Fréttablaðið - 20.06.2011, Síða 34
20. júní 2011 MÁNUDAGUR22
sport@frettabladid.is
SEXTÁN LIÐA ÚRSLIT Valitor-bikars karla í fótbolta hefjast í kvöld með þremur leikjum. Pepsi-deildarliðin Þór og
Víkingur mætast á Þórsvellinum klukkan 18.30 og klukkan 19.15 spila Haukar og Keflavík á Ásvöllum og Fjölnir tekur á
móti Hamri á Fjölnisvellinum. Þrír leikir fara síðan fram á þriðjudag og síðustu tveir verða spilaðir á fimmtudaginn. Þar á
meðal er stórleikur KR og FH á KR-vellinum
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
og Anton Brink
fjalla um EM U21 í
Danmörku
eirikur@frettabladid.is - anton@frettabladid
A-riðill
Ísland-Danmörk 3-1
Sviss-Hvíta-Rússland 3-0
Mehmedi 2 (6. víti, 43.), Feltscher (90.+3)
STAÐAN
Sviss 3 3 0 0 6-0 9
Hvíta-Rússland 3 1 0 2 3-5 3
Ísland 3 1 0 2 3-5 3
Danmörk 3 1 0 2 3-5 3
B-riðill
England-Tékkland 1-2
Danny Welbeck (76.) - Jan Chramosta (89.),
Tomas Pekhart (90.+4)
Úkraína-Spánn 0-3
Juan Manuel Mata 2 (10., 72. víti), Adrián (27.)
STAÐAN
Spánn 3 2 1 0 6-1 7
Tékkland 3 2 0 1 4-4 6
England 3 0 2 1 2-3 2
Úkraína 3 0 1 2 1-5 1
Undanúrslitin
Spánn-Hvíta-Rússland Mið. 22. júní 16.00
Sviss-Tékkland Mið. 22. júní 19.00
ÚRSLITIN Á EM
Álaborg, áhorf.: 9.308
Ísland Danmörk
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 17–26 (7–8)
Varin skot Haraldur 7 – Andersen 4
Horn 4–9
Aukaspyrnur fengnar 12–13
Rangstöður 4–4
ÍSLAND 4–3–3
*Haraldur Björnsson 9
Eggert Gunnþór Jónsson 6
Hólmar Örn Eyjólfsson 5
Jón Guðni Fjóluson 7
Hjötur Logi Valgarðsson 7
Aron Einar Gunnarsson 8
Birkir Bjarnason 8
(79. Arnór Smárason -)
Gylfi Þór Sigurðsson 8
Jóhann Berg Guðmundsson 7
Rúrik Gíslason 6
(68. Björn Bergmann Sigurðarson 6)
Kolbeinn Sigþórsson 8
*Maður leiksins
1-0 Kolbeinn Sigþórsson (58.)
2-0 Birkir Bjarnason (60.)
2-1 Bashkim Kadrii (81.)
3-1 Hjörtur Logi Valgarðsson (91.)
3-1
Mazic, Serbíu (2)
FÓTBOLTI ÍA og KR léku á laugar-
dagskvöldið styrktarleik fyrir
Sigurstein Gíslason sem kallaðist
Meistaraleikur Steina Gísla og
tókst frábærlega. Liðin gerðu 2-2
jafntefli en tæplega 4.000 manns
mættu á völlinn, sem er mesta
aðsókn á Skaganum í fimmtán ár.
Einar Þór Daníelsson og Rúnar
Kristinsson skoruðu fyrir KR
en Bjarni Guðjónsson og Ólafur
Þórðarson fyrir ÍA.
Þetta var ágóðaleikur fyrir
Sigurstein, sem greindist á dög-
unum með krabbamein í nýrum
og lungum. Allar tekjurnar af
þessum leik runnu til Sigursteins
og fjölskyldu.
„Ég er djúpt snortinn og mjög
hrærður yfir þessu. Það er ótrú-
legt framtak hjá þessum strák-
um að standa fyrir þessu og ég á
varla orð yfir þetta,“ sagði Sigur-
steinn í viðtali á Stöð 2 en hann
tjáði sig líka um veikindin. „Þetta
var rosalegt sjokk og mikið lagt
á ekki bara mig heldur alla fjöl-
skylduna og alla í kringum okkur.
Þetta er mjög erfitt en ég tók
strax þá ákvörðun að taka þessu
af æðruleysi. Ég ætla bara að
vera jákvæður og fara í gegnum
þetta. Þetta er bara einn leikur,
reyndar langur leikur en ég ætla
bara að vinna hann,“ sagði Sigur-
steinn Gíslason. - óój
Meistaraleikur Steina Gísla:
Frábær mæting
TVEIR GÓÐIR SAMAN Sigursteinn
Gíslason ásamt Guðjóni Þórðarsyni á
leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR BJARKI
MÖRG FAÐMLÖG Í LEIKSLOK Sigursteinn
Gíslason þakkar Alexander Högnasyni
fyrir í lok leiks. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR BJARKI
FÓTBOLTI Ísland féll um helgina úr
leik á EM U-21 liða í Danmörku
þrátt fyrir glæsilegan 3-1 sigur á
heimamönnum. Tapleikirnir tveir
í upphafi riðlakeppninnar reynd-
ust Íslandi að lokum banabiti þó
svo að litlu hafi mátt muna. 4-1
eða 3-0 sigur gegn Dönum hefði
dugað Íslandi til að komast áfram
í undanúrslit keppninnar.
Strákarnir sýndu loksins sitt
rétta andlit í leiknum um helgina
og spiluðu eins og þeir gerðu best
í undankeppninni. Liðið komst
loksins af stað en hið sorglega er
að tvo leiki þurfti til þess.
Eyjólfur Sverrisson þjálfari
segir að það eigi sínar skýringar.
Þær felist fyrst og fremst í því
hvernig liðið hafi búið sig undir
úrslitakeppnina. Leikmennirnir
23 komu ekki saman fyrr en
8. júní og æfðu fyrst saman að
kvöldi næsta dags – tveimur
dögum fyrir fyrsta leik.
L eikmenn l iðsi ns voru
lang f lestir uppteknir með
A-landsliðinu eða félögum sínum
í Pepsi-deildinni. Flestir fengu sig
því ekki lausa fyrr.
„Umgjörðin sem við fengum
til að sinna undirbúningnum var
mjög erfið,“ sagði Eyjólfur. „Við
hefðum átt að gera þetta öðru-
vísi. Við hefðum átt að gefa okkur
meiri tíma með strákunum.“
Hann bendir þó á að hann hafi
sjálfur ekki séð lausnina. „Við
fórum margoft yfir þetta en ég
þekki mótamál Íslandsmótsins
með nákvæmum hætti og get því
ekki tjáð mig um þetta í mikl-
um smáatriðum. Mér var sagt að
þetta hefði ekki verið hægt öðru-
vísi og trúi ég því auðvitað að
menn séu að koma hreint og beint
fram hvað þessi mál varðar.“
Hann segir að A-landslið-
inu yrði aldrei boðið upp á svo
stuttan undirbúning fyrir stór-
mót. „Kannski geta menn lært af
þessu. En niðurstaðan fyrir okkur
er svekkjandi.“
Eyjólfur segir að þrátt fyrir
2-0 tap fyrir Hvíta-Rússlandi í
fyrsta leik hafi Ísland spilað vel
lengst af í leiknum. Hann blæs
á gagnrýnis raddir um annað.
„Ég var ekki sammála þeim
sérfræðingum heima á Íslandi
sem gagnrýndu liðið fyrir að vera
of hægt í þeim leik. Það er auð-
vitað bara kjaftæði. Ef einhverjir
snillingar heima hafa verið að
vanmeta Hvít-Rússa, þá vorum
við ekki að því. Við fórum eins
inn í þann leik og gegn Dönum
– með því að sýna þolinmæði,
þreifa fyrir okkur og finna hvar
við gætum komið höggstað á þá.
Við vorum nálægt því gegn Hvít-
Rússum en fengum á okkur órétt-
mætt rautt spjald og rangstöðu-
mark sem reyndist okkur afar
dýrkeypt á endanum. Strákarn-
ir voru síðan stórkost legir gegn
Dönum og sýndu loksins sitt rétta
andlit.“
Eyjólfur mun halda áfram að
þjálfa U-21 lið Íslands og tekur
við nýjum hópi leikmanna í haust.
U-21 liðið hefur lent í árekstrum
við A-lið karla vegna leikmanna
en spurður segir Eyjólfur ekkert
samstarf hafa verið á milli þess-
ara tveggja liða. „Nei, í raun og
veru ekki. Það þarf að vera meira
og þá á milli landsliða í öllum
aldursflokkum. Það þarf meiri
yfirsýn yfir starfsemina og sam-
ræma aðgerðir,“ viðurkennir Eyj-
ólfur en segir alls enga óvild ríkja
á milli hans og Ólafs Jóhannes-
sonar landsliðsþjálfara. „Ég hef
fengið að kynnast því hvern-
ig önnur lönd standa að þessum
málum og tel ég rétt að öll lands-
lið Íslands í knattspyrnu þurfi að
vera betur samstíga.“
Hann hrósaði sínum leikmönn-
um í hástert að loknu mótinu. „Ég
er klökkur yfir því að hafa starfað
með þessum frábæra hópi. Þess-
ir strákar eru snillingar og eiga
eftir að ná enn lengra og koma
A-liðinu á stórmót. Þá eigum við
eftir að skemmta okkur konung-
lega.“
Áttum að gefa okkur meiri tíma
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 liðsins, segir að stóra lexían eftir Evrópumeistaramótið sé að undirbúningur-
inn fyrir mótið hafi þurft að vera lengri. Hann segir einnig að samstarf við A-landslið karla hafi verið ekkert.
SVEKKTUR ARON EINAR Aron Einar Gunnarsson hljóp úr sér lungu og lifur eins og
aðrir í íslenska U-21 landsliðinu gegn Dönum og var sársvekktur í leikslok þrátt fyrir
3-1 sigur. Ísland var úr leik á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI „Ég vona að Íslending-
ar hafi verið stoltir af okkur í dag
og slökkt á Twitter-aðdáendun-
um,“ sagði Aron Einar Gunnars-
son, leikmaður íslenska U-21 liðs-
ins, við Fréttablaðið eftir leikinn í
gær. Eins og aðrir leikmenn liðsins
var hann sár og svekktur með að
hafa ekki komist áfram en stoltur
af frammistöðu liðsins í leiknum
gegn Dönum.
Ísland fagnaði 3-1 sigri á Dönum
á laugardaginn en hefði þurft að
skora eitt mark til viðbótar til að
komast áfram. Tapleikirnir tveir í
upphafi riðlakeppninnar reyndust
of dýrkeyptir og Ísland féll því úr
leik.
Leikmenn sögðu þó að liðið
hefði náð að svara þeirri gagn-
rýni sem það fékk á sig eftir töpin
gegn Hvíta-Rússlandi og Sviss.
„Það var allt undir í þessum leik.
En við vorum frábærir og fannst
mér að við hefðum fengið nokkuð
harða gagnrýni á okkur frá sumum
heima. En við erum gott lið og ég
held að enginn sé í vafa um það í
dag,“ sagði Eggert Gunnþór Jóns-
son.
Á endanum komst Hvíta-Rúss-
land áfram með Sviss upp úr A-
riðli og fannst mörgum það súrt í
broti. „Það er ótrúlega skrýtið að
Hvíta-Rússland sé komið áfram,“
sagði Rúrik Gíslason. „Við hefðum
átt að vinna þann leik. Það er hárfín
lína á milli þess hvort við vinnum
eða töpum þeim leik. Mér fannst
íslenskt mark liggja í loftinu allan
leikinn og verður það að skrifast á
algeran klaufaskap að við skyldum
ekki vinna þann leik.“
Gylfi Þór Sigurðsson sagði sam-
heldni og vináttu leikmanna hafa
verið lykilatriði í því að sigrast á
mótlætinu sem liðið fann fyrir í
Danmörku. „Ég held að það hafi
helst verið vegna þess að við erum
allir góðir vinir og allir saman í
þessu. Samheldnin er mikil í liðinu.
Við vissum að við værum betri en
við gáfum til kynna í síðustu leikj-
um. Við settumst því niður, töluð-
um saman og ræddum um hvað við
þyrftum að bæta. Við gerðum það
hér í dag.“
Allir voru þó strákarnir sammála
um að þeir hefðu sjálfir komið sér í
þessa stöðu og gætu engum öðrum
um kennt. „Við vorum hársbreidd
frá því að komast áfram og það er
það sem er svo svekkjandi. En við
komum okkur í þessa stöðu sjálfir,“
sagði Aron Einar. „En í dag lögðum
við okkur alla fram, unnum Dani og
getum verið stoltir af okkur.“ - esá
Viðbrögð íslensku leikmannnanna eftir leikinn gegn Danmörku á laugardaginn:
Þögguðum í gagnrýnisröddunum
FYRSTA MARKIÐ Kolbeinn Sigþórsson skorar hér fyrsta mark Íslands á EM í Dan-
mörku. Íslensku mörkin urðu á endanum þrjú. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
2-0 Birkir Bjarnason fagnar marki sínu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N