104 Reykjavík · Sími 553 1111 · www.glo.is
Opnunartími: Virka daga 11-20 · Laugardaga 11-15
L
E
Y
N
I
V
O
P
N
I
Ð
Crystal Harris, fyrrverandi unnusta klámkóngsins
Hugh Hefner, segist sátt við þá ákvörðun sína að
slíta trúlofuninni við Hefner aðeins viku fyrir brúð-
kaupið.
„Ég hafði verið mjög óviss með þetta allt í nokkurn
tíma og alls ekki verið með sjálfri mér,“ sagði Harris
í viðtali við útvarpsmanninn Ryan Seacrest. „Þetta
gerðist allt svo hratt og þegar mér loks gafst tími til
að hugsa málin áttaði ég mig á því að þetta væri ekki
fyrir mig. Þetta var ekki rétta lífið fyrir mig.“
Að sögn Harris tók Hefner fréttunum með ró og
var sammála henni um að best væri að aflýsa brúð-
kaupinu. „Við rifumst ekki. Hann skildi þetta og var
sammála um að best væri að hætta við brúðkaupið,
hann vildi aðeins giftast því hann trúði því að það
væri draumur minn.“ Að lokum neitaði Harris öllum
sögusögnum um meint samband hennar og Jordan
McGraw, sonar dr. Phil.
Sátt við ákvörðunina
SÁTT Crystal Harris, fyrrverandi unnusta Hugh Hefner, er sátt við
ákvörðun sína um að aflýsa brúðkaupi þeirra. NORDICPHOTOS/GETTY
Rihanna hefur ákveðið að taka að
sér að vera talsmaður ferðamanna-
þjónustu á Barbados. Söngkonan,
sem fæddist á eyjunni, vill hjálpa
til við að kynna land og þjóð betur
fyrir ferðamönnum og ætlar að
halda stóra tónleika í heimaland-
inu í ágúst.
„Barbados er einstakur staður
og ein af ástæðum þess að ég er
að kynna landið er stoltið sem þjóð
mín býr yfir. Ég vil að allir ferða-
menn sem heimsækja þessa fallegu
eyju upplifi hvað það er sem gerir
þennan áfangastað öðruvísi en alla
aðra, og það er meðal annars hinn
góði andi og hlýjan frá samlöndum
mínum,“ segir Rihanna.
Stolt af Barbados
ÞJÓÐARSTOLTIÐ MIKIÐ Rihanna hefur
tekið að sér að kynna Barbados enn
betur fyrir heiminum.
Jim Carrey segir að dóttursonur
sinn sé virkilega fyndinn og að
hann minni sig mikið á sjálfan sig
í æsku. Dóttir Carreys eignaðist
drenginn í febrúar og er hann því
aðeins nokkurra mánaða gamall.
„Hann er alltaf með þennan
prakkarasvip og maður sér að
hann er að hugsa: „Ég er með
þetta. Ég veit þið viljið sjá mig
og ég veit að ef ég segi „hæ“ fara
allir að hlæja‘,“ segir afinn stolti.
Segir afason-
inn fyndinn
STOLTUR AFI Jim Carrey eignaðist sitt
fyrsta barnabarn í febrúar. Hann segir
dóttursoninn virkilega fyndinn.
Leikkonan Kristie Alley er byrj-
uð með dansaranum Ted Voly-
nets, sem væri ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir
að dansarinn er heilum fjörutíu
árum yngri en leikkonan.
Alley er hvað þekktust fyrir
leik sinn í sjónvarpsþáttunum
Cheers en ferill hennar gekk í
endurnýjun lífdaga eftir þátt-
töku í dansþættinum Dancing
with the Stars. Þátturinn er mjög
vinsæll vestanhafs og lenti Alley
þar í öðru sæti. Þar kynntist
hún dansaranum unga, sem er
einungis þremur árum eldri en
dóttir Alley.
Yngir upp
HAMINGJUSÖM Leikkonan Kirstie Alley
ku vera mjög hamingjusöm með Ted Voly-
nets, sem er fjörutíu árum yngri en hún.