Fréttablaðið - 20.06.2011, Blaðsíða 38
20. júní 2011 MÁNUDAGUR26
FÉSBÓKIN
„Við vorum að klára tveggja daga
upptökutörn en það er nóg að gera
hjá okkur þessa dagana,“ segir
Alma Guðmundsdóttir, ein af
meðlimum hljómsveitarinnar The
Charlies en útrás sveitarinnar
vestanhafs gengur ágætlega.
Nýlega komu stúlkurnar fram á
sérstöku meðlimakvöldi skemmti-
staðarins Supper Club. „Klúbbur-
inn er einn sá flottasti hér í Holly-
wood og það er alltaf troðfullt. Það
var því mikill heiður fyrir okkur
að vera beðnar um að taka lagið á
afmæliskvöldi staðarins þar sem
mikið var um dýrðir. Risavaxin
afmælisterta og kampavínsflaska
í súperstærð látin síga niður úr
loftinu.“
Þær Alma, Klara og Stein-
unn vöktu athygli fyrir að klæð-
ast frumlegum búningum á svið-
inu. „Búningana hönnuðum við
og útfærðum alveg sjálfar. Við
erum mjög ánægðar með útkom-
una og notuðum hverja lausa stund
milli æfinga til að setjast niður og
sauma, festa kögur, gadda, keðj-
ur og fjaðrir,“ segir Alma en hug-
myndina fengu þær stöllur út frá
gallavesti sem Alma keypti sér og
klæddist þá um kvöldið. „Við erum
mjög samstillar varðandi hvernig
við viljum líta út á sviði og getum
farið í mikinn ham þegar við erum
að spá í útlit okkar á sviði,“ segir
Alma og bætir við að þær sitji
samt ekki alltaf sjálfar við sauma-
vélina og vinni líka með hönnuðum
og stílistum annað slagið.
Dagar þeirra Ölmu, Klöru og
Steinunnar fara í æfingar og upp-
tökur ásamt því að koma fram á
eins mörgum viðburðum og þær
geta. „Við höfum verið duglegar
við að koma fram á hinum ýmsu
viðburðum upp á síðkastið og
höfum mjög gaman af því.“
alfrun@frettabladid.is
ALMA GUÐMUNDSDÓTTIR: ERUM MJÖG SAMSTILLTAR Í FATAVALI
CHARLIES-STELPUR SITJA
SVEITTAR VIÐ SAUMASKAP
Í STÍL
Þær Alma, Klara og Steinunn í stúlknasveitinni The Charlies voru klæddar í
hönnun eftir Elísabetu Kristófersdóttur síðustu tónleikum þeirra hér á landi
en sjást hér koma fram á afmæliskvöldi Supper Club í búningum sem þær
hönnuðu og saumuðu sjálfar en búningarnir minna óneitanlega á sviðs-
fatnað poppdívunnar Lady Gaga.
„Núna hef ég í hyggju að draga
mig inn í skelina og finna aftur
nördið í sjálfum mér,“ segir Páll
Óskar Hjálmtýsson.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá fór Páll á kostum með sin-
fóníuhljómsveit Íslands í Hörpu
í síðustu viku. Hann rokseldi
þar eintök af Silfursafninu en
hefur í hyggju að láta minna
fyrir sér fara á næstunni því
hann hyggst hefja undirbúning
að næstu plötu. „Það eru nokk-
ur „demo“ til en platan kemur
örugglega ekki út á þessu ári,
það er mikið líklegra að hún
komi 2012.“ Aðdáendur popp-
stjörnunnar þurfa hins vegar
engu að kvíða, þeir fá sinn
skammt á þessu ári; DVD-
útgáfa með sinfóníutónleikun-
um kemur út fyrir jólin.
Síðasta plata poppstjörnunn-
ar, Allt fyrir ástina, rokseldist
og lögin sprengdu vinsælda-
lista útvarpsstöðvanna fyrir
fjórum árum. Páll hefur hins
vegar ekki fundið samstarfs-
mann fyrir næstu plötu, hann
segist vera að leita og tala við
fólk. „Hins vegar er alltaf fólk
útí bæ að senda mér lög eftir
sig og biðja mig um að hlusta.
Þetta er oft fólk sem ég þekki
ekki neitt en er að semja ágætis
lög.“ - fgg
Ókunnugt fólk sendir Páli Óskari lög
Nýtt!
Hvað ætlar þú
að hafa í matinn?
„Ég er algjörlega ástfanginn af landinu ykkar og
langar til að gera því hærra undir höfði,“ segir
bandaríski framleiðandinn og kvikmyndagerðar-
maðurinn Danny Sherman.
Sherman er staddur hér á landi til að skoða hent-
uga tökustaði fyrir kvikmynd sem hann vill gera
í samstarfi við íslenska framleiðslufyrirtækið On
the Rocks. Sherman telur að kostnaður við gerð
myndar innar eigi eftir að vera í kringum tíu millj-
ónir dala en hann er jafnframt að skoða íslenska
leikara til að leika í myndinni. Þar hefur hann notið
dyggrar aðstoðar Ásdísar Ránar, fyrirsætunnar
góðkunnu, við þá leit. Enn á eftir að ráða handrits-
höfund fyrir myndina en Sherman segir það ferli
fara á fullt þegar hann fer aftur til Bandaríkjanna.
Sherman, sem starfar hjá bandaríska umboðs-
fyrirtækinu Principle Entertainment, er ekki að
stíga sín fyrstu skref í kvikmyndaiðnaðinum því
hann framleiddi nýverið kvikmyndina Isolation
með Evu Amurri úr Californication í aðalhlutverki.
„Ég er síðan með kvikmynd í vinnslu þar sem Jim
Carrey kemur við sögu.“
Sherman segir myndina eiga að vera íslenska
útgáfu af Lost in Translation eftir Sofiu Coppola, en
þar lék Bill Murray útbrenndan leikara sem festist
í japanskri menningu ásamt ungri amerískri snót.
„Þetta verður kvikmynd um Ísland og menningu
landsins og mun fjalla um mann sem leitar að hinni
fullkomnu fegurð.“ - fgg
Vill gera mynd um Ísland
ÁSDÍS AÐSTOÐAR Ásdís Rán hefur aðstoðað Danny Sherman
við að finna íslenska leikara og áhugaverða staði og hér eru
þau úti að borða ásamt Ósk Norðfjörð.
„Við erum ekki alveg búin að móta
okkur hugmyndir en það vilja ansi
margir tónlistarmenn heiðra karl-
inn,“ segir Margrét Gaua Magnús-
dóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
og dóttir Magnúsar Kjartanssonar
tónlistarmanns.
Magnús verður sextugur hinn
6. júlí næstkomandi. Af því til-
efni hafa tvö af börnum hans,
Margrét og gítarleikarinn snjalli
Davíð Magnússon, ákveðið að fá
nokkra velvalda tónlistarmenn til
að syngja og spila lög Magnúsar,
sem lék með hljómsveitum á borð
við Trúbrot og Júdas. Jón Ólafsson,
oftast kenndur við Skífuna, hefur
verið Margréti og Davíð innan
handar en hann og Magnús eru
æskuvinir.
„Flutningur Diktu á To Be Grate-
ful var fyrsti vísirinn að þessu en
við erum ekki alveg búin að ákveða
hvort þetta ratar á safndisk eða
hvað við gerum. Okkur fannst við
bara þurfa að gera eitthvað fyrir
hann og hans tónlist, en þeir sem
bíða eftir því að komast í hljóðver
til að taka upp lög eru ótrúlega
margir.“ Margrét segir pabba sinn
mjög lítið stressaðan fyrir þessum
tímamótum, hann geri sér grein
fyrir því að John Lennon-styttan í
Liverpool bráðni ekki þótt hann nái
þessu takmarki. „Aðalveislan verð-
ur bara á annan í jólum. Við höfum
nefnilega verið að safna fyrir ferð
til Kúbu í þrjú ár og þar verður öll
fjölskyldan þegar mamma verður
sextug.“ - fgg
Heiðra föður sinn
TÓNLISTINNI GEFIÐ LÍF Margrét Gaua Magnúsdóttir og bróðir hennar, Davíð Magnússon,
ætla ásamt Jóni Ólafssyni að heiðra Magnús Kjartansson á sextugsafmælisárinu hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
„Takk Hafnarfjörður fyrir
kvöldið. Næsti viðkomustaður
er Hof á Akureyri! Rosalega var
það skemmtilegt að spila fyrir
ykkur íkvöld :)“
Jógvan Hansen og Friðrik Ómar þeysast
þessa dagana um landið.
DREGUR SIG INN Í SKELINA Páll
Óskar hyggst láta lítið fyrir sér fara
og einbeita sér að því að finna
nördið í sjálfum sér. Hann langar
að gefa út plötu á næsta ári.